Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
978. fundur
11. mars 2021
kl.
13:00
-
14:55
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
varaformaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
formaður
Guðmundur St. Jónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Lagfæringar í sundlaug Dalvíkur
Á 974. fundi byggðaráðs þann 28. janúar sl. var til umfjöllunar lagfæringar í Sundlaug Dalvíkur. Byggðaráð samþykkti samhljóða að fela sviðsstjórum umhverfis- og tæknisviðs, veitu- og hafnasviðs, fræðslu- og menningarsviðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að leggja fyrir byggðaráð drög að samkomulagi við verktaka á grundvelli ofangreindra gagna og upplýsinga, í samræmi við umræður á fundinum.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað frá sviðsstjórum fræðslu- og menningarsviðs, veitu- og hafnasviðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 10. mars 2021, þar sem gert er grein fyrir stöðu mála.
Lagt fram til kynningar.
2.
Frá Jafnréttisstofu; Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög
Teknar fyrir tilkynningar frá Jafnfréttisstofu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettar þann 2. mars 2021, er varða áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög.
Lagt fram til kynningar og vísað til framkvæmdastjórnar og fagráða sveitarfélagsins til umfjöllunar og skoðunar.
3.
Áfallin orlofsskuldbinding 31.12.2020
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Rúna Kristín Sigurðardóttir, launafulltrúi, kl. 13:30.Launafulltrúi kynnti fyrir byggðaráði áfallna orlofsskuldbindingu Dalvíkurbyggðar miðað við 31.12.2020 í tengslum við vinnu við ársreikning 2020 og breytingar á milli áranna 2019 og 2020.Rúna vék af fundi kl. 14:00
Lagt fram til kynningar.
4.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
5.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
6.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
7.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
8.
Samningur um raforkusölu
Tekinn fyrir samningur um raforkusölu á milli Dalvíkurbyggðar og Orkusölunnar ehf.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samning við Orkusöluna ehf. og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.
9.
Vinnuhópur um Gamla skóla og Friðlandsstofu; kostnaður v. úttektar
Á 977. fundi byggðaráðs þann 1. mars sl. var sveitarstjóra falið að fá upplýsingar um kostnað við úttekt AVH. Samkvæmt upplýsingum frá sveitarstjóra þá er kostnaðurinn allt að kr. 409.500 án vsk.Á viðhaldsáætlun Eignasjóðs er gert ráð fyrir kr. 200.000 vegna Gamla skóla. Metið er að hægt sé að mæta ofangreindum kostnaði innan ramma viðhalds Eignasjóðs, ef á reynir.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreindan kostnað og felur vinnuhópnum að halda áfram með verkefnið.
10.
Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, með síðari breytingum (kosningaaldur), 272. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 2. mars 2021, þar sem Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, með síðari breytingum (kosningaaldur), 272. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. mars nk.
Lagt fram til kynningar.
11.
Frá nefndasviði Alþingis; Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (menntun og eftirlit), 562. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (menntun og eftirlit), 562. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 16. mars nk.
Lagt fram til kynningar.
12.
Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um áfengislög (sala á framleiðslustað), 504. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 22. febrúar 2021, þar sem Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendi til umsagnar frumvarp til laga um áfengislög (sala á framleiðslustað), 504. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 4. mars 2021 nk.
Lagt fram til kynningar.
13.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Fundargerðir stjórnar 2021
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 895 frá 26. febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.