Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
972. fundur
7. janúar 2021
kl.
13:00
-
15:25
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Jafnlaunavottun Dalvíkurbyggðar - kynning
Frestað.
3.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
4.
Frá umhverfis- og tæknisviði; ósk um framlengingu á tímabundinni ráðningu.
Tekið fyrir erindi frá sveitarstjóra, dagsett þann 29. desember 2020, um ósk um framlengingu á ráðningu tímabundins skrifstofumanns á Umhverfis- og tæknisvið í allt að þrjá mánuði vegna skráninga á eignum sveitarfélagsins í viðhaldsforritið Hannarr og uppfærslu á kortasjá sveitarfélagsins. Óskað er eftir að kostnaði vegna starfsins sé mætt með flutning af launaáætlun deildar 09510 vegna sumarstarfsmanna á Eigna- og framkvæmdadeild fyrir árið 2021 þar sem gert er ráð fyrir alls 15 mánuðum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda beiðni um tímabundið starf í 3 mánuði til viðbótar og felur sveitarstjóra að óska eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2021 vegna tilfærslna á launaáætlun á milli deilda, Jón Ingi Sveinsson situr hjá.
5.
Stafrænt ráð sveitarfélaga
Tekið fyrir erindi dagsett 29. desember 2020 frá stafrænu ráði sveitarfélaga þar sem óskað er eftir formlegri afgreiðslu sveitarfélaga á tillögu ráðsins sem er í þremur liðum:1. Að stofnað verði miðlægt tækniteymi Sambands íslenskra sveitarfélaga (árlegur kostnaður 45 m. kr.) sem sinna mun innleiðingu rafrænna lausna, gagnauppbyggingu og tengingu gagna gagnvart öllum sveitarfélögum landsins eins og nánar er útlistað í kynningunni.2. Að sveitarfélög greiði fjárhæð sem er 200.000 kr. föst fjárhæð og svo m.v. íbúafjölda sem skipti framangreindri fjárhæð 45 m. kr. á milli sveitarfélaganna. 3. Að formlegt samþykktarferli verði fyrir sveitarfélög á vali á forgangsverkefnum.Samkvæmt útreikningum sem fylgdu tillögunni er áætlaður kostnaður við þátttöku Dalvíkurbyggðar í verkefninu, árið 2021, 449.760 kr. Gert hefur verið ráð fyrir þessum kostnaði í fjárhagsáætlun 2021. Haldinn var kynningarfundur um verkefnið í desember sl. og sat hluti af upplýsingateymi Dalvíkurbyggðar fundinn.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð verði aðili að miðlægu tækniteymi Sambands íslenskra sveitarfélaga og samþykkir jafnframt ofangreinda tillögu frá stafrænu ráði sveitarfélaga, liði 1. - 3. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.
7.
Frá Samtökum grænkera á Íslandi; Áskorun varðandi framboð grænkerafæðis í skólum
Tekin fyrir áskorun Samtaka grænkera, samanber rafpóstur dagsettur þann 29. desember 2020, þar sem fram kemur áskorun til svetiarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum. Jafnframt er eftirfarandi áskorun til sveitarstjórna; Samtök grænkera á Íslandi sendu á dögunum áskorun til allra leik- og grunnskóla landsins. Í henni eru skólarnir hvattir til að bjóða oftar eða að lágmarki einu sinni í viku upp á grænkerafæði fyrir alla nemendur sína til að minnka kolefnisspor sitt. Í kjölfar áskorunarinnar viljum við skora á sveitarfélögin að setja skýr markmið varðandi aukið framboð grænkerafæðis í skólum.
Lagt fram til kynningar og byggðaráð vísar ofangreindu til fræðsluráðs til upplýsingar og skoðunar.
8.
Frá Markaðsstofu Norðurlands; Áskorun til sveitarstjórnar
Tekið fyrir erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, ódagsett, þar sem stjórn MN skorar á sveitarfélög að styðja vel við rekstur skíðasvæða þar sem skíðasvæði gegna mikilvægu hlutverki í vetrarferðaþjónustu.
Lagt fram til kynningar.
9.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Umsögn um drög að viðbótum við landsskipulagsstefnu
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 30. desember 2020, þar sem fram kemur að í framhaldi af kynningarfundi sem haldinn var 22. desember sl. hafa verið unnin drög að umsögn sambandsins um tillögu að viðbótum við landsskipulagsstefnu. Drögin eru hér með send til allra sveitarfélaga með ósk um ábendingar við umsögnina. Frestur til að senda endanlega umsögn er til 8. janúar og er þess vinsamlega farið á leit að ábendingar berist undirrituðum eigi síðar en 7. janúar.Einnig er bent á að í viðburðadagatali sambandsins er gert ráð fyrir fundum 11. janúar um brennslu úrgangs og 18. janúar um frumvarp um hálendisþjóðgarð.
Lagt fram til kynningar og vísað til umhverfisráðs til upplýsingar og skoðunar.
10.
Frá nefndasviði Alþingis, Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um græna atvinnubyltingu, 360. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 18. desember 2020, þar sem fram kemur að Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um græna atvinnubyltingu, 360. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 12. janúar nk.
Lagt fram til kynningar.
11.
Frá SSNE; Fréttabréf í desemer 2020.
Lagt fram til kynningar fréttabréf SSNE fyrir desember 2020.
Lagt fram til kynningar.