Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

986. fundur
27. maí 2021 kl. 11:30 - 13:04
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson varaformaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður byggðaráðs
Dagskrá
1.
Frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa; Samkomulag vegna atvinnuástands 2021 og minnisblað um atvinnuátak.
Málsnúmer 202105118
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, kl. 11:30.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 25. maí 2021, um atvinnuátak námsmanna 2021 og samkomulag, dagsett þann 21. maí 2021, milli Dalvíkurbyggðar og Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, um störf við Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar til handa ungmennum sem verða 17 ára á árinu. Dalvíkurbyggð fékk úthlutað 5 störfum vegna atvinnuátaks ríkisstjórnarinnar fyrir námsmenn. Lagt er til að kostnaði vegna átaksins sé vísað á deild 06270 Vinnuskóla og ekki þurfi að koma til sérstakur viðauki.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir ofangreint.
2.
Frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa; Beiðni um viðauka v. styttingu vinnuviku
Málsnúmer 202105124
Tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, rafpóstur dagsettur þann 18. maí 2021, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 611.126 við fjárhagsáætlun 2021 á deild 06500 Íþróttamiðstöð vegna styttingu vinnuvikunnar.Gísli Rúnar vék af fundi kl. 11:50.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2021, viðauki nr. 10 að upphæð kr. 611.126 við deild 06500 vegna launa og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til sveitarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu.
4.
Frá UT_teymi; Fjarskiptamál - Drög að samningi við Símann
Málsnúmer 202104167
Tekið fyrir minnisblað, dagsett þann 26. maí 2021, frá UT-teymi sveitarfélagsins þar sem gert er grein fyrir verðfyrirspurn UT-teymis vegna fjarskiptamála.Lagt er til að gengið verði til samninga við Símann skv. meðfylgjandi samningsdrögum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu um að gengið verði til samninga við Símann og samþykkir jafnframt fyrirliggjandi drög að samningi við Símann.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
5.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2022 - 2025; umræður um verkefni, áherslur, forgangsröðun og stefnu vegna vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2022-2025.
Málsnúmer 202105027
Á 985. fundi byggðaráðs þann 20. maí sl. var samþykkt að halda áfram umræðum um verkefni, áherslur, forgangsröðun og stefnu í tengslum við vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2022-2025.
Til umræðu og lagt fram til kynningar.
6.
Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar, drög / endurskoðun v. skipulagsbreytinga o.fl.
Málsnúmer 202103144
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi Samþykkt um stjórn Dalvikurbyggðar og erindisbréf landbúnaðarráðs, umhverfisráðs og veitu- og hafnaráðs með breytingatillögum vegna skipulagsbreytinga, þ.e. veitu- og hafnasvið og umhverfis- og tæknisvið sameinað, er nú orðið framkvæmdasvið. Einnig eru gerðar tillögur að öðrum tæknilegum breytingum.
Til umræðu og lagt fram til kynningar.
7.
Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um aðgerðir til að auka framboð og neyslu grænkerafæðis, 612. mál.
Málsnúmer 202105095
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 18. maí sl., þar sem Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um aðgerðir til að auka framboð og neyslu grænkerafæðis, 612. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 26. maí sl.
Lagt fram til kynningar.
8.
Frá nefndasviði Alþingis, Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um endurskoðun á laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 640. mál
Málsnúmer 202105101
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 19. maí 2021, þar sem Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 640. málÞess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 26. maí sl.
Lagt fram til kynningar.