Fara í efni

Félagsmálaráð

184. fundur
13. janúar 2015 kl. 13:00 - 15:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Silja Pálsdóttir Aðalmaður
Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
Friðjón Árni Sigurvinsson Aðalmaður
Viktor Már Jónasson Aðalmaður
Elísa Rán Ingvarsdóttir Aðalmaður
Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
Þórhalla Karlsdóttir Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Franklín Karlsdóttir Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201501038
Trúnaðarmál 201501038
Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201501039
Trúnaðarmál 201501039
Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201412148
Trúnaðarmál 201412148
Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201412154
Trúnaðarmál 201412154
Bókað í trúnaðarmálabók
5.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201412156
Trúnaðarmál - 201412156
Bókað í trúnaðarmálabók
6.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201501062
Trúnaðarmál 201501062
Bókað í trúnaðarmálabók
7.
Jólaaðstoð 2014-úthlutun
Málsnúmer 201501053
Trúnaðarmál 201501053
Félagsmálaráð þakkar veitt framlag frá einstaklingum og fyrirtækjum. Slík aðstoð er ómetanleg.
8.
Fundargerðir þjónustuhóps
Málsnúmer 201410285
Félagsmálastjóri fór yfir fundargerðir þjónustuhóps Róta bs.
Lagt fram til kynningar
9.
Fjárbeiðni Stígamóta fyrir árið 2015
Málsnúmer 201412143
Erindi barst dags. 23.12.2014 þar sem Stígamót óska eftir fjárstyrk fyrir árið 2015. Rekstur Stígamóta er algjörlega háður skilningi og stuðningi opinberra aðila og því óska Stígamót eftir samstarfi við sveitarstjórnir landsins. Stígamót hafa í mismiklum mæli boðið uppá þjónustu við fólk utan höfuðborgarsvæðisins.
Félagsmálaráð hafnar erindinu en mun áfram styðja við systursamtök Stígamóta, Aflið á Akureyri.
10.
Bréf um skyldur sveitarfélaga samkvæmt jafnréttislögum
Málsnúmer 201408024
Jafnréttistofa sendir bréf til þess að minna á skyldur sveitarfélaga samkvæmt jafnréttislögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er varðar sveitarstjórnir.
Lagt fram til kynningar
11.
Bréf til fulltrúa sveitarfélaga sem fara með jafnréttismál
Málsnúmer 201411103
Félagsmálastjóri lagði fram bréf frá Jafnréttisstofu dags 4.nóvember 2014 frá landsfundi jafnréttisnefnda til fulltrúa sveitarfélaga sem fara með jafnréttismál.
Lagt fram til kynningar
12.
Frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga
Málsnúmer 201412063
Félagsmálastjóri lagði fram frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga, frá því í desember 2014 og var hægt að skila inn ályktunum til 11.desember sl. þar sem fram kemur að við endurmat fasteignamats í vor var ný aðferðarfræði notuð við útreikning fasteignamats á hluta C-eigna. Um er að ræða verslunar-skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði. Í einhverjum tilfellum breytist matið töluvert. Að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök atvinnurekanda var ákveðið að innleiða þetta mat í áföngum, sem stofn til álagningar fasteignaskatts. Stofninn verður hlutfall af mati fyrra árs og álagningarárs næstu tvö árin.
Lagt fram til kynningar
13.
Frumvarp um virka velferðarstefnu
Málsnúmer 201501054
Samband Íslenskra sveitarfélaga bendir á áhugaverða frétt á vef sínum um virka velferðarstefnu. Í fréttinni kemur fram að Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Efni frumvarpsins er í anda virkrar velferðarstefnu og snýr það að atvinnuleitendum sem hafa fullnýtt eða munu að óbreyttu fullnýta rétt sinn til atvinnuleysisbóta á komandi misserum. Meginmarkmið frumvarpsins er að virkja atvinnuleitendur til þátttöku að nýju á vinnumarkaði og koma í veg fyrir að langvarandi atvinnuleysi leiði af sér óvinnufærni og aðra neikvæða félags- og heilsufarsþætti.
Lagt fram til kynningar
14.
Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa; endurskoðun í upphafi kjörtímabils.
Málsnúmer 201408022
Félagsmálarstjóri lagði fram rafbréf frá sveitarstjórn dags 12.12.14 um siðarreglur fyrir kjörna fulltrúa; endurskoðun í upphafi kjörtímabils. Kveðið er á um í reglunum að þær séu kynntar fyrir starfsmönnum og íbúum Dalvíkurbyggðar.
Félagsmálaráð hefur kynnt sér reglurnar og gerir ekki athugasemdir við þær.
15.
Frumvarp til laga um húsaleigubætur
Málsnúmer 201412023
Félagsmálastjóri lagði fram bréf frá nefndarsvið Alþingis dags. 2.desember 2014 þar sem Velferðarsvið Alþingis sendir til umsagnar frumvarp húslaleigubóta (réttur námsmanna),211.mál.
Lagt fram til kynningar
16.
Forvarnarstefna og aðgerðaráætlun
Málsnúmer 201404122
Félagsmálaráð fór yfir forvarnarstefnuna.
Félagsmálaráð skipar þrjá fulltrúa í vinnuhóp til þess að halda utan um forvarnarstefnuna og koma á fundi með samstarfsaðilum.
17.
Frávikagreining félagsmálasviðs 2014
Málsnúmer 201411105
Félagsmálastjóri lagði fram bréf til byggðarráðs um viðauka vegna fjárhagsáætlun á félagsmálasviði fyrir árið 2014.
Lagt fram til kynningar