Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

958. fundur
13. október 2020 kl. 16:15 - 19:30
í fjarfundi
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2021 og 3ja ára áætlun 2022-2024; yfirferð tillagna fagráða og stjórnenda
Málsnúmer 202005082
a) Sviðsstjóri félagsmálasviðs.Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs í gegnum fjarfund (TEAMS) Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs kl. 16:15.Eyrún kynnti tillögur sviðssins og félagsmálaráðs að starfs- og fjárhagsáætlun 2021 og þriggja ára áætlun 2022-2024 fyrir málaflokk 02; félagsþjónusta.Eyrún vék af fundi kl. 17:05.b) Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs.Undir þessum lið kom á fundinn Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 17:10 í gegnum fjarfund (TEAMS).Gísli kynnti tillögur sviðssins og fræðsluráðs, menningarráðs og íþrótta- og æskulýðsráðs vegna vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2021 og þriggja ára áætlun 2022-2024 fyrir málaflokka 04, 05 og 06 að undanskilinni deild 06270; Vinnuskóli.Gísli vék af fundi kl. 18:50.c) Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti tillögur fjármála-og stjórnsýslusviðs og atvinnumála- og kynningarráðs vegna vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2021 og þriggja ára áætlun 2022-2024, vegna málaflokks 00, deilda 03020, 13010, 13410, 13800, málaflokka 20, 21, 22, 28, 57.
Lagt fram til kynningar.