Fara í efni

Félagsmálaráð

168. fundur
9. apríl 2013 kl. 08:00 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Heiða Hilmarsdóttir Aðalmaður
Marinó Þorsteinsson Aðalmaður
Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
Valdís Guðbrandsdóttir Formaður
Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
Þórhalla Karlsdóttir Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Franklín, Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Félagslega íbúðakerfið - fjöldi o.fl.
Málsnúmer 201301033
Arnheiður Hallgrímsdóttir, starfsmaður félagsmála-sviðs Dalvíkurbyggðar kom á fundinn undir þessum lið og kynnti fyrir nefndarmönnum stöðuna á félagslegum íbúðum, húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur. Fram kom í máli Arnheiðar að sveitarfélagið á 33 íbúðir, allar í útleigu.
Félagsmálaráð leggur til að sérstakar húsaleigubætur verði frekar auglýstar á heimasíðu sveitarfélagsins.  
2.
Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-2014
Málsnúmer 201208047
Margrét Víkingsdóttir upplýsingafulltrúi Dalvíkurbyggðar kom á fundinn undir þessum lið og kynnti fyrir nefndarmönnum heimasíðu sveitarfélagsins með tilliti til þarfa sjóndapra, fatlaðra o.s.frv.
Félagsmálaráð lýsir ánægju sinni með þessa nýbreytni á heimasíðu sveitarfélagsins.
4.
Forvarnarstefna - drög
Málsnúmer 201112012
Marinó formaður starfshóps Forvarnarstefnunnar kynnti lauslega hugmyndir hópsins um forvarnarstefnuna.  Ákveðið var að boða til aukafundar um stefnuna mánudaginn 22. apríl kl. 16:15 
5.
Ráðstefna í Háskólanum á Akureyri; Zonta segir nei: stöðvum ofbeldi gegn konum
Málsnúmer 201304010
Félagsmálastjóri lagði fram erindi frá Jafnréttisstofu um ráðstefnu sem ber yfirskriftina Zonta segir nei: Stöðvum ofbeldi gegn konum. Námskeiðið verður haldið 19. apríl næstkomandi í Háskólanum á Akureyri
Heiða Hilmarsdóttir mun sækja ráðstefnuna
6.
Félagsþjónustuskýrslan 2012
Málsnúmer 201304011
Félagsmálastjóri kynnti Hagstofuskýrslu Félagsþjónustunnar fyrir árið 2012
Lagt fram til kynningar