Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

938. fundur
19. mars 2020 kl. 13:00 - 14:51
utan húss
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Katrín Dóra Þorsteinsdóttir staðgengill fjármála- og stjórnsýslustjóra
Dagskrá
2.
Kirkjuvegur 12; sala á eigninni
Málsnúmer 202003053
Íris Daníelsdóttir kom á fundinn kl. 13:10.Tekin fyrir þrjú kauptilboð sem borist hafa í Kirkjuveg 9-12 íbúð 4.Íris vék af fundi kl. 13:29.
Byggðaráð samþykkir með 3 atkvæðum að gefa tveimur tilboðsgjöfum með samhljóða hæstu tilboðin tækifæri á að endurskoða tilboð sín fyrir kl. 16:00 mánudaginn 23. mars. Byggðaráð veitir jafnframt innheimtufulltrúa heimild til ganga frá hæsta tilboðinu.
3.
Upplýsingar vegna kórónuveirufaraldurs.
Málsnúmer 202003086
Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslusviðs kom inn á fundinn kl. 13:30.Til umræðu er erindi frá sviðsstjóra um niðurfellingu leikskólagjalda vegna skerðingar á opnunartíma.Gísli vék af fundi kl. 13:45.
Byggðarráð samþykkir með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fræðslusviðs að undirbúa tillögur að útfærslu afslátta af gjöldum vegna skerðinga á vistun barna í leik- og grunnskólum Dalvíkurbyggðar í samræmi við tillögur sem verið er að móta í sveitarfélögum landsins.
4.
Upplýsingar vegna kórónuveirufaraldurs.
Málsnúmer 202003086
Umræða um áhrif COVID-19 á fjárhag Dalvíkurbyggðar.Byggðaráð fer yfir umræður sveitarstjórna víðs vegar um landið varðandi beiðni um frestun fasteignagjalda ferðaþjónustufyrirtækja, áhrif á útsvarstekjur og launakostnað sveitarfélaganna.
Lagt fram til kynningar.
5.
Beiðni um upplýsingar um framkvæmdir og aðgerðir
Málsnúmer 202003092
Beiðni til sveitarfélaga um að leggja sérstaka áherslu á framkvæmdir með aðkomu ríkisins.Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, fór yfir skjal með framkvæmdum og viðhaldi sem þegar hafa verið samþykkt og hvernig þau falla að þessum áherslum ríkisins um að leggja aukið fjármagn í samstarfverkefni ríkis og sveitar sérstaklega þau sem eru mannaflsfrek.
Byggðaráð samþykkir með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra í samvinnu við sviðsstjóra að útfæra upplýsingar um hugsanlegar framkvæmdir og aðgerðir og svara erindinu.

Byggðaráð skorar á RARIK að flýta strengvæðingu í vestanverðum Svarfaðardal fram til ársins 2020. Ástæðan er langvarandi rafmagnsleysi í desember auk rafmagnstruflana sem hafa orðið í framhaldi þess.
6.
Barnvæn sveitarfélög - Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Málsnúmer 202003065
Tekinn fyrir rafpóstur frá Unicef á Íslandi, dagsettur 25. febrúar 2020, tilboð um þátttöku í verkefninu barnvæn sveitarfélög. Um er að ræða verkefni sem styður sveitarfélög í innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem var lögfestur hér á landi árið 2013.
Byggðaráð vísar erindinu til umsagnar í fræðsluráði, ungmennaráði og félagsmálaráði.
7.
Fundargerðir starfs -og kjaranefndar frá 2020
Málsnúmer 202003008
Fundargerð starfs- og kjaranefndar frá 17. mars 2020 lögð fram til kynningar ásamt leiðbeiningum sem sendar voru til stjórnenda hjá Dalvíkurbyggð vegna COVID-19.
Lagt fram til kynningar.