Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

955. fundur
17. september 2020 kl. 13:00 - 00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson formaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir varamaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
3.
Lagfæringar í sundlaug Dalvíkur
Málsnúmer 202001007
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl. 14:00.Á fundi byggðaráðs þann 20. ágúst s.l. gerði sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs grein fyrir framvindu málsins frá síðasta fundi byggðaráðs þar sem málið var til umfjöllunar og kynnti kostnaðaráætlun frá AVH, dagsett 18. ágúst 2020, fyrir viðgerð á sundlaugarkanti og sundlaugarstétt annars vegar og hins vegar vegna viðgerðar á "Bláa lóninu". Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs þar sem lögð fram tillaga að lausn málsins byggð á ofangreindri kostnaðaráætun AVH.Börkur vék af fundi kl. 14:18.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður og niðurstöðu byggðaráðs um hámarksupphæð.
4.
Fundargerðir starfs -og kjaranefndar frá 2020
Málsnúmer 202003008
Tekin fyrir fundargerð starfs- og kjaranefndar frá fundi þann 15. september s.l. og erindi frá stjórnendum vegna aukinna stöðuhlutfalla vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2021.Sveitarstjóri gerði grein fyrir ofangreindu.
Lagt fram til kynningar.