Félagsmálaráð
172. fundur
17. september 2013
kl.
08:00
-
10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Heiða Hilmarsdóttir
Aðalmaður
Marinó Þorsteinsson
Aðalmaður
Rósa Ragúels
Aðalmaður
Hildur Birna Jónsdóttir
Varaformaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Formaður
Eyrún Rafnsdóttir
Sviðstjóri
Þórhalla Karlsdóttir
Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Franklín Karlsdóttir
Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók
Frestað
2.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók
samþykkt
3.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók
Hafnað
4.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók
Samþykkt
5.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók
Hafnað
6.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók
Hafnað
7.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók
Samþykkt
8.
Opið bréf um nauðungarsölur
Tekið fyrir bréf frá Hagsmunasamtökum heimilanna sem barst í rafpósti þann 24. maí 2013, þessu erindi er vísað frá Byggðarráði, 665. fundi ráðsins þann 6. júní 2013. Fram kemur m.a. í bréfinu að Hagsmunasamtök heimilanna beina þeirri áskorun til sveitarfélaga á landsvísu að hefja sem fyrst aðgerðir til að stemma stigu við heimilisleysi í sveitarfélaginu sem rekja má til skorts á aðgæslu að réttinum neytenda við nauðungarsölur og aðrar fullnustuaðgerðir.
Lagt fram til kynningar
9.
Landsfundur jafnréttisnefnda 2013
Lagt var fram erindi frá Velferðarráðuneytinu frá 14. júní 2013 þar sem kynntur var landsfundur jafnréttisnefnda, sem haldinn verður á Hvolsvelli 27. september n.k.
Nefndarmenn félagsmálaráðs sjá sér ekki fært um að sækja landsfundinn en óska eftir að starfsmenn athugi hvort hægt verði að fá fundinn sem fjarfund.
10.
Bæklingur um úrræði vegna heimilisofbeldi
Lagt var fram bréf frá Velferðarráðuneytinu, frá 5. júlí 2013 þar sem kynntur er bæklingur, sem unninn var fyrir Suðurnesin á vegum Suðurnesjavaktarinnar um úrræði vegna heimilsofbeldis. Bæklingurinn er á íslensku, ensku og pólsku.
Lagt fram til kynningar
11.
Mál 6,7 og 25 til umsagnar frá Velferðarráðuneyti
Lagður var fram rafpóstur frá Nefndarsviði Alþingis frá 26. júní 2013. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar þrjú frumvörp til laga. Það eru: Frumvarp til laga um almannatryggingar og málefni aldraðra, 25. málFrumvarp til laga um slysatryggingar almannatrygginga (heildarlög), 6. málFrumvarp til laga um lífeyrisréttindi almannatrygginga og félagslegur stuðningur (heildarlög), 7. mál
Lagt fram til kynningar
12.
Fjárhagsáætlun 2014; Ósk um gerð styrktarsamnings til þriggja ára.
Lagt var fram erindi frá 672. fundi Byggðarráðs Dalvíkurbyggðar frá 5. september 2013. Erindið er frá stjórn Félags eldri borgara, dagsett þann 29. ágúst, þar sem fram kemur beiðni um styrktarsamning til þriggja ára þannig að árlegur styrkur nemi kr. 500.000,- Erindinu er vísað til félagsmálaráðs og menningarráðs til afgreiðslu.
Félagsmálaráð lýsir yfir vilja sínum til að gera styrktarsamning til 3 ára við félag eldri borgara að upphæð 300.000 pr. ár en fjárhagsrammi ársins 2014 rúmar ekki þá upphæð. Þar af leiðandi vísar félagsmálaráð málinu til byggðaráðs.
13.
Fjárhagsáætlun 2014
Lögð voru fram drög að fjárhagsáætlun félagsmálasviðs sem og félagslega íbúðakerfisins.Einnig voru lögð fram drög að starfsáætlun sviðsins
Félagsmálastjóri kynnti drög að fjárhagsáætlun og starfsáætlun fyrir málaflokka 02 (félagsþjónustu) og 57 (félagslegar íbúðir) fyrir árið 2014. Félagsmálaráð gerir ekki athugasemdir við drögin og felur félagsmálastjóra að vinna að áætluninni samkvæmt umræðum á fundinum.