Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

990. fundur
1. júlí 2021 kl. 13:00 - 16:48
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson varaformaður
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir varamaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Karlsrauðatorg 6
Málsnúmer 202106003
Vegagerðin leitar samstarfs við Dalvíkurbyggð um möguleg uppkaup á fasteigninni að Karlsrauðatorgi 6 til niðurrifs en það er í raun forsenda þess, að hægt verði að færa veglínuna og auka þar með vegsýn og umferðaröryggi. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 15. júní tillögu umhverfisráðs um að sveitarfélagið taki þátt í þessu samstarfsverkefni með Vegagerðinni og fól byggðaráði samtal við Vegagerðina um málið.
Þessum dagskrárlið er frestað til næsta fundar að ósk Vegagerðarinnar vegna óvænts álags út af vatnavöxtum í umdæminu.
3.
Deiliskipulag Hauganesi
Málsnúmer 201901044
Helga Íris Ingólfsdóttir, skipulags- og tæknifulltrúi kom inn á fundinn kl. 14:14.Til kynningar staða á vinnu við deiliskipulag á Hauganesi en umhverfisráð samþykkti á fundi sínum þann 21. júní samhljóða með fimm atkvæðum deiliskipulagið með lítils háttar breytingum og lagði til að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Auglýstur hefur verið kynningar- og umræðufundur meðal íbúa vegna deiliskipulagsins og verður hann haldinn í Árskógi þriðjudaginn 6. júlí nk. kl. 17:00.Rætt var um deiliskipulagið og minni háttar atriði sem koma þá til umræðu á kynningarfundinum, t.d. mikilvægi þess að gera ráð fyrir flóttaleið frá hafnarsvæðinu með ströndinni að gatnamótum við Nesveg. Helga Íris vék af fundi kl. 14:54.
Lagt fram til kynningar.
4.
Ósk um samstarf um verkefni byggingarfulltrúa
Málsnúmer 202104016
Sveitarstjóri greindi frá stöðu mála. Rætt um samstarfsmöguleika við nágrannasveitarfélögin eða að leysa málin með aðkeyptri þjónustu en núverandi byggingarfulltrúi mun hætta störfum hjá sveitarfélaginu um miðjan júlí.
Byggðaráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram með nágrannasveitarfélögunum en einnig að leita tilboða hjá fyrirtækjum um aðkeypta þjónustu um verkefni byggingarfulltrúa.
5.
Starfsemi SSNE á Tröllaskaga
Málsnúmer 202105063
Tekið fyrir erindi frá Eyþóri Björnssyni framkvæmdastjóra SSNE, dagsett 25. júní 2021 þar sem hann tilkynnir ráðningu verkefnisstjóra SSNE á Tröllaskaga.Anna Lind Björnsdóttir hefur verið ráðin í starfið. Gert er ráð fyrir að hún hefji störf 9. ágúst nk. Hún er með meistaragráðu í náttúrutengdri ferðaþjónustu frá Norwegian University of Life Science og Bs gráðu í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum.
Lagt fram til kynningar.
7.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202106166
Bókað í trúnaðarmálabók
8.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202106161
Bókað í trúnaðarmálabók.
9.
Fundargerðir stjórnar Dalbæjar 2021
Málsnúmer 202102139
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Dalbæjar frá 6. fundi ársins þann 6. maí 2021.
Lagt fram til kynningar.
10.
Fundargerðir SSNE 2021
Málsnúmer 202101060
Lagðar fram til kynningar fimm fundargerðir stjórnar SSNE frá 23.-27. fundi, febrúar til júní 2021.
Lagt fram til kynningar.