Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
912. fundur
11. júlí 2019
kl.
08:15
-
12:10
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Lokastígur 2, íbúð 201, sala á eigninni
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Íris Daníelsdóttir, þjónustu-og innheimtufulltrúi, kl.8:15.Á 911. fundi byggðaráðs þann 27. júní s.l. var eftirfarandi bókað:"Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs óskaði eftir heimild, í samráði við þjónustu- og innheimtufulltrúa, að fasteignin við Lokastíg 2, íbúð 201, verði sett á söluskrá. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð frestar afgreiðslu til næsta fundar og óskar eftir að fá þjónustu- og innheimtufulltrúa og sviðsstjóra félagsmálasviðs til fundar til að fara yfir stöðu mála um húsnæðismál sveitarfélagsins. "Þjónustu- og innheimtufulltrúi fór yfir samantekt sína hvað varðar útleigu á íbúðum í eigu Dalvíkurbyggðar og virkan biðlista eftir íbúðum. Einnig kynnti hún ásamt sviðsstjóra fjármála-og stjórnsýslusviðs yfirferð þeirra með sviðsstjóra félagsmálasviðs á fundi 8. júlí s.l.Til umræðu ofangreint.Íris vék af fundi kl. 08:39.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að íbúðin við Lokastíg 2,íbúð 201,verði sett á söluskrá.
2.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
3.
Frá Árna Daníel Júlíussyni; varðar styrkumsókn til Byggðarsafns og Dalvíkurbyggðar vegna fornleifarannsóknar
Á 911. fundi byggðaráðs þann 27. júní s.l. var eftirfarandi bókað:"Á 74. fundi menningarráðs þann 6. júní 2019 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi dags. 29. apríl 2019 frá Árna Daníel Júlíussyni, styrkumsókn um fornleifagröft í Svarfaðardal og Hörgárdal. Verkefnið er á vegum Hugvísindadeildar Háskóla Íslands. Verkefnið ber nafnið - Tveir dalir ? Svarfaðardalur og Hörgárdalur. Að verkefninu koma auk Árna Daníels Sögufélag Svarfdælinga og sérfræðingar við Fornleifafræðistofnun Íslands. Sótt er um 950.000 kr. í styrk.Menningarráð vísar erindinu til Byggðaráðs Dalvíkurbyggðar á grundvelli þess að umsóknin fellur ekki undir úthlutunarreglur menningar - og viðurkenningarsjóðs."Til umræðu ofangreint.Gísli vék af fundi undir þessum lið kl. 13:44.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð geti ekki orðið við ofangreindu erindi."Með fundarboði byggðaráðs fylgdi fyrirspurn frá Árna Daníel Júlíussyni, rafbréf dagsett þann 1.júlí 2019, þar sem innt er eftir hvort einhverjar sérstakar ástæður voru bornar fram fyrir höfnuninni? Sinnir sveitarfélagið almennt ekki beiðnum af þessu tagi eða var einhver galli á umsókninni sem sérstaklega var tiltekinn?Árni Daníel óskar eftir að koma þessum athugasemdum á framfæri við rétta aðila.Til umræðu ofangreint.
Dalvíkurbyggð hefur uppfyllt sínar skyldur hvað varðar fornleifaskráningu í sveitarfélaginu samkvæmt Aðalskipulagi. Ekki er gert ráð fyrir fjármunum á fjárhagsáætlun sveitarfélagins í styrkveitingar í verkefni sem þessi.
4.
Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Ósk um viðauka v. framkvæmdir 2019
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson,sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl.09:10.Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, bréf dagsett þann 1.júlí 2019, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 2.000.000 á lið 10300-4396 vegna óvenju mikilla viðgerða á gatnakerfisveitarfélagsins auk þess sem kostnaður við götumálun varð töluvert meiri en gert var ráð fyrir.Það skýrist af viðbótum sem gerðar voru í vor.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka að upphæð kr. 1.000.000 við fjárhagsáætlun 2019 á lið 10300-4396 vegna viðhalds á götum, gangstéttum og kantsteinum, viðauki nr. 16/2019, og að honum sé mætt með lækkun á handbæru fé.
5.
Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Ósk um viðauka v. álímingar HNE júní 2019
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis-og tæknisviðs,dagsett þann 1. júlí 2019, þar óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun að upphæð kr. 1.200.000,- á 08210-4396 til að standa straum af kostnaði við að fjarlægja þau farartæki sem HNE hefur límt á í sveitarfélaginu.En samkvæmt upplýsingum frá HNE má gera ráð fyrir allt að kr. 120.000,- á farartæki og um er að ræða allt að 10tæki.Til umræðu ofangreint.Börkur vék af fundi kl. 09:45.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka við deild 82100 á lið 4396 allt að kr. 1.200.000, viðauki 17/2019, og að honum sé mætt með heimild til að nýta auknar tekjur umfram áætlun innan sömu deildar. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ferlið verði þó yfirfarið og endurskoðað eins og rætt var um á fundinum, áður en stofnað verður til útgjalda.
6.
Frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs; ósk um viðauka við fjárhagsáætlun vegna rekstrarvanda Skíðafélags Dalvíkur
Á 910. fundi byggðaráðs þann 13. júní 2019 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Skíðafélagi Dalvíkur, bréf dagsett þann 11.júní 2019. Erindið er í þremur liðum og er óskað eftir umfjöllun um þá:Liður A: Rekstrarvandinn í dag og lausn hans.Liður B: Nýr samningur Liður C: Viðhald og framkvæmdir í fólkvanginum, á skíðasvæðinu og nærumhverfi Brekkusels.Þá eru lögð fram með erindinu fjögur fylgiskjöl með upplýsingum um stöðu mála ásamt aðsóknartölum og framlögum í samanburði við önnur skíðasvæði á landinu af sambærilegri stærð.Sveitarstjóri gerði grein fyrir fundi sem hún átti ásamt sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs með Snæþóri Arnþórssyni, Elísu Rún Ingvarsdóttur og Gerði Olofsson frá Skíðafélagi Dalvíkur.Til umræðu ofangreint.a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa þessum lið til sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs.b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa þessum lið til íþrótta- og æskulýðsráðs.c) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa þessum lið til umhverfis- og tæknisviðs."Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá sveitarstjóra fyrir hönd sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagett þann 8. júlí 2019, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 12.000.000 á lið 06800-9145 vegna rekstrarvanda Skíðafélags Dalvíkur. Lagt er til að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka nr. 18 við fjárhagsáætlun 2019 að upphæð kr. 12.000.000 þannig að liður 06800-9145 verði kr. 57.346.054 í stað 45.346.054.Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða með 3 atkvæðum að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé þar sem ekki er metið svigrúm til að mæta honum með öðrum hætti.
7.
Frá Ragnari Þ Þóroddssyni; Ósk um lán/leigu á gamla skóla um Fiskidagshelgina
Tekið fyrir erindi frá Ragnari Þ Þóroddssyni, rafbréf dagsett þann 5.júlí 2019, þar sem óskað er eftir að fá Gamla skóla, aðeins eldri part, og innganginn í hann í gegnum yngri partinn sem snýr að Skíðabraut að láni eða leigu í um þrjá daga í kringum Fiskidag eða frá og með 8. ágúst til og með 11. ágúst. Hugmyndin er að hafa opið og sýna gestum Fiskidagsins safn Brimars sem Dalvíkurbyggð á. Safnið hangir enn uppi í eldri parti Gamla skóla svo þetta sé ekki mikið mál. Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að semja við Ragnar um leigu á Gamla skóla þessa daga samkvæmt skilyrðum byggðaráðs. Sveitarstjóra falið að koma þeim skilyrðum áleiðis til sviðsstjóra.
8.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Einingu-iðju vegna a) endurskoðunar á viðræðuáætlunum og b) vegna kjaraviðræðna.
a)Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 2.júlí 2019, er varðar endurskoðun viðræðuáætlana við stéttarfélög sem eru í kjaraviðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga og eingreiðslur. b) Tekið fyrir erindi frá Einingu-Iðju, dagsett þann 1. júlí 2019, þar sem Eining-Iðja fer fram á að sveitarfélögin við Eyjafjörð greiði starfsmönnum sínum sem starfa eftir samningi SGS kr. 105.000 eingreiðslu þann 1. ágúst n.k. miðað við 100% starf þann 1. júní s.l. og hlutfallslega fyrir lægra stöðuhlutfall.
a) Lagt fram til kynningar.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi frá Einingu-Iðju. Kjarasamningsumboð Dalvíkurbyggðar er hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélagið er ekki að koma að kjaraviðræðum.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi frá Einingu-Iðju. Kjarasamningsumboð Dalvíkurbyggðar er hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélagið er ekki að koma að kjaraviðræðum.
10.
Starfsemi og rekstur Dalvíkurbyggðar - tillögu vinnuhópa vegna vinnu við fjárhagsáætlun
Á 910. fundi byggðaráðs þann 13. júní 2019 var eftirfarandi bókað:"Farið yfir flokkun á tillögum vinnuhópa vegna skoðunar á rekstri og starfsemi Dalvíkurbyggðar í tengslum við fjárhagsáætlunarvinnu 2020 - 2023.Sveitarstjóri fór yfir stöðu þeirra mála sem eru á ábyrgðasviði hans í tillögunum.Lagt fram til kynningar."Í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára áætlun 2021 - 2023 var farið yfir tillögur vinnuhópanna.
Farið áfram yfir þá liði sem snúa beint að byggðaráði og þeim komið í farveg.
11.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára áætlun 2021-2023
a) Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda 2020.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 1. júlí 2019, er varðar forsendur fyrir vinnslu fjárhagsáætlunar.b) Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Samþykkt stjórnar Sambandsins vegna álagsprósenta fasteignaskatts.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi samþykkt stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá fundi þann 21. júní 2019 þar sem minnt er á yfirlýsingu Sambandsins í tengslum við gerð lífskjarasamninga í apríl þar sem sveitarfélögin eru hvött til að hækka ekki gjaldskrár sínar um meira en 2,5% árið 2020,en minna ef verðbólgan verði lægri.c) Annað skv. tímaramma
a) Lagt fram til kynningar
b) Lagt fram til kynningar
c) Lagt fram til kynningar.
b) Lagt fram til kynningar
c) Lagt fram til kynningar.
12.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga;fundargerð stjórnar nr. 872
Tekin fyrir fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 872 frá 21. júní s.l.
Lagt fram til kynningar.
13.
Frá stjórn Menningarfélagsins Bergs ses; fundargerð stjórnar frá 18. júní 2019.
Tekin fyrir fundargerð stjórnar Menningarfélagsins Bergs ses frá 25. júní 2019.
Lagt fram til kynningar.
14.
Frá 323. fundi umhverfisráðs þann 24.06.2019;Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna Hóla- og Túnhverfis
Á 323. fundi umhverfisráðs þann 24. júní 2019 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, vegna Hóla- og Túnahverfis. Breytingin felur í sér stækkun á reit 312-Íb til norðurs yfir óbyggt svæði. Stækkunin nemur einni parhúsalóð. Drög að breytingunni voru kynnt á opnum íbúafundi þann 11. apríl 2019.Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að ganga frá tillögunni skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Á 315. fundi sveitarstjórnar þann 18. júní 2019 var eftirfarandi afgreiðsla sveitarstjórnar á tillögu umhverfisráðs frá 322. fundi: " Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs um að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að óska eftir breytingum á skipulagsuppdrætti þannig að stækkun á reit Íb-312 til norðurs verði minnkuð til vesturs."Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs um að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að ganga frá tillögunni að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna Hóla- og Túnahverfis, skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
15.
Frá 323. fundi umhverfsiráðs þann 24.06.2019; Breytingar á deiliskipulagi Hóla- og Túnahverfis
a) Á 323. fundi umhverfisráðs þann 24.júní 2019 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar í Hóla- og Túnahverfi á Dalvík ásamt greinagerð.Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að auglýsa tillöguna skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Á 315. fundi sveitarstjórnar þann 18. júní 2019 var eftirfarandi afgreiðsla sveitarstjórnar á tillögu umhverfisráðs frá 322. fundi:"Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs að leggja til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu:Lóð 18-22 við Hringtún verði breytt úr R1 í P1 (raðhúsalóð í parhúsalóð). Lóðir við Skógarhóla verði sameinaðar í eina R1 lóð (raðhúsalóð)." b) Með fundarboði byggðaráðs fylgdi áskorun frá íbúum Túnahverfis dagsett þann 5. júlí 2019 þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að falla frá fyrirhuguðum breytingum á deiliskipulagi Túnahverfis og gerð er sú krafa að gildandi skipulag verði látið standa óbreytt. Undir áskorunina undirrita 38 íbúar í Túnahverfi.Til umræðu ofangreint.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs um að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að auglýsa tillöguna að breytingu á deiliskipulagi íbúðabyggðar í Hóla- og Túnahverfi ásamt greinargerð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
b) Byggðaráð bendir íbúum í Túnahverfi á að ferli deiliskipulagsbreytinga í auglýsingu er lýðræðislegt ferli þar sem íbúum gefst kostur á að koma með athugasemdir sínar á auglýsingatíma. Fjallað er um og tekin afstaða til allra athugasemda sem berast á kynningartíma skipulagstillögu.
Sjá nánar leiðbeiningar um aðkomu almennings á heimasíðu Skipulagsstofnunar:
http://www.skipulag.is/skipulagsmal/adkoma-almennings/
Einnig bendir byggðaráð á að tillaga að breytingu á skipulaginu snýr að Túna- og Hólahverfi.
b) Byggðaráð bendir íbúum í Túnahverfi á að ferli deiliskipulagsbreytinga í auglýsingu er lýðræðislegt ferli þar sem íbúum gefst kostur á að koma með athugasemdir sínar á auglýsingatíma. Fjallað er um og tekin afstaða til allra athugasemda sem berast á kynningartíma skipulagstillögu.
Sjá nánar leiðbeiningar um aðkomu almennings á heimasíðu Skipulagsstofnunar:
http://www.skipulag.is/skipulagsmal/adkoma-almennings/
Einnig bendir byggðaráð á að tillaga að breytingu á skipulaginu snýr að Túna- og Hólahverfi.
16.
Umhverfisráð - 323, frá 24.06.2019
Til afgreiðslu:3. liður.4. liður, sér liður á dagskrá.5. liður, sér liður á dagskrá.
17.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 33
Undir þessum lið fór Jón Ingi Sveinsson af fundi vegna vanhæfis og vék af fundi kl. 11:50.Varaformaður, Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, tók við fundarstjórn.Fundargerðin lögð fram til kynningar.
18.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 34
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
19.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 35
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
20.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 36
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
21.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 37
Fundargerðin lögð fram til kynningar.