Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
910. fundur
13. júní 2019
kl.
08:15
-
11:35
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
formaður
Guðmundur St. Jónsson
aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir
varamaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Skíðafélagi Dalvíkur; Ósk um fund vegna viðvarandi rekstrarvanda Skíðafélagsins
Tekið fyrir erindi frá Skíðafélagi Dalvíkur, bréf dagsett þann 11.júní 2019. Erindið er í þremur liðum og er óskað eftir umfjöllun um þá:Liður A: Rekstrarvandinn í dag og lausn hans.Liður B: Nýr samningur Liður C: Viðhald og framkvæmdir í fólkvanginum, á skíðasvæðinu og nærumhverfi Brekkusels.Þá eru lögð fram með erindinu fjögur fylgiskjöl með upplýsingum um stöðu mála ásamt aðsóknartölum og framlögum í samanburði við önnur skíðasvæði á landinu af sambærilegri stærð.Sveitarstjóri gerði grein fyrir fundi sem hún átti ásamt sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs með Snæþóri Arnþórssyni, Elísu Rún Ingvarsdóttur og Gerði Olofsson frá Skíðafélagi Dalvíkur.Til umræðu ofangreint.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa þessum lið til sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa þessum lið til íþrótta- og æskulýðsráðs.
c) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa þessum lið til umhverfis- og tæknisviðs.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa þessum lið til íþrótta- og æskulýðsráðs.
c) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa þessum lið til umhverfis- og tæknisviðs.
2.
Jafnlaunavottun
Í óformlegum vinnuhópi fyrir jafnlaunavottun eru sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, launafulltrúi og sviðsstjóri félagsmálasviðs. Vinnuhópurinn hefur nú þegar hafið vinnu við að uppfylla kröfur um jafnlaunavottun en þeirri vinnu þarf að ljúka fyrir lok árs 2019.Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs sagði frá námskeiði um jafnlaunavottun sem hún og launafulltrúi sátu á Akureyri í 17. maí s.l. og stöðu mála.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir tilboðum í ráðgjöf og aðstoð við gerð jafnlaunavottunar annars vegar og hins vegar í jafnlaunavottun.
4.
Starfsemi og rekstur Dalvíkurbyggðar - vinnuhópar
Farið yfir flokkun á tillögum vinnuhópa vegna skoðunar á rekstri og starfsemi Dalvíkurbyggðar í tengslum við fjárhagsáætlunarvinnu 2020 - 2023.Sveitarstjóri fór yfir stöðu þeirra mála sem eru á ábyrgðasviði hans í tillögunum.
Lagt fram til kynningar.
5.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára áætlun 2021-2023
Samkvæmt tímaramma fjárhagsáætlunar 2020 og þriggja ára áætlun 2021-2023 eiga að vera til umfjöllunar frumdrög að fjárhagsrömmum.Með fundarboði fylgdi yfirlit sem sýnir samanburð á málaflokkum með rauntölum áranna 2016 - 2019 í samanburði við fjárhagsáætlanir hvers árs fyrir sig og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir samantektina.Með fundarboði fylgdi einnig þjóðhagsspá að sumari 2019, dagsett 10.05.2019.Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
6.
Grænbók um stefnu í málefnum sveitarfélaga birt í samráðsgátt
Á 908. fundi byggðaráðs þann 23.maí 2019 samþykkti byggðaráð að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að rýna Grænbókina, sem nú er í samráðsgátt stjórnvalda, og leggja fyrir byggðaráð drög að umsögn Dalvíkurbyggðar. "Með fundarboði fylgdu drög að umsögn frá Dalvíkurbyggð um Grænbók. Tekið til umræðu.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi drög að umsögn Dalvíkurbyggðar.
7.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Boðun aukalandsþings Sambandsins 2019
Á 871. fundi stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem haldinn var miðvikudaginn 29. maí sl., var samþykkt að boða til aukalandsþings til að ræða tillögu að stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga. Með fundarboði fylgdi boð til XXXIV. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga og verður það haldið föstudaginn 6. september 2019 á Grand hótel Reykjavík. Landsþingið hefst kl. 10:30 að morgni og stefnt er að því að þingstörfum ljúki um kl. 15:00 sama dag.
Lagt fram til kynningar.