Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

975. fundur
11. febrúar 2021 kl. 13:00 - 15:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Vinnuhópur um Gamla skóla og Friðlandsstofu; fundargerð 1. fundar.
Málsnúmer 202102064
Sveitarstjóri kynnti fundargerð 1. fundar vinnuhóps um Gamla skóla og Friðlandsstofu frá 12. janúar 2021.
Lagt fram til kynningar.
2.
Húsnæðisáætlun fyrir Dalvíkurbyggð; endurskoðun vinnuhóps
Málsnúmer 201901037
a) Sveitarstjóri kynnti drög að endurskoðun á húsnæðisáætlun fyrir Dalvíkurbyggð sem vinnuhópur um endurskoðun húsnæðisáætlunar hefur unnið að.b) Sveitarstjóri kynnti rafpóst frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, dagsettur þann 4. febrúar 2021, þar sem fram kemur að umsóknarfrestur um stofnframlög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum er til og með 22. febrúar 2021.
a) Byggðaráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.

b) Lagt fram til kynningar.
3.
Frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Ósk um viðauka(leiðréttingu) á fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2021
Málsnúmer 202101096
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 20. janúar 2021, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2021 á deild 04140, Krílakot, að upphæð kr. 650.000 á lykil 2810 vegna kaupa á nýrri uppþvottavél.Í gögnum með fundarboði byggðaráðs kemur fram að heimild Krílakots til búnaðarkaupa 2021, annað en tölvu- og hugbúnaður, er kr. 1.274.000 en fyrirliggjandi beiðni eftir breytingar var kr. 1.924.000. Samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að stjórnandi forgangsraði innkaupum samkvæmt búnaðarkaupum innan fjárheimildar ársins 2021.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2021, á deild 04140, Krílakot, að upphæð kr. 650.000 á lykil 2810 vegna kaupa á nýrri uppþvottavél, vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.
4.
Frá Þjóðskrá Íslands; Taka manntals og húsnæðistals 1. janúar 2021.
Málsnúmer 202012012
Tekið fyrir erindi frá Þjóðskrá Íslands, dagsett þann 27. janúar 2021, þar sem vísað er í bréf Hagstofunnar frá 27. nóvember sl. þar sem kynnt var fyrirhuguð upplýsingasöfnun vegna töku manntals sem miðast við 1. janúar 2021 og árlega þar eftir. Þar sem Þjóðskrá Íslands ber einnig skyldu til að leiðrétta ósamræmi á milli lögheimilsskráningar og raunverulegrar búsetu ætla Hagstofan og Þjóðskrá að hafa samstarf um bætta skráningu lögheimilis.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela ritara / skjalastjóra úrvinnslu málsins.
5.
Frá SSNE; Erindi til sveitarfélagsins- Hagkvæmnimat Líforkuver - beiðni um styrk
Málsnúmer 202102038
Tekið fyrir erindi frá SSNE, rafpóstur dagsettur þann 4. febrúar 2021, þar sem fram kemur að SSNE hefur í samstarfi við Vistorku sett saman erindi til sveitarfélagsins varðandi fjármögnun á hagkvæmnimati fyrir Líforkuver. Vistorka ehf. mun halda á verkefninu í samvinnu við SSNE og er fjármögnun hugsuð að hluta til frá sveitarfélögum, hluta til frá einkafyrirtækjum og að hluta til frá SSNE.
Byggðaráð frestar erindinu og felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga hjá SSNE.
6.
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn um rekstrarleyfi - Skeið lodge
Málsnúmer 202102002
Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 27. janúar 2021, þar sem óskað er eftir umsögn um sókn frá Myrian Dalstein fyrir Skeið vist - Skeid lodge, Flokkur III - Gististaður með veitingum en þó ekki áfengisveitingum.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn enda liggja fyrir umsagnir byggingafulltrúa og slökkviliðsstjóra án athugasemda.
8.
Fundargerðir starfs- og kjaranefndar - 2021; fundargerðir frá 26. janúar 2021 og 9. febrúar 2021.
Málsnúmer 202101031
Sveitarstjóri kynnti fundargerðir starfs- og kjaranefndar frá 26. janúar 2021 og 9. febrúar 2021.
Lagt fram til kynningar.
9.
Stytting vinnuviku - næstu skref
Málsnúmer 202010063
Farið yfir stöðu á verkefninu stytting vinnuviku hjá dagvinnufólki em samkomulög stofnana sveitarfélagsins eru tímabundin til loka apríl 2021 og eru upp á lágmarksstyttingu skv. kjarasamningum eða 13 mínútur á dag.
Byggðaráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda stjórnendum stofnana sveitarfélagsins útskýringar frá byggðaráði á 13 mínútna styttingunni í byrjun verkefnisins, upplýsingar um hvaða atriði er gott að hafa í huga við endurskoðun á núverandi samkomulögum og hvernig skal farið með núverandi frávik frá kjarasamningum í nýjum samkomulögum stofnana sem munu taka gildi þann 1. maí nk.

Byggðaráð leggur til við sveitarstjórn að afturkalla fullnaðarumboð starfs- og kjaranefndar á afgreiðslu samkomulaga um styttingu vinnuviku innan kjarasamninga. Samkomulögin komi til staðfestingar í sveitarstjórn.
10.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202101110
Bókað í trúnaðarmálabók.
11.
Frá Akureyrarkaupstað; Samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum - bókun bæjarstjórnar Akureyrarbæjar
Málsnúmer 202102058
Tekið fyrir erindi frá Akureyrarbæ, bréf dagsett þann 5. febrúar 2021, þar sem gert er grein fyrir bókun bæjarstjórnar Akureyrarbæjar þann 2. febrúar 2021 um samstarf Grænlands og Íslands á nýjum Norðurslóðum. Bókun bæjarstjórnar er eftirfarandi:"Bæjarstjórn leggur ríka áherslu á að hlutverk bæjarins sem miðstöðvar norðurslóðastarfs verði eflt til muna og byggt á þeim góða grunni sem fyrir er.Að mati bæjarstjórnar getur Akureyrarbær í samstarfi við stofnanir á Norðurlandi leikið lykilhlutverk í auknu og víðtækara samstarfi Íslands og Grænlands þjóðunum báðum til heilla. Allir nauðsynlegir innviðir eru til staðar á Norðurlandi og Akureyri er miðstöð málefna norðurslóða á Íslandi sem gerir svæðið mjög vel í stakk búið til að takast á við krefjandi og metnaðarfull verkefni."
Lagt fram til kynningar.
12.
Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála, 471. mál.
Málsnúmer 202102047
Tekið fyrir erindi frá nefndasviði Alþingis, rafpóstur dagsettur þann 4. febrúar 2021, þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála, 471. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 18. febrúar 2021 nk.
Lagt fram til kynningar.
13.
Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur), 478. mál.
Málsnúmer 202102048
Tekið fyrir erindi frá nefndasviði Alþingis, rafpóstur dagsettur þann 4. febrúar 2021 þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur), 478. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 18. febrúar nk.
Lagt fram til kynningar.
14.
Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 121. mál.
Málsnúmer 202101127
Tekið fyrir erindi frá nefndasviði Alþingis, rafpóstur dagsettur þann 28. janúar 2021, þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 121. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 11. febrúar nk.
Lagt fram til kynningar.
15.
Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags), 378. mál.
Málsnúmer 202101128
Tekið fyrir erindi frá nefndasviði Alþingis, rafbréf dagsett þann 28. janúar 2021, þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags), 378. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 18. febrúar nk.
Lagt fram til kynningar.
16.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Drög að umsögn - breytingar á úrgangslöggjöf
Málsnúmer 202102024
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 3. febrúar 2021, þar sem kynnt eru drög að umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp um innleiðingu hringrásarhagkerfis.
Lagt fram til kynningar.
17.
Fréttabréf SSNE, janúar 2021
Málsnúmer 202004030
Lagt fram til kynningar fréttabréf SSNE frá janúar 2021.
Lagt fram til kynningar.
18.
Frá SSNE; Fundargerðir SSNE 2021, nr. 21.
Málsnúmer 202101060
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar SSNE nr. 21 frá 27. janúar 2021.
Lagt fram til kynningar.
19.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; fundargerð stjórnar nr. 893
Málsnúmer 202002017
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 893.
Lagt fram til kynningar.
20.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; fundargerð stjórnar nr. 894.
Málsnúmer 202102014
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 894.
Lagt fram til kynningar.