Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

903. fundur
11. apríl 2019 kl. 13:00 - 16:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson formaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir varamaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2018.
Málsnúmer 201811033
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Arnar Árnason, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Dagbjört Sigurpálsdóttir, aðalmaður í sveitarstjórn og Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl. 14:08.Allir aðalmenn í sveitarstjórn og sviðsstjórar fagsviða voru boðaðir á fundinn undir þessum lið.Arnar Árnason fór yfir helstu niðurstöður og forsendur ársreikning 2018.Arnar, Börkur og Dagbjört viku af fundi kl. 15:52.

Byggðaráð þakkar Arnari Árnasyni fyrir komuna og góða yfirferð.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2018 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
3.
Samningur um Friðland Svarfdæla
Málsnúmer 201302077
Á 902. fundi byggðaráðs þann 28. mars 2019 samþykkti byggðaráð að fresta afgreiðslu á samningi við Umhverfisstofnun um Friðland Svarfdæla og fól sveitarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að koma ábendingum byggðaráðs um samningsdrögin, er varða aðallega starf landvarðar, til Umhverfisstofnunar.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samning við Umhverfisstofnun um Friðland Svarfdæla og vísar honum til sveitarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu.
4.
Frá Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa; Viðaukabeiðni íþróttamiðstöð apríl 2019
Málsnúmer 201904029
Tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 3. apríl 2019, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019, deild 06500, að upphæð kr. 1.979.218 vegna tímabilsins 1. apríl - 31. desember 2019. Á móti er áætluð endurgreiðsla frá Vinnumálastofnun að upphæð kr. 1.463.040. Nettó áhrif viðaukans er því kr. 516.178.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka að upphæð kr. 516.178, viðauki nr. 8 við fjárhagsáætlun 2019, vegna deildar 06500 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
5.
Frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa; Viðaukabeiðni heilsueflandi samfélag apríl 2019
Málsnúmer 201904030
Tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 3. apríl 2019, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að upphæð kr. 876.053 vegna fundaþóknana stýrihóps um Heilsueflandi samfélag, deild 06030. Lagt er til að viðaukanum verði mætt af lið 06030-4915 þannig að nettó áhrifin eru 0.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun 2019, deild 06030, þannig að launaáætlun hækki um kr. 876.053 og liður 4915 lækki um sömu upphæð á móti. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
6.
Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga; Akstursþjónusta fyrir fatlað fólk 2019
Málsnúmer 201904037
Tekið fyrir erindi frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dagsett þann 4. apríl 2019, þar sem fram kemur að um síðast liðin áramót tók í gildi ný reglugerð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga nr. 1088/2018. Í reglugerðinni kemur fram nýtt viðmið sem er ætlað að koma til móts við kostnað vegna akstursþjónustu fatlaðs fólks úr dreifbýli. Úthlutun framlagsins byggir á umsóknum frá sveitarfélögum og verður útreikningur framlagsins með svipaðri aðferðafræði og framlag vegna skólaaksturs úr dreifbýli þar sem sem tekið er mið af akstursvegalengd og fjölda farþega. Óskað verður eftir umsóknum frá sveitarfélögum síðar á árinu.
Byggðaráð vísar ofangreindu til félagsmálaráðs til upplýsingar og skoðunar.
7.
Frá Markaðsstofu Norðurlands; Skýrsla flugklasans Air 66N
Málsnúmer 201803105
Tekinn fyrir rafpóstur frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsettur þann 4. apríl 2019, þar sem kynnt er skýrsla um starf Flugklasans Air 66N síðustu mánuði. Formlegt erindi um áframhaldandi þátttöku sveitarfélaga í Flugklasanum til næstu ára verður sent út á næstunni.
Byggðaráð vísar ofangreindu til atvinnumála- og kynningarráðs til upplýsingar og skoðunar.
8.
Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Styrktarsjóður EBÍ 2019
Málsnúmer 201903121
Tekið fyrir erindi frá styrktarsjóði EBÍ, dagsett þann 25. mars 2019, þar sem auglýst er eftir umsóknum aðildarsveitarfélaga EBÍ í sjóðinn. Umsóknarfrestur er til aprílloka, hvert sveitarfélag getur aðeins sent inn eina umsókn og skulu umsóknir vera vegna sérstakra framfaraverkefna. Dalvíkurbyggð fékk styrk árið 2018 og í reglum úthlutunarsjóðs er kveðið á um að sveitarfélag geti að öllu jöfnu ekki fengið úthlutað styrk tvö ár í röð.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til umfjöllunar og skoðunar í framkvæmdastjórn.
9.
Frá Forsætisráðuneytinu; Fundur um málefni þjóðlenda, haldinn á Akureyri
Málsnúmer 201904028
Tekið fyrir erindi frá Forsætisráðuneytinu, bréf dagsett þann 2. apríl 2019, þar sem fram kemur að ráðuneytið hyggst halda fund fimmtudaginn 6. júní n.k. kl. 13:00 í á Akureyri um málefni þjóðlendna. Fundurinn er nú haldinn í sjötta sinn. Rétt eins og í fyrra er ætlunin að bjóða forsvarsmönnum fjallskilanefnda með á fundinn.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar og skoðunar í landbúnaðarráði.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitartjóri og sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs sæki fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
10.
Frá Byggðastofnun; Ársfundur
Málsnúmer 201904059
Tekinn fyrir rafpóstur frá Eyþingi, dagsettur þann 9. apríl 2019, þar sem vakin er athygli á ársfundi Byggðarstofnunar sem haldinn verður á Siglufirði fimmtudaginn 11. apríl 2019 (í dag), kl. 13:00.
Lagt fram til kynningar.
11.
Frá Tækifæri; Aðalfundur 2019
Málsnúmer 201904001
Tekið fyrir erindi frá Tækifæri, bréf dagsett þann 27. mars 2019 og móttekið 1. apríl 2019, þar sem boðað er til aðalfundar Tækifæris hf. á Akureyri föstudaginn 12. apríl 2019 kl. 14:00.
Lagt fram til kynningar.
12.
Vinabæjarmót í Borgå Finnlandi 26.-28.06.2019
Málsnúmer 201902153
Guðmundur St. Jónsson vék af fundi undir þessum lið kl. 16:43 vegna vanhæfis.Á 901. fundi byggðaráðs þann 12. mars 2019 var áfram til umfjöllunar þátttaka Dalvíkurbyggðar í vinabæjamóti í Borgå í Finnlandi og frestaði byggðaráð erindinu og vísaði því til íþrótta-og æskulýðsfulltrúa að kanna frekar möguleikann um ofangreinda hugmynd um sameiginlega styrkumsókn með hinum vinarbæjum vegna ungmennaskipta. Skila þarf inn þátttökutilkynningu fyrir 14. apríl n.k.Sveitarstjóri gerði grein fyrir athugun íþrótta- og æskulýðsfulltrúa hvað varðar möguleika á að sækja um styrki sem athugun hans á ferðakostnaði. Styrkir til þátttöku eru ekki í myndinni. Á deild 21510 er gert ráð fyrir kr. 200.000 vegna ferðarkostnaðar og kr. 20.000 vegna gjafa.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að óska eftir að íþrótta- og æskulýðsfulltrúi sæki vinabæjamótið ásamt 2 ungmennum úr Ungmennaráði. Valið á fulltrúum Ungmennaráðs fari fram með útdrætti.