Félagsmálaráð
159. fundur
15. maí 2012
kl.
08:00
-
10:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Heiða Hilmarsdóttir
Aðalmaður
Marinó Þorsteinsson
Aðalmaður
Rósa Ragúels
Aðalmaður
Hildur Birna Jónsdóttir
Varaformaður
Eyrún Rafnsdóttir
Embættismaður
Guðný Jóna Þorsteinsdóttir
Aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir
Ritari
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Franklín Karlsdóttir
Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Frá íbúum við Lækjarstíg vegna fyrirhugaðrar skammtímavistunar í Lækjarstíg.
Bréf barst frá íbúum við Lækjarstíg vegna fyrirhugaðrar skammtímavistunar í Lækjarstíg. Félagsmálastjóri og bæjarstjóri hafa svarað erindinu
Lagt fram til kynningar
2.
Styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 2012
Strykbeiðni barst frá Aflinu um að stykja reksturinn fyrir árið 2012.
Félagsmálaráð samþykkir að veita styrk til reksturs Aflsins fyrir árið 2012 að upphæð 100.000,- krónur tekið af lið 02-80-9110.
3.
Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks
Erindi barst frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir upplýsingum um húsnæðismál í málefnum fatlaðara. Erindi hefur verið tekið fyrir í þjónustuhópi SSNV, þar sem þjónstuhópur hefur lagt til að verkefnisstjóri svari erindinu fyrir hönd sveitarfélaga í byggðarsamlaginu.
Félagsmálaráð samþykkir að fela verkefnastjóra í málefnum fatlaðra hjá SNNV að svara erindinu.
4.
Ráðstefna: Samstarf skóla og barnaverndar
Erindi barst frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga um ráðstefnu um samvinnu skóla og barnaverndar. Ráðstefnan fjallar um stöðu þeirra barna sem fá þjónustu í barnaverndarkerfinu gagnvart skóla og menntun, ekki síst fósturbarna og barna á meðferðarheimilnum og mikilvægi samvinnu þessara kerfa
Félagsmálaráð felur Guðný Jónu að kynna þetta í grunnskólanum og að grunnskóli og félaþjónustan sitji ráðstefnuna í fjarfundi.
5.
Umsóknir í velferðarsjóð
Erindi barst frá Velferðarsjóði barna. Undanfarin ár hefur sjóðurinn veitt styrki til sumargjafa og er óskað tilnefninga frá félagsþjónustu um fjölskyldur sem gætu nýtt sér slíkan styrk. Félagsmálastjóri hefur sent erindi og óskað eftir styrkjum.
Lagt fram til kynningar
6.
Forvarnarhópur - fundargerðir o.fl.
Félagsmálastjóri kynnti nefndarmönnum áframhaldandi forvarnarvinnu vegna fiskidagsins mikla
Lagt fram til kynningar
7.
heimsókn í Lengdu viðveruna
Frestað til næsta fundar þann 12.júní 2012 og á þá að hefja fund í lengdu viðverunni.
8.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál bókuð í trúnaðarmálabók
9.
Trúnaðarmál
Félagsmálaráð hafnar erindinu.
10.
Trúnaðarmál
Félagsmálaráð hafnar erindinu.  
11.
Trúnaðarmál
Félagsmálaráð samþykkir styrkveitingu.
12.
Trúnaðarmál
Félagsmálaráð samþykkir að veita styrkinn.
13.
Trúnaðarmál
Félagsmálaráð hafnar erindinu.