Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
923. fundur
9. október 2019
kl.
16:00
-
18:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára áætlun 2021-2023
Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs kom á fundinn kl. 16:00 og sat fundinn undir liðum 1 og 2.Frá umhverfis- og tæknisviði vegna fjárhagsáætlunarvinnu.Börkur kynnti fjárhagsáætlunarvinnu sviðsins og tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og tæknisviðs vegna ársins 2020. Einnig fór hann yfir vinnubækur sviðsins. Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
3.
Samstarfstækifæri í Póllandi í gegnum EES uppbyggingarsjóðinn.
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dagsettur 20. september 2019 þar sem fram kemur að samkvæmt stefnumörkun kjörtímabilsins á sambandið að vinna að því að sveitarfélög geti nýtt sér samstarfstækifæri í gegnum EES-uppbyggingarsjóðinn. Pólland er eitt áhugaverðasta samstarfslandið. Bæði vegna þess að það er stærsta styrkþegalandið og vegna þess að í íslenskum sveitarfélögum búa margir íbúar af pólskum uppruna. Hvatt er til þess að sveitarfélög kynni sér samstarfsmöguleika og tækifæri í gegnum sjóðinn.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa erindinu til atvinnumála- og kynningarráðs.