Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

891. fundur
20. desember 2018 kl. 13:00 - 16:05
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
4.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Vinnumansal og kjör erlends starfsfólks
Málsnúmer 201812067
Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 13. desember 2018, þar sem fram kemur hvatnig stjórnar Sambandsins um að sveitarstjórnir setji í samninga um opinber innkaup kröfur um keðjuábyrgð sem tryggi réttindi verkafólks og sporni gegn mögulegri misnotkun á erlendu vinnuafli.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð tekur jákvætt í ofangreind tilmæli.
5.
Til umsagnar tillögu til þingsályktunar um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi, 443. mál.
Málsnúmer 201812071
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 13. desember 2018, þar sem Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi, 443. mál. Óskað er umsagnar eigi síðar en 14. janúar n.k.
Lagt fram til kynningar.
6.
Frá 308. fundi sveitarstjórnar þann 18.12.2018; Samningur um afnot, umráð og útleigu á Ungó
Málsnúmer 201709109
Á 308. fundi sveitarstjórnar þann 18.12. 2018 var eftirfarandi vísað til byggðarráðs frá fundi menningarráðs þann 6. desember s.l.:"Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti greinargerðir frá Leikfélagi Dalvíkur og Gísla,Eirík,Helga um afnot á Ungó 2018 til 2019. Lagt fram til kynningar. Sviðsstjóra falið að framlengja leigusamninga við Leikfélag Dalvíkur og Gísla,Eirík,Helga ehf. til eins árs."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir fundi með menningarráði og Leikfélagi Dalvíkur til að ræða um afnot af Ungó.
7.
Tilnefning fulltrúa í umsjónarnefnd Friðlands Svarfdæla
Málsnúmer 201812083
Tekið fyrir erindi frá Umhverfisstofnun, dagsett þann 10. desember 2018, þar sem óskað er tilnefningar frá Dalvíkurbyggð á einum fulltrúa í þriggja manna nefnd umsjónar með Friðlandi Svarfdæla. Forstjóri Umhverfisstofnunar skipar í nefndina og velur út tilnefningum. Einn fulltrúi er frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar og formaðurinn kemur frá Umhverfisstofnun. Tilnefningaraðili ber kostnað af setu fulltrúa sinna í nefndinni.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að tilnefna Val Þór Hilmarsson, umhverfisstjóra, sem fulltrúa Dalvíkurbyggðar í umsjónarnefnd með Friðlandi Svarfdæla.