Félagsmálaráð
166. fundur
15. janúar 2013
kl.
08:15
-
10:00
stóra fundaherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Heiða Hilmarsdóttir
Aðalmaður
Marinó Þorsteinsson
Aðalmaður
Rósa Ragúels
Aðalmaður
Hildur Birna Jónsdóttir
Varaformaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Formaður
Eyrún Rafnsdóttir
Sviðstjóri
Þórhalla Karlsdóttir
Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir
Þroskaþjálfi
Dagskrá
2.
Mokstur hjá fötluðum, öryrkjum og ellilífeyrisþegum
Fjölmargir hafa haft samband og óskað eftir því að mokað yrði fyrir þá vegna þess að þeir hafi ekki getu til þess. Um er að ræða fatlaða, öryrkja og ellilífeyrisþega. Félagsmálastjóri er búinn að kynna sér hvernig þessu er háttað í öðrum sveitarfélögum. Önnur sveitarfélög í kringum okkur eru ekki að sinna þessum mokstri fyrir einstaklinga. Einstaklingar þurfa sjálfir að kaupa sér þann mokstur.
Félagsmálaráð samþykkir að ekki verður hægt að verða við beiðnum um mokstur heimreiða, bílaplana og gangstíga frá götu að útidyrahurðum.
3.
Framfærslukvarði fjárhagsaðstoðar
Upphæðir fjárhagsaðstoðarinnar eru nú fyrir einstakling 128.628,- og hjón 205.805,- krónur. Liðir voru hækkaðir um 4.5% á milli ára við gerð fjárhagsáætlunar og samkvæmt þeirri hækkun á fjáhagsaðstoð yrðu upphæðirnar; fyrir einstaklinga: 134.416fyrir hjón: 215.066sameiginlegt heimilishald: 80.650neyðaraðstoð: 33.604
Félagsmálaráð samþykkir þessa hækkun.
4.
Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012-2014
Félagsmálastjóri lagði fram útdrátt úr framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks til ársins 2014 um verksvið sveitarfélagsins í þessari áætlun. Sveitarfélagið skal viðhafa aðgerðir hvað varðar A. aðgengismál í sveitarfélaginu,C. Hluti hvað varðar félagslegar vernd/sjálfstætt lífG. Menntun, hvað varðar samfellu milli skólastigaH. Þátttöku í félagslífi barna og ungmenna
Félagsmálaráð vísar útdrættinum til bæjarráðs til kynningar.
5.
Fundur um jafnrétti og bann við mismunun
Félagsmálastjóri lagði fram tölvubréf frá 7. janúar 2013 um að Mannréttindaskrifstofa Íslands og Jafnréttisstofa bjóði upp á fræðslu um jafnrétti og tilskipanir ESB um bann við mismunun. Markmið fundarins er að kynna meginreglur tilskipanna og skýra hugtakið mismunun. Einnig verður fjallað um fjölþætta mismunun. Vefkefnið er fjármagnað af félags- og vinnumálaáætlun Evrópusambandsins og er ráðinu að kostnaðarlausu.
Félagsmálaráð felur félagsmálastjóra að óska eftir fræðslufundi um jafnrétti og tilskipanir ESB um bann við mismunun.
6.
Drög að reglum um heimilisþjónustu
Félagsmálastjóri lagði fram drög að nýjum reglum um heimilisþjónustu Dalvíkurbyggðar.
Félagsmálaráð samþykkir reglurnar og samþykkir einnig að gerð verði gjaldskrá varðandi akstur samkvæmt umræðum á fundinum.
7.
Félagslega íbúðakerfið - fjöldi o.fl.
Kynningu á félagslegu íbúðakerfinu var frestað til næsta fundar.
Frestað til næsta fundar.
8.
Forvarnarstefna - drög
Frestað til næsta fundar.
9.
Vinnusamningar - AMS
Huga þarf að vinnusamningum fyrir einstaklinga í samfélaginu bæði núna og svo í sumar. Núna bíður einn og jafnvel tveir einstaklingar eftir að komast á slíka samninga. Einnig er hægt að gera vinnusamninga við þá sem eru atvinnulausir og eiga ekki rétt á eða eru búnir með bótarétt sinn hjá Vinnumálastofnun.
Félagsmálaráð vísar erindinu til bæjarráðs og óskar eftir að félagsmálastjóri fylgi málinu eftir.
10.
Mannréttindastefnan
Félagsmálastjóri
Frestað til næstu fundar
11.
Fundargerðir þjónustuhóps lok árs 2012
Félagsmálastjóri lagði fram fundargerðir þjónustuhóps í málefnum fatlaðra frá september til desember 2012.
Lagt fram til kynningar