Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
967. fundur
26. nóvember 2020
kl.
13:00
-
15:56
í fjarfundi
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Umhverfis- og tæknisviði; Kynning á viðhaldkerfi Eignasjóðs
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs í gegnum fjarfund TEAMS Einar Ísfeld Steinarsson, starfsmaður tímabundið á umhverfis- og tæknisviði, Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs og Steinþór Björnsson, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdardeildar kl. 13:00.Einar Ísfeld hefur unnið að innleiðingu og skráningu inn í viðhaldsforrit fyrir Eignasjóð Dalvíkurbyggðar og kynnti það á fundinum. Einnig var kortavefur sveitarfélagsins og viðbætur við hann kynntur.Einar, Börkur Þór og Steinþór viku af fundi kl. 13:54.
Lagt fram til kynningar.
Byggðaráð lýsir yfir ánægju sinni með að verkefnið sé komið á þennan stað.
Byggðaráð lýsir yfir ánægju sinni með að verkefnið sé komið á þennan stað.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2021 og 3ja ára áætlun 2022-2024; á milli umræðna í sveitarstjórn.
Á 329. fundi sveitarstjórnar þann 24. nóvember sl. var frumvarp að fjárhagsáætlun 2021 og þriggja ára áætlun 2022-2024 tekin til fyrri umræðu í sveitarstjórn og samþykkt samhljóða að vísa henni til byggðaráðs á milli umræðna.
Byggðaráð felur sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að fylgja eftir þeim hugmyndum sem ræddar voru á fundinum, til úrvinnslu á milli funda, með það að markmiði að minnka fjárfestingar, lántökur og útgjöld.
4.
Frá umhverfis- og tæknisviði; Beiðni um viðauka vegna launa vinnuskóla
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 18. nóvember 2020, þar sem óskað er eftir launaviðauka vegna tilflutnings á áætlun á milli deilda 11410 og 06270 samkvæmt meðfylgjandi skjali með útreikningum þar sem áætlun fór á aðra deild en launin bókast á. Um er að ræða launaviðauka sem samþykktur var fyrr á árinu vegna átaksstarfa.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka nr. 38 við fjárhagsáætlun 2020 að upphæð kr. 8.636.114 af deild 11410 og yfir á deild 06270. Þar sem um sömu fjárhæð er að ræða á milli deilda þá þarf ekki að bregðast sérstaklega við þessum viðauka.
5.
Frá fræðslu- og menningarsviði; Niðurfelling á gjöldum á fræðslusviði vegna COVID - 19
Tekið fyrir minnisblað frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 23. nóvember 2020, er varðar niðurfellingu á gjöldum vegna lokunar á stofnunum sem heyra undir sviðið á Covid19 tímum og er eftirfarandi lagt til:a) Vegna lokunar á Krílakoti í sex daga vegna sóttkvíar verði gjöld felld niður, alls kr. 850.000 vegna leikskólagjalda og fæðis.b) Vegna lokunar í sundlaug og heilsurækt þá verði lengt í tímabilskortum sem lokun varir í sundlaug og heilsurækt eins og gert var í vor.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu.
6.
Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga; Ársskýrsla Jöfnunarsjóðsins 2019
Lögð fram til kynningar ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2019, samanber rafpóstur frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu dagsettur þann 18. nóvember 2020.
Lagt fram til kynningar.
7.
Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu einstaklinga, nr. 140/2019 (sveitarfélag fyrsta lögheimilis), 82. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 19. nóvember 2020, þar sem Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu einstaklinga, nr. 140/2019 (sveitarfélag fyrsta lögheimilis), 82. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 3. desember nk.
Lagt fram til kynningar.
8.
Fundargerðir Almannavarnarnefndar Nl. eystra 2018-2022
Lögð fram til kynningar fundargerð Haustfundar Almannavarnarnefndar Norðurlands eystra sem var haldinn í fjarfundi þann 12.nóvember 2020.
Lagt fram til kynningar.
9.
Aukaþing SSNE 11. desember 2020
Lögð fram til kynningar þingboðun frá SSNE vegna rafræns aukaþings samtakanna 11. desember 2020, sbr. 9. gr.samþykkta SSNE og ákvörðun á ársþingi í október.
Lagt fram til kynningar.