Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
954. fundur
10. september 2020
kl.
13:00
-
15:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2021 og 3ja ára áætlun 2022-2024; Tillaga að fjárhagsramma
Á 953. fundi byggðaráðs kynnti sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fyrstu drög að fjárhagsramma vegna fjárhagsáætlunar 2021. Á milli funda hafa ekki verið gerðar tillögur að breytingum en nú liggur fyrir launaáætlun 2021 skv. þarfagreiningum stjórnenda og voru niðurstöður úr þeirri þarfagreiningu kynntar á fundinum í samanburði við rammaáætlun.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsramma 2021 með fyrirvara um yfirferð þarfagreiningu launa samkvæmt ábendingum.
2.
Fundargerðir starfs -og kjaranefndar frá 2020
Með fundarboði fylgdi fundargerð starfs- og kjaranefndar sveitarfélagsins frá 08.09.2020.Á fundinum var til umfjöllunar erindi frá stjórnendum vegna launaáætlunar 2021.Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fjárhagsáætlun 2021; Frá Árskógarskóla; hjólreiðarstígur á Árskógsströnd
Tekið fyrir erindi, dagsett þann 31. ágúst 2020, frá nemendum og starfsfólki Árskógarskóla, ósk um að útbúnir verði hjólastígar á Árskógsströnd þannig að nemendur geti hjólað í skólann og farið á milli byggðakjarna án þess að hjóla á þjóðveginum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umhverfisráðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2021.
23.
Selárland-Verðmat
Á 953. fundi byggðaráðs þann 3. september 2020 var tekinn fyrir kaupsamingur / afsal um jörðina Selá, frá Ríkiseignum, en afgreiðslu var frestað með vísan í upplýsingar frá sveitarstjóra um atriði sem standa enn út af. Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að kaupasamningi / afsali sem barst 9. september 2020 og minnisblað sveitarstjóra dagsett þann 10. september 2020.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að svara fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samræmi við minnisblað sveitarstjóra.
25.
Frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs; viðaukabeiðni vegna niðurgreiðsl skólagjalda við Tónlistarskólann á Akureyri.
Á 951. fundi byggðráðs þann 20. ágúst s.l. samþykkti byggðaráðs að greiða kennslukostnað umfram skólagjöld vegna nemenda við Tónlistarskólann á Akureyri og fól sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að koma inn með erindi vegna viðauka þegar bréf frá skólanum lægi fyrir um málið.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi bréf Tónlistarskólans á Akureyri sem og beiðni sviðsstjóra um viðauka við fjárhagsáætlun 2020, dagsett þann 1. september 2020, að upphæð kr. 353.820 fyrir árið 2020 en heildarkostnaður skólaárið 2020-2021 yrði kr. 707.640.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka að upphæð kr. 353.820, nr. 28 við fjárhagsáætlun 2020 við deild 04530, lykill 4380 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé, vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
26.
Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Snjómokstur 2020; viðaukabeiðni
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 8. september 2020, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2020 vegna snjómoksturs. Fram kemur að fjármagn vegna snjómoksturs fyrir árið 2020 er uppurið og rúmlega það. Staða á 10600-4949 er nú kr. 49.912.892 og óskað er eftir kr. 11.905.540 til viðbótar út árið.Með fundarboði fylgdi einnig svar frá Jöfnunarsjóði, dagsett þann 4. september 2020, sem hafnar beiðni Dalvíkurbyggðar um viðbótarframlag vegna íþyngjandi snjómoksturs veturinn 2020 í ljósi tekjufalls sjóðsins og áhrif þess á framlög sjóðsins.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka nr. 29 við fjárhagsáætlun 2020 að upphæð kr. 12.000.000 á lið 10600-4949 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé, vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
27.
Frá Guðmundi Vali Stefánssyni f.h. Laxós ehf., Fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand.
Tekið fyrir erindi frá Laxós ehf. dagsett 26. ágúst 2020, þar sem farið er yfir stöðu verkefnis vegna fyrirhugaðs seiðaeldis á Árskógssandi. Óskað er eftir nánari upplýsingum um tvennt:1. Hvort leyfi muni fást til að lengja fyrirhugaða landfyllingu á Árskógssandi til austurs.2. Hvort sveitarfélagið muni geta afhent það magn af vatni sem félagið þarf í framtíðinni.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til veitu- og hafnaráðs og umhverfisráðs, eftir því sem við á.
28.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Endurskoðun á erindisbréfi UT-teymis
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti tillögu að breytingum á erindisbréfi UT-teymis sveitarfélagsins.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að breytingum á erindisbréfi UT-teymis og vísar því til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
30.
Frá Flokkun Eyjafjörður ehf., Ársreikningur og fundargerðir stjórnar- og aðalfundar
Lagður fram til kynningar ársreikningur Flokkun Eyjafjörður ehf. ásamt fundargerð stjórnarfundar 28. ágúst 2020 og fundargerð aðalfundar 28. ágúst 2020.
Lagt fram til kynningar.
31.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020; fundargerð stjórnar nr. 886,
Lögð fram til umfjöllunar og kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.08.2020, nr. 886.
Lagt fram til kynningar.