Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

961. fundur
19. október 2020 kl. 16:30 - 18:37
í fjarfundi
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Formaður byggðaráðs, Jón Ingi Sveinsson, sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs tóku þátt í fundinum i gegnum fjarfundarbúnað (TEAMS) í Upsa. Guðmundur St. Jónsson og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson tóku þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað (TEAMS).
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2021 og 3ja ára áætlun 2022-2024; aukafundur
Málsnúmer 202005082
Á fundinum var farið yfir vinnugögn sem sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs sendi í rafpósti 19.10.2020.a) Samantekt yfir niðurstöður tillagna vinnubóka vs. fjárhagsramma.b) Beiðnir um búnaðarkaup.c) Tillaga umhverfis- og tæknisviðs að viðhaldi Eignasjóðs.d) Tillögur umhverfis- og tæknisviðs og veitu- og hafnasviðs að fjárfestingum og framkvæmdum.Á fundinum voru gerðar tillögur að breytingum og sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falið að fylgja þeim málum eftir við sviðsstjóra eftir því sem við á.Markmiðið er að byggðaráð ljúki sinni yfirferð yfir tillögur að starfs- og fjárhagsáætlun á næsta fundi sem er fimmtudaginn 22. október n.k.
Lagt fram til kynningar.