Fara í efni

Félagsmálaráð

152. fundur
15. nóvember 2011 kl. 08:00 - 10:00
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Eyrún Rafnsdóttir Félagsmálastjóri
Dagskrá
1.
Styrkir til sveitarfélaga vegna aukinnar þjónustu við langveik börn og börn með ADHD
Málsnúmer 201110110
Félagsmálastjóri lagði fram bréf frá Velferðarráðuneytinu þar sem auglýst er eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Styrkir verða veittir á grundvelli samstarfssamnings félags- og tryggingamálaráðuneytis, mennta- og menningarmála­ráðu­­neytis, heilbrigðisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem var undirritaður 4. desember 2009. Sveitarfélög geta sótt um styrki vegna verkefna á eigin vegum eða sem unnin eru í samstarfi við einstaklinga eða félagasamtök.

<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p> </o:p>

Tekið verður við einni sameiginlegri umsókn frá hverju sveitarfélagi.

Umsókn unnin í samvinnu við fræðslusvið.

2.
Vímulaus æska - foreldrahús
Málsnúmer 201110117
Tekið fyrir erindi frá Vímulausri Æsku sem vill nú á 25 ára afmælisárinu bjóða öllum sveitarfélögum landsins uppá kynningu á starfsemi samtakanna og hvernig hún getur nýst landsbyggðinni betur.Samtökin sinna námskeiðahaldi og ráðgjafaþjónustu fyrir fjölskyldur sem eiga börn og unglinga í einhverskonar vanda. Á fyrri árum var að mestu unnið með vímuefnavanda unglinga. Í dag er þjónustan fjölbreyttari og er einnig unnið með ýmiskonar önnur vandamál, t.d einelti, félagslega erfiðleika og hegðunarvanda. Þó að höfuðstöðvar séu á Reykjavíkursvæðinu þá er mikil þjónusta í boði sem einnig er hægt að nýta á landsbyggðinni. Samtökin hafa í gegnum tíðina staðið að fræðslu og námskeiðahaldi víðsvegar á landinu í samstarfi við foreldrafélög, skólayfirvöld og sveitarfélög viðkomandi staða.

Félagsmálaráð fagnar framtakinu og felur starfsmönnum félagsþjónustu að óska eftir kynningu.

3.
Frá Samhjálp; Beiðni um fjárstyrk
Málsnúmer 201111044
Erindi barst frá Kaffistofu Samhjálpar þar sem auglýstir eru happdrættismiðar til styrkar mataraðstoðinni í Samhjálp.

Félagsmálaráð hafnar erindinu.

4.
Frá Velferðarráðuneytinu; Öryggi barna
Málsnúmer 201111046
Lagt var fram erindi frá Velferðarráðuneytinu frá 1. nóvember 2011 um öryggi barna hjá dagforeldrum, framkvæmd reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005. Lögð er áhersla á að skoðaðar séu nokkar reglur í ljósi ábendinga sem velferðarráðuneytinu hefur borist að undanförnu.

Félagsmálaráð felur starfsmönnum félagsþjónustu að fara yfir reglugerð varðandi daggæslu barna í heimahúsum með tilliti til ábendinga Velferðarráðuneytisins.

5.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201111045
Arnheiður Hallgrímsdóttir kom inn á fundinn undir þessum lið.Bréf barst frá heilsugæslustöð Dalvíkur þar sem kemur fram að stöðuhlutfall í heimahjúkrun hefur lækkað úr 90% stöðugildi í 50%.Mælst er til að félagsþjónustan sinni þeim einstaklingum sem ekki fá lengur þjónustu heimahjúkrunar. Rætt var um stöðuna í heimilisþjónustunni. Eins og staðan er í dag er ljóst að það er biðlisti nú þegar eftir þjónustu og þá er ekki búið að taka tillit til þessarar auknu þjónustu sem heilsugæslan fer framá að færa yfir á félagsþjónustuna.
Bókað í trúnaðarmálabók.
8.
Sérstakar húsaleigubætur
Málsnúmer 1107041
Félagsmálaráð frestar málinu til næsta fundar.

9.
Fjárhagsaðstoð - a og b leiðin
Málsnúmer 201111049
Félagsmálaráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.