Fara í efni

Félagsmálaráð

191. fundur
21. september 2015 kl. 19:00 - 22:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Silja Pálsdóttir formaður
Viktor Már Jónasson Aðalmaður
Elísa Rán Ingvarsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
Þórhalla Karlsdóttir Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Eyrún Rafnsdóttir Sviðsstjóri félagsmálasviðs
Dagskrá
1.
Starfsáætlun 2016
Málsnúmer 201509134
Félagsmálastjóri kynnti starfsáætlun félagsþjónustu ársins 2016.
Félagsmálaráð samþykkir starfsáætlun ársins fyrir félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2016.
2.
fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer 201506052
Félagsmálastjóri kynnti drög að fjárhagsáætlun félagsmálasviðs fyrir árið 2016. Félagsmálastjóri fór yfir frávik frá fjárhagsáætlun en ljóst er að 18.000.000 króna gat er frá ramma að áætlun. Útskýringar á þessum frávikum eru aðallega launaskrið, minni tekjur frá Rótum bs, aukin fjárhagsaðstoð, 50% starf í heimilisþjónustu sbr. viðauka frá 17. september 2016, aukin þörf fyrir liðveislu, bæði fyrir börn og fullorðna auk sumarvinna fyrir ungmenni með fötlun.
Félagsmálaráð fór yfir drög að áætlun sviðsins. Ljóst er að úthlutaður rammi fyrir árið 2016 dugar ekki í þjónustuna fyrir árið 2016 og samþykkir félagsmálaráð áætlun með fyrirvara um viðauka.
3.
Forvarnarstefna
Málsnúmer 201112012
Vinnuhópur um forvarnarmál lagði fram fundargerð frá fundi hópsins frá september 2015. Einnig lagði vinnuhópurinn fram bréf til samstarfsaðila en halda á fund um miðjan október þar sem félögin kynna sín forvarnarverkefni og félagsmálaráð leggur fram áherslur ráðsins að forvörnum fyrir árið 2016
Félagsmálaráð samþykkir fundargerðina og bréf til samstarfsaðila.