Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

998. fundur
5. október 2021 kl. 15:00 - 18:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir varamaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2022 - 2025
Málsnúmer 202105027
a) Tillögur að starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálasvið.Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálsviðs, kl. 15:07.Eyrún fór yfir og kynnti tillögur félagsmálasviðs, málaflokkur 02 - félagsþjónusta, vegna fjárhagsáætlunar 2022 og þriggja ára áætlunar 2023-2025.Eyrún vék af fundi kl. 16:01.b) Tillögur að starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og menningarsviðsUndir þessum lið kom á fund byggðaráðs Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 16:06.Gísli fór yfir og kynnti tillögur fræðslu- og menningarsviðs vegna fjárhagsáætlunar 2022 og þriggja ára áætlunar 2023-2025.Málaflokkur 04; fræðslu- og uppeldismál.Málaflokkur 05; menningarmál.Málaflokkur 06, nema vinnuskóli; íþrótta- og æskulýðsmál. b.1. Tillögur að rekstrar- og framkvæmdastyrkjum til íþróttafélaga.Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs, Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, kl. 17:05.Gísli Rúnar og Gísli kynntu tillögur að styrkjum til íþrótta- og æskulýðsfélaga vegna rekstrar og framkvæmda á árunum 2022-2025.Gísli og Gísli Rúnar véku af fundi kl. 18:00.c) Samantekt byggðaráðs vegna liða a) og b) hér að ofan.Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti eftirfarandi og meðfylgjandi vinnugögn:Yfirlit yfir stöðugildi per deild frá 2017-2022.Yfirlit yfir áætlaðan launakostnað 2022 í samanburði við fyrri ár.Yfirlit yfir fjárhagsramma 2022 í samanburði við tillögur fagsviða.
Lagt fram til kynningar.