Fara í efni

Félagsmálaráð

208. fundur
9. maí 2017 kl. 08:15 - 10:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
Elísa Rán Ingvarsdóttir Aðalmaður
Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
Jóhannes Tryggvi Jónsson aðalmaður
Lilja Björk Ólafsdóttir varamaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
Þórhalla Karlsdóttir Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Franklín Karlsdóttir og Eyrún Rafnsdóttir Þroskaþjálfi og félagsmálastjóri
Silja Pálsdóttir formaður félagsmálaráðs boðaði forföll og kom í hennar stað Lilja Björk Ólafsdóttir.
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201703141
Trúnaðarmál - 201703141
Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201704065
Trúnaðarmál - 201704065
Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201705039
Trúnaðarmál - 201705039
Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201705006
Trúnaðarmál - 201705006
Bókað í trúnaðarmálabók
5.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201705040
Trúnaðarmál - 201705040
Bókað í trúnaðarmálabók
6.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201705041
Trúnaðarmál - 201705041
Bókað í trúnaðarmálabók
7.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201705038
Trúnaðarmál - 201705038
Bókað í trúnaðarmálabók
8.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201705037
Rúna Kristín Sigurðardóttir og Jóhannes Tryggvi Jónsson véku af fundi undir þessum lið kl 9:15. Þau komu aftur inn á fundinn að afgreiðslu lokinni kl. 9:28Trúnaðarmál - 201705037
Bókað í trúnaðarmálabók
9.
Húsnæðismál
Málsnúmer 201610024
Félagsmálaráði Dalvíkurbyggðar barst bréf dags. 23.apríl 2017 frá foreldrum fatlaðra ungmenna í Dalvíkurbyggð þar sem þau óska eftir tímasettri áætlun búsetuúrræða og atvinnumála fatlaðra einstaklinga í Dalvíkurbyggð.
Félagsmálaráð er meðvitað um þörf fyrir búsetuúrræði fyrir fatlaða í Dalvíkurbyggð. Nú þegar er starfandi vinnuhópur á vegum sveitarfélagsins til að kortleggja þörf og hvaða möguleikar eru í stöðunni. Á þessu ári er gert ráð fyrir 20 milljónum í undirbúningsvinnu og er gert ráð fyrir að við gerð fjárhagsáætlunar 2018 liggi fyrir frekari áætlun.

Félagsmálaráð bendir á að undanfarin ár hefur Dalvíkurbyggð verið í fararbroddi með atvinnu fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu og eru eða hafa verið starfandi einstaklingar með skerta starfsgetu á flestum starfsstöðum sveitarfélagsins. Á undanförnum árum hefur félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar útvegað börnum með fötlun á aldrinum 16-18 ára sumarvinnu og greitt launin þeirra þrátt fyrir að ekki sé lagaskylda þar um.
10.
Félagsþjónustuskýrsla 2016
Málsnúmer 201702086
Tekin fyrir erindi frá Hagstofu Íslands dags. 6. febrúar 2017 um árlega skýrslu sveitarfélaga um félagsþjónustu á árinu 2016. Einnig var skýrsla lögð fram sem skilað hefur verið fyrir hönd Dalvíkurbyggðar. Fram kemur í skýrslunni að alls er veitt heimilisþjónusta á 51 heimili í sveitarfélaginu og alls fengu 42 heimili fjárhagsaðstoð á árinu.
Lagt fram til kynningar
11.
Til umsagnar frumvarp til laga um orlof húsmæðra (afnám laganna), 119. mál.
Málsnúmer 201703056
Þórhalla Franklín Karlsdóttir þroskaþjálfi vék af fundi.Tekið fyrir erindi frá Nefndasviði Alþingis dags. 10.mars 2017. Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um orlof húsmæðra (afnám laganna), 117.mál. Óskað er umsagnar sveitafélaga.
Lagt fram til kynningar
12.
Til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 438. mál.
Málsnúmer 201705023
Tekið fyrir erindi frá Nefndasviði Alþingis dags. 3.maí 2017. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 438.mál. Óskað er umsagnar sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar
13.
Til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál), 439. mál.
Málsnúmer 201705024
Tekið fyrir erindi frá Nefndasviði Alþingis dags. 3.maí 2017. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar fumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál), 439.mál. Óskað er umsagnar sveitafélaga.
Lagt fram til kynningar
14.
Til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017?2021, 434. mál.
Málsnúmer 201704114
Tekið fyrir erindi frá Nefndasviði Alþingis dags. 28.apríl 2017. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaráætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021, 434.mál. Óskað er umsagnar sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar
15.
Til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, 436. mál.
Málsnúmer 201704115
Tekið fyrir erindi frá Nefndarsviði Alþingis dags. 28.apríl 2017. Allsherjar - og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar fumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, 436.mál. Óskað er umsagnar sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar
16.
Segulspjöld
Málsnúmer 201705061
Þann 1. maí 2017 breytist útivistartími barna og unglinga samkvæmt lögum um barnavernd 92.gr. nr. 80/2002 en þar segir að börn, 12 ára og yngri, megi ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir.
Félagsmálaráð Dalvíkurbyggðar hefur tekið ákvörðun um að gefa öllum grunnskólabörnum í Dalvíkurbyggð segulspjöld um útivistareglurnar.
17.
Innleiðing á velferðartækni
Málsnúmer 201705078
Tekið fyrir erindi frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar dags. 8. maí 2017 þar sem Velferðarsvið Reykjavíkurborgar, Öldrunarheimili Akureyriar og Velferðarráðuneytið bjóða til málþings um Connect verkefnið.
Lagt fram til kynningar
18.
Ábendingar varðandi sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga
Málsnúmer 201705079
Tekið fyrir erindi frá Velferðarráðuneytinu dags. 8. maí 2017 þar sem Félags- og jafnréttismálaráðherra beinir því til sveitarfélaga að taka tillit til leiðbeinandi reglna Velferðarráðuneytisins um sérstakan húsnæðisstuðning um að meta skuli þörf fyrir slíkan stuðning á grundvelli framfærslubyrði og félagslegra aðstæðna í stað þess að byggja einungis á hlutlægum tekju- og eignaviðmiðum.Nú hefur komið í ljós að framkvæmd sumra sveitarfélaga við ákvörðun sérstaks húsnæðisstuðnings er með þeim hætti að sérstakar húsnæðisbætur lífeyrisþega almannatrygginga eru lægri en áður og lækka jafnvel umtalsvert samanborið við þann stuðning sem sveitarfélagið veitti þeim áður með sérstökum húsaleigubótum. Velferðarráðuneytið bendir á að samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga þarf ákvörðun um sérstakan húsnæðisstuðing að byggjast á heildarmati á aðstæðum umsækjanda, en ekki einungis á hlutlægum tekju- og eignaviðmiðum. Meta þarf hvort um sé að ræða sérstaklega þunga framfærslubyrði eða aðrar félagslegar aðstæður sem leitt geta til þess að þörf fyrir stuðning sé meiri eða minni en hlutlæg viðmið gefa til kynna. Ef þessir þættir eru ekki metnir verður vandséð að sveitarfélag hafi sinnt rannsóknarskyldu sinni við töku ákvörðunar um sérstakan húsnæðisstuðning. Félags- og jafnréttismálaráðherra beinir því þess vegna til sveitarfélaganna að tekið verði til leiðbeinandi reglna velferðarráðuneytisins hvað þetta varðar til þess að þessum markmiðum um heildarmat verði náð.
Lagt fram til kynningar. Félagsmálaráð Dalvíkurbyggðar setti sér reglur í upphafi árs um sérstakan húsnæðisstuðning og sér félagsmálaráð ekki ástæðu til að breyta þeim reglum að svo stöddu.