Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
914. fundur
15. ágúst 2019
kl.
13:00
-
15:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
formaður
Guðmundur St. Jónsson
aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir
varamaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Sameining Atvinnuþróunarfélaganna á Norðurlandi eystra og Eyþings
Undir þessum lið komu á fundinn kl. 13:00 gestirnir Sigmundur Einar Ófeigsson, framkvæmdastjóri AFE, Valtýr Hreiðarsson, stjórnarmaður í AFE og Íris Hauksdóttir, þjónustu- og upplýsingafulltúi Dalvíkurbyggðar.Hjá Eyþingi og Atvinnuþróunarfélögunum á Norðurlandi eystra er nú unnið að sameiningu félaganna. Rætt var um stöðu á vinnu við sameininguna en á þriðjudaginn 13. ágúst sl. voru fundir og vinnustofur með starfsfólki félaganna og fulltrúaráði Eyþings á Húsavík.Einnig var starfsemi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar rædd og farið yfir verkefni sem eru þar í vinnslu.Sigmundur, Valtýr og Íris fóru af fundi að loknum 1. lið kl. 14:00.
Byggðaráð þakkar AFE fyrir góðan fund og kynningu.
2.
Öldugata 27; sala á eigninni
Tekið fyrir kauptilboð í Öldugötu 27, Árskógssandi dagsett 25. júlí 2019, að upphæð kr. 17.500.000.Kauptilboðið var samþykkt 31. júlí 2019 með fyrirvara um samþykki byggðaráðs.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum sölu á Öldugötu 27, Árskógssandi skv. ofangreindu kauptilboði.
3.
Umsögn. Tækifærisleyfi Höfði
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsettur 7. ágúst 2019 þar sem óskað er umsagnar um tækifærisleyfi fyrir réttarball í Höfða þann 8. september 2019 fyrir Ungmennafélagið Atla kt. 480581-0599.Fyrir liggja umsagnir frá slökkviliðsstjóra og byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar án athugasemda.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
4.
Drög að Grænbók um flugstefnu fyrir Ísland
Tekinn fyrir rafpóstur frá Markaðsstofu Norðurlands dagsettur 13. ágúst 2019 þar sem vakin er athygli á að nýlega birtist á Samráðsgátt stjórnvalda Grænbók með drögum að flugstefnu fyrir Ísland. Opnað var fyrir umsagnir 26. júlí og er opið til 16. ágúst.
Byggðaráð tekur undir bókanir bæjarráðs Akureyrar og Eyþings hvað varðar tímafrest til umsagnar og skipan í starfshópana. Byggðaráð lýsir áhyggjum sínum á framlagðri stefnu hvað varðar millilandagátt og varaflugvelli og felur sveitarstjóra að senda inn umsögn í samráðsgátt.
5.
Félagsmálaráðherra kynnir tillögur til þess að styrkja húsnæðismarkað á landsbyggðinni
Með fundarboði fylgdi rafpóstur frá Íbúðalánasjóði dagsettur 25. júlí 2019 þar sem kynnt eru áform félags- og barnamálaráðherra um að breyta lögum og reglugerðum í þeim tilgangi að styrkja húsnæðismarkaðinn á landsbyggðinni og koma til móts við áskoranir sem fjölmörg sveitarfélög standa frammi fyrir í húsnæðismálum.Tillögur ráðherra eru settar fram í þremur liðum og snúa þær að stofnkostnaði íbúðabygginga, fjármögnun þeirra og leiðum til þess að efla leigumarkað með hagkvæmt leiguhúsnæði. Með fundarboði fylgdu einnig hugmyndir frá sveitarstjóra vegna svokallaðra kaldra markaðssvæða til kynningar og umræðu á fundinum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að skoða leiðir til mögulegrar uppbyggingar á svokölluðum köldum markaðssvæðum í sveitarfélaginu.
6.
Málstofa um innleiðingu sveitarfélaga á heimsmarkmiðum SÞ
Tekinn fyrir rafpóstur frá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi dags. 13. ágúst 2010 en félagið mun standa fyrir málstofu um innleiðingu sveitarfélaga á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á LÝSU, rokkhátíð samtalsins. Málstofan er laugardaginn 7. september kl. 13:30 í Menningarhúsinu Hofi og eru sveitarstjórnir hvattar til að mæta og taka þátt í umræðum.
Byggðaráð hvetur kjörna fulltrúa í Dalvíkurbyggð til að sækja málstofuna.
9.
Fundagerðir stjórnar Ráðhúss Dalvíkur 2019
Til kynningar fundargerð frá 1. fundi stjórnar Ráðhúss Dalvíkur frá 9. júlí 2019.
Lagt fram til kynningar.
9.
Fundargerðir Eyþings 2019
Til kynningar fundargerðir stjórnar Eyþings frá 320. fundi þann 20. maí 2019, 321. fundi þann 12. júní 2019, 322. fundi þann 25. júní 2019 og 323. fundi þann 13. ágúst 2019.
Lagt fram til kynningar.