Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
971. fundur
17. desember 2020
kl.
13:00
-
17:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá
1.
Frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs; Spennustöð á Norðurgarði, leigusamningur
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Þorsteinn K. Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, kl. 13:00.Á 970. fundi byggðaráðs þann 10. desember 2020 var eftirfarandi bókað:"Lagður fram leigusamningur vegna hluta húsnæðis sem er staðsett í austurhluta masturshúss 3 sem er á Norðurgarði Dalvíkurhafnar. Leigusamningurinn er við Rarik um spennistöðvarrými fyrir hafnarrafmagn við Dalvíkurhöfn. Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar óskaði eftir stækkun á spenni vegna þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á möguleikum Hafnasjóða að standa við kröfur um orkuskipti í höfnum. Umræddur leigusamningur er hefðbundið form sem Rarik hefur notað vegna húsnæðis fyrir spenna sem fyrirtækið hefur leigt af viðskiptavinum sínum. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta umfjöllun og afgreiðslu og óskar eftir nánari upplýsingum frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs um samninginn."Sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs kynnti minnisblað sem lagt var fram á fundinum, dagsett þann 17. desember 2020 varðandi málið.Til umræðu ofangreint.Þorsteinn vék af fundi kl. 13:22.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindan samning eins og hann liggur fyrir og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
4.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
7.
Covid-19; Tillögur Velferðarvaktarinnar til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna Covid-19
Tekið fyrir bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 15. desember 2020, þar sem fram kemur að á fundi stjórnar þann 11. desember sl. var lagt fram meðfylgjandi bréf Velferðarvaktarinnar, dagsett þann 7. desember 2020, um tillögur til stjórnvalda, bæði til ríkis og sveitarfélaga, í mótvægisaðgerðum vegna COVID-19 faraldursins. Stjórn Sambandsins samþykkti að senda bréfið til sveitarfélaga til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
8.
Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð, 369. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 11. desember 2020, þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð, 369. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 1. febrúar 2021.
Lagt fram til kynningar.
9.
Frá SSNE; Fundargerðir stjórnar SSNE 2020
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, 19. fundur frá 9. desember sl.
Lagt fram til kynningar.
10.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Fundargerðir stjórnar nr. 891 og nr. 892
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 891 og nr. 892.
Lagt fram til kynningar.