Fara í efni

Félagsmálaráð

178. fundur
12. maí 2014 kl. 14:00 - 16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir Formaður
Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
Heiða Hilmarsdóttir Aðalmaður
Marinó Þorsteinsson Aðalmaður
Rósa Ragúels Aðalmaður
Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
Þórhalla Karlsdóttir Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Eyrún Rafnsdóttir Sviðsstjóri félagsmálasviðs
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201405008
Trúnaðarmál - 201405008
Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201405011
Trúnaðarmál - 20140511
Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201405050
Trúnaðarmál -201405050
Bókað í túnaðarmálabók
4.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201405009
Trúnaðarmál - 201405009
Bókað í trúnaðarmálabók
5.
Til umsagnar: mótun stefnu til að draga úr skaðlegum áhrifum vímueyfnaneyslu, 335. mál.
Málsnúmer 201404021
Félagsmálastjóri lagði fram rafbréf frá nefndarsviði Alþingis dags. 4. apríl 2014 þar sem send var til umsagnar tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum vímuefnaneyslu, 335. mál.
Lagt fram til kynningar
6.
Áætluð kostnaðarhlutdeild Jöfnunarsjóðs vegna almennra húsaleigubóta 2014
Málsnúmer 201402074
Félagsmálastjóri lagði fram bréf frá Innanríkisráðuneytinu sem barst dags. 21. febrúar 2014 um nýja reglugerð nr 1205/2012 um breytingu á reglugerð velferðarráðuneytisins um húsaleigubætur nr. 118/2003 með síðari breytingum. Með breytingunni á reglugerðinni, sem einkum nær til tekjuskerðingarmarka, tekjuskerðingarhlutfalls og grunnfjárhæðar bótanna voru stigin fyrstu skrefin í átt að nýju húsnæðisbótakerfi sem stendur til að innleiða í áföngum.
Lagt fram til kynningar.
7.
Rekstur orlofssjóðs og skýrsla nefndar 2013
Málsnúmer 201405092
Félagsmálastjóri lagði fram bréf frá Olofssjóði húsmæðra í Eyjafirði dags. 12.05.2014. Gert var grein fyrir rekstri orlofssjóðs árið 2013 sem og skýrsla Orlofsnefndar.
Lagt fram til kynningar.
8.
Styrkbeiðni vegna málþings
Málsnúmer 201403138
Félagsmálastjóri lagði fram erindi frá Blátt áfram dags. 14.03 2014. Óskað var eftir styrk til að halda afmælisráðstefnu í apríl.
Félagsmálaráð hafnar erindinu.
9.
Ferlimál - skólaakstur nk. vetur fyrir framhaldsskólanemendur 2014
Málsnúmer 201405091
Farið var yfir reglur um akstur fatlaðra framhaldsskólanemenda sem búa í dreifbýli Dalvíkurbyggðar.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum að vinna í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
10.
Lóðasláttur - niðurgreiðsla
Málsnúmer 201311270
Félagsmálastjóri fór yfir drög að reglum um niðurgreiðslu á lóðaslætti til elli- og örorkulífeyrisþega, fjölda einstaklinga sem fékk slátt árið 2013, upplýsingar um verktaka og greiðslur á lóðaslætti árið 2014 sem og skiptingu 400.000 króna áætlaðri niðurgreiðslu sbr. 678 fund byggðarráðs.
Félagsmálaráð vísar reglum og hugmyndum um gjaldskrá til byggðarráðs til umfjöllunar.
11.
Leiga- félagslegar íbúðir
Málsnúmer 201405093
Félagsmálastjóri fór yfir biðlista yfir íbúðir, vísitöluhækkun húsaleigu og rekstur félagslega íbúðakerfisins.
Lagt fram til kynningar.
12.
húsaleigusamningar
Málsnúmer 201405095
Félagsmálastjóri fór yfir húsaleigusamninga sveitarfélagsins, ábyrgð og skyldur leigjenda og sveitarfélagsins
Félagsmálaráð felur starfsmönnum að breyta húsaleigusamningum í samræmi við umræður á fundi.
13.
Mannréttindastefnan
Málsnúmer 1206035
Félagsmálastjóri fór yfir vinnu vinnuhóps sem var að vinna drög að nýrri mannréttindastefnu sveitarfélagsins
Félagsmálaráð felur vinnuhópnum að vinna áfram að frágangi mannréttindastefnu Dalvíkurbyggðar og leggja málið fyrir á næsta fundi ráðsins.