Fara í efni

Félagsmálaráð

198. fundur
12. apríl 2016 kl. 08:15 - 11:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Silja Pálsdóttir formaður
Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
Viktor Már Jónasson Aðalmaður
Elísa Rán Ingvarsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
Þórhalla Karlsdóttir Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Franklín Karlsdóttir Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201604007
Trúnaðarmál - 201604007
Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201604039
Trúnaðarmál - 201604039
Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201604040
Trúnaðarmál - 201604040
Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201604045
Trúnaðramál - 201604045
Bókað í trúnaðarmálabók
5.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201603090
Trúnaðarmál - 201603090
Bókað í trúnaðarmálabók
6.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201604005
Trúnaðarmál - 201604005
Bókað í trúnaðarmálabók
7.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201602153
Trúnaðarmál - 201602153
Bókað í trúnaðarmálabók
8.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201604026
Trúnaðarmál - 201604026
Bókað í trúnaðarmálabók
9.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201604056
Trúnaðarmál - 201604056
Trúnaðarmál skráð í trúnaðarmálabók
10.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201604031
trúnaðarmál - 201604031
Bókað í trúnaðarmálabók
11.
Öldungarráð
Málsnúmer 201509033
Umfjöllun um öldungaráð var lögð fyrir á 190 fundi félagsmálaráðs þann 10. september 2015 þar sem bókað var: "Félagsmálaráð vill standa vel að undirbúningi þessa ráðs og felur starfsmönnum félagsmálasviðs að afla frekari upplýsinga og móta tillögur samkvæmt umræðum á fundi." Starfsmenn leggja til að skipaðir verði 2 sveitarstjórnarmenn í ráðið og 3 fulltrúar frá félagi eldri borgara. Starfsmenn leggja einnig til að kynning á ráðinu verði lögð fyrir byggðarráð þar sem taka þarf ákvarðanir um stjórnskipun ráðsins.
Félagsmálaráð vísar málinu til byggðarráðs og óskar eftir því að félagsmálastjóri fylgi málinu eftir.
12.
Forvarnir
Málsnúmer 201604057
Félagsmálastjóri greindi frá því að fíkniefnalögreglan á Akureyri hefur samþykkt að bjóða upp á fræðsluerindi í Dalvíkurbyggð miðvikudaginn 27.apríl 2016. Fyrirlesturinn mun verða öllum opinn, sérstaklega höfðað til foreldra.
Félagsmálaráð fagnar því að þessi fræðsla sé komin á dagskrá og hvetur bæjarbúa til að mæta og fræðast um þessi mál enda sé hér um alvarlegt mál að ræða. Kostnaður vegna fræðsluerindis er tekinn af lið 02-32.
13.
Mannréttindastefnan
Málsnúmer 1206035
Félagsmálastjóri lagði fram ný drög að mannréttindarstefnu og aðgerðaráætlun fyrir árin 2014-2018.
Félagsmálaráð samþykkir mannréttindastefnuna og aðgerðaráætlunina eins og hún liggur fyrir. Mannréttindarstefnunni og aðgerðaráætlun er vísað áfram til sveitarstjórnar til samþykktar.
14.
Hjólasöfnun 2016
Málsnúmer 201604048
Félagsmálastjóri leggur fram tölvupóst dags. 16. mars 2016 frá Hjólasöfnun Barnaheilla. Þar kemur fram að Barnaheill - Save the Children á Íslandi hefji von bráðar hjólasöfnun sína í fimmta sinn. Hjólasöfnunin er unnin í samstarfi við Æskuna. Markmið hjólasöfnunarinnar er að börn í félagslega eða fjárhagslega erfiðri stöðu eignist reiðhjól til þess að þau megi eflast félagslega sem heilsufarslega, jafnt líkamlega sem andlega, og ekki síst svo þau geti með auknum hætti verið þátttakendur í samfélagi barna. Almenningur er hvattur til að gefa reiðhjól í söfnunina. Hjólasöfnunin stendur til loka aprílmánaðar. Barnaheill vill nú bjóða öllum sveitarfélögum landsins að taka þátt í verkefninu og fá send til sín umsóknareyðublöð og gera þannig skjólstæðingum allra sveitarfélaga kleift að sækja um hjól úr söfnuninni.
Lagt fram til kynningar
15.
(Möguleg)fórnarlömb mansals og velferðarþjónusta
Málsnúmer 201604049
Félagsmálastjóri lagði fram tölvupóst dags. 23. mars 2016 frá Velferðarráðuneytinu þar sem kynnt er að aðgerðaráætlun innanríkisráðherra gegn mansali hafi verið samþykkt í ríkisstjórn vorið 2013. Á grundvelli áætlunarinnar hafi fræðsluhópur staðið fyrir sameiginlegum fræðslufundum lögreglu, félagsþjónustu og sveitarstjórna um lagalega þætti mansals, einkenni hugsanlegra fórnarlamba og möguleg úrræði sem standa til boða. Ekki hefur fræðslan farið fram alls staðar og er því í bréfinu kynnt hvernig standa skal að málum vakni grunur um mansal.
Lagt fram til kynningar
16.
Félagsþjónustuskýrsla málefna fatlaðra 2015
Málsnúmer 201603087
Hagstofuskýrsla vegna málefna fatlaðra fyrir árið 2015.
Frestað
17.
Samstarfssamningur
Málsnúmer 201604055
Samstarfsamningur milli Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar í málefnum fatlaðra.
Frestað