Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
960. fundur
15. október 2020
kl.
13:00
-
16:30
í fjarfundi
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Lagfæringar í sundlaug Dalvíkur; staða mála.
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs í gegnum fjarfund (TEAMS) Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Þorsteinn K. Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, kl. 13:00.Á 955. fundi byggðaráðs var samþykkt að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður og niðurstöður byggðaráðs um hámarksupphæð hvað varðar viðgerð á sundlaugarkanti og sundlaugarstétt annars vegar og hins vegar vegna viðgerðar á "Bláa lóninu".Til umræðu staða mála hvað varðar lagfæringar í Sundlaug Dalvíkur.Börkur Þór, Gísli Rúnar, Gísli og Þorsteinn viku af fundi kl. 13:53.
Byggðaráð felur sviðsstjórum umhverfis- og tæknisviðs, fræðslu- og menningarsviðs, veitu- og hafnasviðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að vinna áfram að málum.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2021 og 3ja ára áætlun 2022-2024, framhald á yfirferð byggðaráðs
Guðmundur St. Jónsson kom inn á fundinn að nýju kl. 14:20.a) Undir þessum lið koma á fundinn í gegnum fjarfund (TEAMS) Þorsteinn K. Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, kl. 14:21.Þorsteinn kynnti tillögur veitu- og hafnasviðs og veitu- og hafnaráðs að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir málaflokka 41, 43, 47 og 73 ásamt tillögum að framkvæmdum og fjárfestingum.Þorsteinn vék af fundi kl. 15:30.b) Umræður um fyrirliggjandi tillögur að starfs- og fjárhagsáætlun sem kynntar hafa verið og næstu skref. og m.a. umræða um Gamla skóla.
Lagt fram til kynningar.
5.
Frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu; Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga; beiðni um útkomuspá 2020
Tekinn fyrir rafpóstur frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dagsettur þann 9. október 2020, þar sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga óskar eftir að nefndinni berist útkomuspá fyrir fjárhagsárið 2020 samhliða fjárhagsáætlun fyrir árið 2021, með vísan í 79. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011.Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um til hvaða fjárhagslega aðgerða sveitarstjórn hyggst grípa eða hefur gripið til vegna Covid-19 ástandsins.Óskað er eftir að útkomuspáin og fjárhagsáætlun 2021, eins og hún verður lögð fyrir sveitarstjórn, berist eigi síðar en 1. nóvember n.k.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda útkomuspá 2020, heildarviðauka III við fjárhagsáætlun 2020, þegar hún liggur fyrir vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2021, til eftirlitsnefndar sveitarfélaga.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að taka saman minnisblað um til hvaða fjárhagslegra aðgerða sveitarstjórn hyggst grípa eða hefur gripið til vegna Covid-19 ástandsins og leggja fyrir byggðaráð.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að taka saman minnisblað um til hvaða fjárhagslegra aðgerða sveitarstjórn hyggst grípa eða hefur gripið til vegna Covid-19 ástandsins og leggja fyrir byggðaráð.
6.
Fundargerðir starfs -og kjaranefndar frá 2020; fundur þann 13.10.2020
Með fundarboði fylgdi fundargerð starfs- og kjaranefndar frá 13. október 2020.
Lagt fram til kynningar.
7.
Frá SSNE; Miðstöð velferðatækni, áhersluverkefni 2019
Á ársfundi SSNE þann 10. október 2020 var kynnt áhersluverkefni 2019, Miðstöð velferðatækni. Í verkefninu fólst að kanna fýsileika þess að koma á fót þjónustu- og þekkingarmiðstöð á sviði velferðartækni á Norðurlandi. Markmið verkefnisins var að vinna frumathugun og þarfagreiningu á samstarfi sveitarfélaga vegna þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar á sviði velferðartækni. Leiðarljós að slíku samstarfi er að nýta nýjustu tækni til að upplýsa, leiðbeina, veita ráðgjöf og hvetja til aukinnar og almennrar notkunar á nýjustu tækni og hjálpartækjum fyrir einstaklinga sem þurfa aðstoð við daglegt líf og athafnir. Markmiðið er að auka þannig lífsgæði eldra fólks og hagkvæmni í veitingu þjónustunnar. Miðstöðin þjóni íbúum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og mögulega öllu landinu.Með fundarboði fylgdi hlekkur á lokaskýrslu verkefnisins.
Byggðaráð vísar ofangreindu til félagsmálaráðs til umfjöllunar.