Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

925. fundur
21. október 2019 kl. 16:00 - 18:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir varamaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur 2020
Málsnúmer 201909038
Á 87. fundi veitu- og hafnaráðs þann 11. september 2019 samþykkti ráðið samhljóða með fimm atkvæðum eftirfarandi bókun. "Með hliðsjón af framkvæmdaþörf og fjárhagsstöðu Hitaveitu Dalvíkur telur veitu- og hafnaráð ekki ástæðu til breytinga á gjaldskrá."Sveitarstjórn var búin að vísa gjaldskránni til heildarumræðu um gjaldskrár en þar sem gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur þarf tvær umræður í sveitarstjórn er ofangreint nú á dagskrá.Málið rætt.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu veitu- og hafnaráðs og vísar gjaldskránni óbreyttri til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
2.
Endurnýjun á slökkvibíl
Málsnúmer 201905117
Á 919.fundi byggðaráðs þann 19. september 2019 var til umfjöllunar endurnýjun á slökkvibíl sem vísað var til gerðar fjárhagsáætlunar 2020-2023 og var m.a. þetta bókað:"Slökkviliðsstjóri fór yfir kosti og galla hinna ýmsu leiða við kaup á nýjum slökkvibíl.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fela slökkviliðsstjóra að vinna áfram í málinu. Einnig samþykkir byggðaráð að fara í heimsókn á Slökkvistöð Dalvíkur og skoða búnað og aðstæður."
Byggðaráð fór í heimsókn á Slökkvistöðina í Gunnarsbraut í lok fundar.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára áætlun 2021-2023
Málsnúmer 201905027
Yfirferð byggðaráðs á ýmsum atriðum er varða vinnu við fjárhagsáætlun 2020 og 2021-2023:Viðhaldsáætlun Eignasjóðs, heildarlista yfir búnaðarkaup, áætlun fyrir fjárfestingar og samantekt frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa á framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja.Guðmundur St. Jónsson vék af fundi undir umfjöllun um málefni Golfklúbbsins Hamars.
Lagt fram til kynningar og frekari vinnslu fram að næsta fundi.

Byggðaráð felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að fara yfir framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja og leggja uppfærða tillögu fyrir næsta byggðaráðsfund.
4.
Aðalfundur Eyþings 15.-16. nóv. 2019
Málsnúmer 201910116
Tekinn fyrir rafpóstur frá Eyþingi dagsettur 17. október 2019, þar sem boðað er til aðalfundar Eyþings 15.- 16. nóvember nk. á Dalvík.Sveitarstjóri upplýsti að verið er að vinna að skipulagningu á fundinum og fyrirkomulagi hans.
Lagt fram til kynningar.