Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
904. fundur
23. apríl 2019
kl.
13:00
-
16:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
formaður
Þórunn Andrésdóttir
varamaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir / Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sveitarstjóri / sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Samvinna byggðaráðs og eldri borgara
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs fulltrúar í Öldungaráði þær Kolbrún Pálsdóttir, Þorgerður Sveinbjarnardóttir og Helga Mattína Björnsdóttir frá eldri borgurum , Lilja Vilhjálmsdóttir frá HSN og Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, kl. 13:00. Samkvæmt samkomulagi um Öldungaráð þá er ráðið samráðsvettvangur um hagsmunamál eldri borgara og samkvæmt nýjum og breyttum lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga frá 1. október s.l. þá er meðal nýmæla að Öldungaráð taki við því hlutverki sem þjónustuhópum aldraða hefur verið fram til þessa falið að sinna.Til umræðu ýmis mál er varðar málefni íbúa 60 ára og eldri í Dalvíkurbyggð. Sveitarstjóri tekur saman minnispunkta af fundinum.Kolbrún, Þorgerður, Helga Mattína og Lilja viku af fundi kl. 14:19.
Lagt fram til kynningar.
2.
Félagsmálaráð - Fjárhagsstaða sviðsins 2019
Á 228.fundi félagsmálaráðs þann 9.apríl s.l. var eftirfarandi bókað:"Fjárhagsstaða sviðsins 2019 - Tekin fyrir staða fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019Vegna aukinna umsókna um lögbundin verkefni félagsmálasviðs frá íbúum sveitarfélagsins er starfsmönnum falið að reyna að hliðra til innan fjárhagsramma eins og hægt er, en að öðrum kosti að sækja um viðauka við fjárhagsáætlun 2019."Til umræðu ofangreint.Eyrún vék af fundi kl. 14:37.
Lagt fram til kynningar.
3.
Umsókn um lóð við Hringtún 17, Dalvík
Undir þessum lið komu á fundinn Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis-og tæknisviðs, Haukur Gunnarsson, formaður umhverfisráðs, Monika Margrét Stefánsdóttir, varaformaður, Lilja Bjarnadóttir, Helga Íris Ingólfsdóttir og Eva Guðmundsdóttir, aðalmenn úr umhverfisráði, kl. 14:38. Afgreiðslu umhverfisráðs frá 319. fundi ráðsins var vísað til umræðu í byggðarráði samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar á 311.fundi frá 19.mars 2019. Á 319. fundi umhverfisráðs þann 11. apríl 2019 var eftirfarandi bókað:"Til umræðu og afgreiðslu tillögur um svæði á Dalvík við þegar tilbúnar götur þar sem hægt er að koma fyrir minni eignum, fjölbýli, par-og raðhúsum. Umhverfisráð leggur til að eftirfarandi svæði verði tekin til endurskoðunar. 1. Deiliskipulag Hóla- og túnahverfis tillögur 5,6,7 og 9. 2. Deiliskipulag Lokastígsreits tillaga 1. 3. Nýtt deiliskipulag við Svarfaðarbraut tillaga 10. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnig erindi frá íbúum í Túnahverfi við Hringtún, Miðtún og Steintún, dagsett þann 17. apríl 2019, er varðar andmæli vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga í Túnahverfi á Dalvík. Fram kemur óánægja í fyrsta lagi um að breyta lóðum númer 17 og 19 úr því að vera einbýlishúsalóðir í parhúsalóðir. Í öðru lagi að umhverfisráð hafi afgreitt tillögur sem snúa að fleiri lóðum í hverfinu þar sem koma á fyrir minni eignum, fjölbýli, par eða raðhúsum með deiliskipulagsbreytingu. Núverandi deiliskipulag fyrir Hóla- og Túnahverfi var samþykkt fyrir rétt rúmu ári síðan og farið er fram á að ekki verði hróflað við því skipulagi og það fái að standa óbreytt. Undir erindið rita íbúar við Hringtún 1, 2,3,5,6,7,8,21,25,30,32,38,40, Miðtún 1,3,4, Steintún 2,3,4.Til umræðu ofangreint.Haukur, Monika Margrét, Lilja, Helga Íris og Eva viku af fundkl. 15:19.
Afgreiðslu frestað.
4.
Styrktarsjóður EBÍ 2019
Á 903. fundi byggðaráðs þann 11. apríl 2019 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá styrktarsjóði EBÍ, dagsett þann 25. mars 2019, þar sem auglýst er eftir umsóknum aðildarsveitarfélaga EBÍ í sjóðinn. Umsóknarfrestur er til aprílloka, hvert sveitarfélag getur aðeins sent inn eina umsókn og skulu umsóknir vera vegna sérstakra framfaraverkefna. Dalvíkurbyggð fékk styrk árið 2018 og í reglum úthlutunarsjóðs er kveðið á um að sveitarfélag geti að öllu jöfnu ekki fengið úthlutað styrk tvö ár í röð. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til umfjöllunar og skoðunar í framkvæmdastjórn."Ofangreint var rætt á fundi framkvæmdastjórnar mánudaginn 15. apríl s.l. Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs leggur til að sótt verði um styrk vegna skiltis við Tungurétt.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda inn umsókn um styrk vegna skiltis við Tungurétt.
6.
Íbúafundur um Gamla skóla
Lögð fram fundargerð vinnuhóps byggðaráðs um Gamla skóla frá 1.fundi hópsins þann 16.apríl 2019.Í fundargerðinni kemur fram sú tillaga að Gamli skóli verði auglýstur tímabundið til útleigu undir menningartengda eða atvinnutengda starfssemi, í heild með möguleikum á áframleigu eða hvert rými fyrir sig. Þetta sé gert strax og reynt að koma húsnæðinu í notkun. Áður þurfi að fara fram alssherjarþrif á húsnæðinu og lagafæra rými eftir sýningu á verkum Brimars. Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela umsjónarmanni fasteigna að undirbúa útleigu á Gamla skóla samkvæmt ofangreindu.
7.
Viðburðir ACW á World Ocean Day
Tekinn fyrir rafpóstur frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsettur þann 1. apríl 2019, þar sem kannaður er áhugi hjá sveitarfélaginu að taka þátt í opnunardegi Norðurstrandarleiðar (Arctic Coast Way) þann 8.júní næstkomandi með viðburði sem tengist leiðinni og Degi sjávar sem haldinn er hátíðlegur um allan heim þennan sama dag.Ofangreint var til umræðu á fundi framkvæmdastjórnar þann 15. apríl s.l. og gert ráð fyrir að fari fyrir fund Atvinnumála- og kynningarráðs þann 8. maí n.k.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til atvinnumála- og kynningarráðs, þjónustu- og upplýsingafulltrúa og sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs.
9.
Boðun aðalfundar Markaðsstofu Norðurlands 2019 og vorráðstefna
Tekinn fyrir rafpóstur frá Markaðsstofu Norðurlands dags, 12.apríl þar sem boðað er til aðalfundar þriðjudaginn 7. maí 2019 kl. 10-12. Fundurinn verður haldinn á Fosshótel Húsavík.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela þjónustu- og upplýsingafulltrúa að sækja fundinn ef hún hefur tök á.
10.
Aðalfundur Veiðifélags Svarfaðardalsár
Tekinn fyrir rafpóstur frá Veiðifélagi Svarfaðardalsár dags. 13.apríl 2019 þar sem boðað er til aðalfundar félagsins sem verður haldinn að Rimum, miðvikudaginn, 24.apríl 2019 kl.20:30.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að sækja fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
11.
Aðalfundur Greiðrar leiðar 2019
Tekinn fyrir rafpóstur til hluthafa í Greiðri leið ehf. dags. 15.apríl 2019, boð á aðalfund félagsins sem verður haldinn þriðjudaginn 30.apríl 2019 í fundarsal KEA Glerárgötu 36, Akureyri og hefst hann kl. 11:00.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að sækja fundinn ef hún hefur tök á.
12.
Tilkynning til allra sveitarstjórna - ný lög um opinber innkaup og námskeið 6. maí
Tekið fyrir rafbréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 17.04.2019. Athygli sveitarstjórna er vakin á því að lög um opinber innkaup nr. 120/2016 taka að fullu gildi gagnvart sveitarfélögum frá og með 31.maí 2019. Óskað er eftir að lögin verði kynnt með viðeigandi hætti í sveitarfélaginu, t.d. með framlagningu í byggðarráði eða sveitarstjórn. Jafnframt verði námskeið um opinber innkaup sem Sambandið heldur þann 6.maí í samstarfi við Ríkiskaup kynnt fyrir þeim starfsmönnum sveitarfélagsins sem helst koma að opinberum innkaupum og þeir hvattir til að sækja námskeiðið.
Lagt fram til kynningar. Upplýst var á fundinum að sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs sendi ofangreint til upplýsingar á aðal- og varamenn í sveitarstjórn og stjórnendur sveitarfélagsins.
13.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur bókhalds vs. áætlun 2019
Frestað.
14.
Til umsagnar frumvarp til laga um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, 801. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis dags. 11.apríl 2019 þar sem Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla,801. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. maí nk.
Lagt fram til kynningar.
15.
til umsagnar tillögu til þingsályktunar um ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn (þriðji orkupakkinn), 777. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis dags. 11.apríl 2019 þar sem Utanríkismálanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn (þriðji orkupakkinn), 777. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 29. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.
16.
Frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis til umsagnar frumvarp til laga um lýðskóla, 798. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis dags. 12.apríl 2019 þar sem Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um lýðskóla, 798. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 3. maí nk.
Lagt fram til kynningar.
17.
Til umsagnar frumvarp til laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (stjórnvaldssektir og eftirlit með gististarfsemi), 784. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis dags. 12.apríl 2019 þar sem Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald(stjórnvaldssektir og eftirlit með gististarfsemi), 784. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. maí nk.
Lagt fram til kynningar.
18.
Til umsagnar frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum (EES-reglur, stjórnvaldssektir o.fl.), 775. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis dags. 12.apríl 2019 þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum(EES-reglur, stjórnvaldssektir o.fl.), 775. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 26. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.
19.
Til umsagnar frumvarp til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða, 778. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis dags. 12.apríl 2019 þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða, 778. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 9. maí nk.
Lagt fram til kynningar.
20.
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum (tilvísun í stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku), 792. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis dags. 12.apríl 2019 þar sem Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum (tilvísun í stefnu stjórnvalda um uppbygginguflutningskerfis raforku), 792. mál, tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun nr. 26/148, um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, 791. mál og frumvarp til laga um breytingu á raforkulög8um og lögum um Orkustofnun (EES-reglur, viðurlagaákvæði), 782. málÞess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. maí nk.
Lagt fram til kynningar.
21.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2019
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 870 frá 11.apríl 2019.
Lagt fram til kynningar.