Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
871. fundur
12. júlí 2018
kl.
13:00
-
16:52
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson
formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
aðalmaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá 100. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs frá 15. maí 2018; Frá Húsnæði og troðari
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, og Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 13:00.Á 858. fundi byggðaráðs þann 1. mars 2018 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá stjórn Skíðafélags Dalvíkur, bréf dagsett þann 21. febrúar 2018, þar sem fjallað er um geymsluhúsnæði skíðasvæðisins annars vegar og endurnýjun á snjótroðara hins vegar. Óskað er eftir viðræðum við sveitarfélagið um þessi mál. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs til umfjöllunar. "Á 99. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 3. apríl 2018 var eftirfarandi bókað:"Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að ræða nánar við skíðafélagið vegna endurnýjunar á snjótroðara og framtíðarhúsnæði samkvæmt umræðum á fundinum."Á 100. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 15. maí 2018 var eftirfarandi bókað:"Tekin fyrir greinagerð frá Skíðafélagi Dalvíkur varðandi endurnýjun á troðara félagsins og uppbyggingu geymsluhúsnæði félagsins. Íþrótta- og æskulýðsráð telur þá leið að endurnýja dælur ofl. (leið 2 í greinagerð) sé vænlegasti kosturinn. Þetta gefur troðaranum nokkur ár til viðbótar. Í framhaldi verði svo gerð tímaáætlun um endurnýjun á troðaranum. Ráðinu lýst vel á áætlanir skíðafélagsins um framtíðaruppbygingu geymsluhúsnæðis félagsins og vísar því til gerðar starfs- og fjárhagsáætlunarvinnu næsta haust."Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnig erindi frá Skíðafélagi Dalvíkur, dagsett þann 10. maí 2018, sem var sent til íþrótta- og æskulýðsráðs í framhaldi af fundi með íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs þann 13. apríl s.l. Fram kemur að leið 2 sem íþrótta- og æskulýðsráð lagði til vegna viðhalds á snjótroðara er áætlað að kosti kr. 4.774.879 og er innifalið 3 nýjar aðaldælur, ný fæði og drifdæla, milligírar yfirfarnir og vinna við dæluskiptin.Til umræðu ofangreint.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa tillögu íþrótta- og æskulýðsráðs hvað varðar leið 2 í greinargerð Skíðafélags Dalvíkur til gerðar fjárhagsáætlunar 2019. Að sama skapi samþykkir byggðaráð samhljóða með 3 atkvæðum að vísa áætlunum Skíðafélags Dalvíkur um framtíðaruppbyggingu geymsluhúsnæðis til gerðar fjárhagsáætlunar 2019.
b)Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Skíðafélag Dalvíkur fái Hreiður allt til afnota nú þegar, sbr. erindi frá félaginu 21. febrúar 2018.
b)Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Skíðafélag Dalvíkur fái Hreiður allt til afnota nú þegar, sbr. erindi frá félaginu 21. febrúar 2018.
2.
Frá 100. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 15. maí 2018; Starfsemi Víkurrastar / félagsmiðstöðvar
Á 17. fundi ungmennaráðs þann 25. apríl 2018 var eftirfarandi bókað:"Ungmennaráð lýsir yfir óánægju sinni með vinnubrögð við niðurlögn á starfi forstöðumanns Víkurrastar á sínum tíma. Ráðið telur að ekki hafi verið skoðað nægilega vel þörfin á því að ráða í starfið aftur með tilvísan í mannauðsstefnu Dalvíkurbyggðar, þar segir að áður en eldra starf er auglýst laust til umsóknar skal forstöðumaður stofnunar eða sviðsstjóri ef tilefni er til meta þörf fyrir ráðningu í starfið. Ljóst er að mikil þjónustuskerðing hefur átt sér stað og telur ráðið nauðsynlegt að ráðinn verði forstöðumaður sem sinnir starfi félagsmiðstöðvar og ungmennarstarfs í Víkurröst. Það er þá einnig í samræmi við tillögur vinnuhóps um nýtingu Víkurrastar um að markaðssetja húsið og ná fram meiri nýtingu með því að gera húsið að Frístundahúsi. Ráðið telur það ekki samræmast að leggja meiri áherslu á starfsemi Víkurrastar og um leið að leggja niður starf forstöðumanns. Ráðið leggur til að málið verði endurmetið og að ráðið verði aftur í sambærilegt starf forstöðumanns Víkurrastar. Ráðið telur mikilvægt að búið verði að vinna þetta fyrir upphaf starfsárs félagsmiðstöðvar næsta haust. Ráðið er tilbúið að koma að þeirri vinnu við að meta og fara yfir með hvaða hætti sé best að endurskipuleggja starfið."Á 100. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 15. maí 2018 var eftirfarandi bókað:"Íþrótta- og æskulýðsráð tekur undir með ungmennaráði og telur mikilvægt að skoðað verði frá grunni með hvaða hætti starfsemi Víkurrastar og þar með félagsmiðstöðvar verði til framtíðar. Það eru miklir möguleikar í alhliða frístundahúsi í Víkurröst. Ráðið telur mikilvægt að þetta verði unnið áfram í samráði við ungmennaráð og sett í farveg þannig að í haust verði búið að móta stefnu um það með hvaða hætti starfsemi Víkurrastar verði háttað."Með fundarboði byggðaráðs fylgdi samantekt íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 2. júlí 2018, á starfi forstöðumanns Víkurrastar og núverandi stöðu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og nær yfir stöðu mála áður og eftir að starf forstöðumanns félagsmiðstöðar var lagt niður.Til umræðu ofangreint.Gísli Rúnar vék af fundi kl. 14:14
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til gerðar fjárhagsáætlunar 2019.
3.
Frá 68. fundi menningarráðs þann 3. júlí 2018; Erindi frá forstöðumanni bóka- og héraðsskjalasafns Dalvíkurbyggðar
Á 68. fundi menningarráðs þann 3. júli 2018 var eftirfarandi bókað:"Forstöðumaður bóka- og héraðsskjalasafns lagði fyrir menningarráð eftirfarandi spurningar: 1) Er möguleiki á að hafa Brimars sýninguna opna út júlí. 2) Möguleikann á að bjóða upp á leiðsagnir yfir Fiskidagshelgina. 3) Vill Dalvíkurbyggð kaupa eintök af bókinni "Demantar Dalvíkurbyggðar" til gjafa. 4) Hvert er hlutverk og stefna Listaverkasafns Dalvíkurbyggðar. Menningarráð tók fyrir erindi frá forstöðumanni Bóka- og héraðsskjalasafns Dalvíkurbyggðar. 1) Sér liður á dagskrá fundarins. 2) Menningarráði líst vel á hugmyndina en ekki liggur fyrir formleg umsókn með kostnaðaráætlun og því er sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs falið að vinna málið áfram. 3) Menningarráði finnst hugmyndin góð og vísar þessum lið til Byggðaráðs. 4) Farið var yfir söfnunarstefnu listaverkasafns Dalvíkurbyggðar. Málið verður tekið upp á næsta fundi ráðsins."Til umfjöllunar 3. liður hér að ofan sem vísað er til byggðaráðs, þ.e. kaup á bókinni "Demantar Dalvíkurbyggðar" til gjafa.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna hugmynd menningarráðs um að kaupa rit "Demantar Dalvíkurbyggðar" til gjafar. Á undanförnum árum hefur Dalvíkurbyggð ekki keypt fyrirfram bækur, diska og þess háttar til að eiga til gjafar. Einnig að gæta þarf þá jafnræðis hvað varðar magnkaup af einum aðila umfram aðra.
5.
Frá Arngrími Vídalín Baldurssyni; Endurnýjun fjallgirðingar jarðanna Syðra-Hvarfs og Hjaltastaða
Á 118. fundi landbúnaðarráðs þann 14. maí 2018 var eftirfarandi bókað:"Með innsendu erindi dags. 3. maí 2018 óskar Arngrímur Vídalín Baldursson eftir aðkomu Dalvíkurbyggðar vegna endurnýjunar á fjallgirðingu í landi Syðra-Hvarfs og Hjaltastaða. Landbúnaðarráð getur ekki fallist á þátttöku sveitarfélagsins þar sem ekki er um sambærilegar aðstæður að ræða og á Árskógsströnd. Samþykkt með þremur atkvæðum." Á 304. fundi sveitarstjórnar þann 11. júní 2018 var ofangreind afgreiðsla landbúnaðarráðs samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.Tekið fyrir erindi frá Arngrími Vídalín Baldurssyni, dagsett þann 4. júní 2018, þar sem vísað er í ofangreint erindi frá 3. maí s.l. og afgreiðslu landbúnaðarráðs.Lagðar eru fram 2 spurningar:Er fagnefnd eins og landbúnaðarráði falin fullnaðarafgreiðsla mála ?Ef svo er;Eru þessir meðlimir þessara nefnda kjörnir af íbúunum til þessara starfa ?Ef svar sveitarstjórnar er sama og álit landbúnaðarráðs óskar bréfritari eftir því skriflega og rökstuðningi fyrir ákvörðuninni.Einnig er óskað eftir stofnskjali fyrir sjóðinn sem stofnsettur var vegna fjallgirðinga á Árskógsströnd og upplýsingum um framlög sveitarfélagsins til girðingamála skv. fjárhagsáætlun, allt frá sameiningu sveitarfélaganna 1998. Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að gera drög að svarbréfi og leggja fyrir byggðaráð.
7.
Árskógur lóð 1; staða mála
Á 870. fundi byggðaráðs þann 4. júlí 2018 var eftirfarandi bókað:"Á 869. fundi byggðaráðs þann 22. júní 2018 samþykkti byggðaráð að fela sveitastjóra að ræða við eigendur að Árskógi lóð 1 um framhald málsins. Sveitarstjóri gerði grein fyrir framvindu málsins á milli funda byggðaráðs og samtölum sínum við eigendur að Árskógi lóð 1 að lausnum. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að taka málið áfram. "Sveitarstjóri gerði grein fyrir framvindu mála og samningaviðræðum við eigendur að Árskógi lóð 1 um lausnir.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að vinna áfram að málinu.
8.
Siðareglur kjörinna fulltrúa - endurskoðun í upphafi kjörtímabils
Á 869. fundi byggðaráðs þann 22. júní 2018 var eftirfarandi bókað:"Gildandi siðareglur fyrir kjörna fulltrúa er að finna á eftirfarandi slóð á heimasíðu sveitarfélagsins. https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Adalvefur/Reglugerdir/sidareglur-kjorinna-fulltrua-i-dalvikurbyggdar-stadfesting-raduneytis-.pdf 29. gr. sveitarstjórnarlaga fjallar um siðareglur og góðir starfshættir en þar segir: "Sveitarstjórn skal setja sér siðareglur sem sendar skulu ráðuneytinu til staðfestingar. Ef siðareglur eru í gildi skal ný sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til endurskoðunar þeirra. Ef niðurstaðan er sú að siðareglur þarfnist ekki endurskoðunar halda þær gildi sínu. Tilkynna skal ráðuneytinu um þá niðurstöðu. Siðareglur sveitarstjórnar skulu birtar opinberlega á vefsíðu sveitarfélagsins eða á sambærilegan hátt. Öllum kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn og nefndum og ráðum sem sveitarstjórn skipar ber að haga störfum sínum í samræmi við settar siðareglur. Samband íslenskra sveitarfélaga skipar nefnd sem veitt getur álit um siðareglur og um ætluð brot á þeim. Ráðuneytið getur borið tillögur sveitarstjórna um siðareglur undir nefndina áður en það tekur þær til staðfestingar. " Til umræðu ofangreint. Lagt fram til kynningar. "Á 870. fundi byggðaráðs þann 4. júlí s.l. var umfjöllun og afgreiðslu frestað.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að koma með tillögur að breytingum sem ræddar voru á fundinum, t.d. að álitaefnum sé vísað til siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
9.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Ráðningarnefnd Dalvíkurbyggðar - tillaga
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga og drög að erindisbréfi um ráðningarnefnd Dalvíkurbyggðar.Tilgangur nefndarinnar væri:Að styrkja framkvæmd á starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar.Að fylgja eftir ákvæðum um ráðningar í Samþykkt um fjárhagsáætlunferli Dalvíkurbyggðar.Að fylgja eftir ákvæðum um ráðningar í Mannauðsstefnu Dalvíkurbyggðar ásamt handbókum.Lagt er til að eftirtaldir starfsmenn skipi nefndina en nefndin eigi samráð við stjórnendur og starfsmenn eftir því sem þurfa þykir:SveitarstjóriSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðsLaunafulltrúiTil umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu að ráðningarnefnd og drögin að erindisbréfi eins og þau liggja fyrir.
10.
Ný persónuverndarlöggjöf, persónuverndarfulltrúi og staða mála.
a) Á 861. fundi byggðaráðs þann 28. mars 2018 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir frétt frá Dómsmálaráðuneytingu, dagsett þann 13. mars 2018, er varðar kynningu á drögum á frumvarpi til nýrra persónuverndarlaga. Frestur til umsagna var til 19. mars s.l. Til umræðu ofangreint. Lagt fram til kynningar."Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 13. júní 2018, þar sem fram kemur að ný persónuverndarlög hafa verið samþykkt og taka gildi 15. júlí n.k.Vill sambandið benda á eftirfarandi tékklista sem var hluti af grein sem birtist í fréttablaðinu 25. maí sl. en þar sagði m.a.:"Því væri ekki úr vegi að nýir sveitarstjórnarmenn sem taka sæti að loknum sveitarstjórnarkosningum á morgun fari hið fyrsta yfir stöðu mála í sínu sínu sveitarfélagi og kanni þá m.a. eftirfarandi: Er kominn persónuverndarfulltrúi hjá sveitarfélaginu, sem uppfyllir þær ríku kröfur sem gerðar eru í lögunum?Hefur vinnsla sveitarfélagsins verið skoðuð og vinnsluskrá gerð?Hafa öryggiskerfi og skjalakerfi sveitarfélagsins verið skoðuð m.v. kröfur í nýjum lögum?Hafa samningar við vinnsluaðila verið yfirfarnir? Hefur sveitarfélagið sett sér persónuverndarstefnu og önnur skjöl sem lögin gera ráð fyrir?Er sveitarfélagið með áætlun um innleiðingu og hlýtingu?"Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir í hvaða farvegi ofangreind vinna og innleiðing er hjá Dalvíkurbyggð en vinnuhópur vegna innleiðingar á nýrri persónuverndarlöggjöf fundaði s.l. þriðjudag með lögmönnum frá PACTA en samið var við fyrirtækið á síðari stigum um aðstoð við innleiðingarferlið.b) Vinnuhópur Dalvíkurbyggðar um innleiðingu á nýrri persónuverndarlöggjöf leggur til að samið verði við PACTA um persónuverndarfulltrúa fyrir Dalvíkurbyggð, sbr. meðfylgjandi samningsdrög. Senda þarf tilkynningu til Persónuverndar fyrir 15. júlí n.k. um hver sé persónuverndarfulltrúi sveitarfélagsins.
a) Lagt fram til kynningar.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að samið verði við PACTA um starf persónuverndarfulltrúa fyrir Dalvíkurbyggð á grundvelli fyrirliggjandi samningsdraga.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að samið verði við PACTA um starf persónuverndarfulltrúa fyrir Dalvíkurbyggð á grundvelli fyrirliggjandi samningsdraga.
11.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Ný lög um lögheimili og aðsetur
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 6. júlí 2017, er varðar ný lög um lögheimili og aðsetur. Meginmarkmið laganna er að stuðla að því að búsetu- og aðsetursskráning fólks sé rétt en rétt skráning er mikilvæg m.a. með tilliti til réttaröryggis í meðferð ágreiningsmála sem snerta búsetu og aðsetur. Á heimasíðu Sambandsins er aðgengilegt ítarefni frá lögfræði- og velferðarsviði Sambandsins yfir helstu breytingar á lögunum. Lögin öðlast gildi 1. janúar 2019, nema 3. mgr. 2. gr. og 7. gr. sem taka gildi 1. janúar 2020.
Lagt fram til kynningar.
12.
Frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Staðgreiðsla janúar - júní 2018
Samkvæmt samantekt sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs af vef Samband íslenskra sveitarfélaga þá er hækkun útsvars til Dalvíkurbyggðar janúar - júní 2018 13,22% miðað við sama tímabil árið 2017 og á verðlagi hvors árs fyrir sig.Meðaltalshækkun útsvars til sveitarfélaga fyrir sama tímabil er 9,93%.
Lagt fram til kynningar.
13.
Frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Fjárhagsáætlun 2018; heildarviðauki I
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti tillögu að heildarviðauka I við fjárhagsáætlun 2018 með þeim 16 viðaukum sem samþykktir hafa verið í byggðaráði og sveitarstjórn það sem af er árs.Samkvæmt heildarviðaukanum er niðurstaða Aðalsjóðs að lækka úr um 20,3 m.kr. afgangi og í um 2,1 m.kr. halla. Niðurstaða A-hluta er að lækka úr 68,9 m.kr. afgangi og í 52,2 m.kr. afgang. Niðurstaða samstæðu A- og B- hluta er að lækka úr 90,5 m.kr. afgangi og í 73,3 m.kr. afgang.Fjárfestingar eru að hækka úr 267,3 m.kr. og í 287,1 m.kr. eða um 19,8 m.kr.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum heildarviðauka I við fjárhagsáætlun 2018.
14.
Ráðning sveitarstjóra, sbr. 47. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 206/2013 með síðari breytingum.
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis kl. 16:19.Á 869. fundi byggðaráðs þann 22. janúar 2018 var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið vék af fundi Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, kl. 12:14. Þórhalla kom inn á fundinn að nýju kl. 12:14. Á 304. fundi sveitarstjórnar þann 11. júní 2018 var eftirfarandi bókað: "Til máls tók: Katrín Sigurjónsdóttir sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og 7 lið hér á eftir og vék af fundi kl. 10:19. Forseti leggur fram eftirfarandi tillögu: "Sveitarstjórn samþykkir að ráða Katrínu Sigurjónsdóttur, kt. 070268-2999, til heimils að Sunnubraut 2, 620. Dalvík, sem sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar kjörtímabilið 2018-2022. Byggðarráði er falið að ganga frá starfssamningi við sveitarstjóra." Fleiri tóku ekki til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda tillögu um ráðningu sveitarstjóra, Katrín Sigurjónsdóttir tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis. " Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela formanni byggðaráðs og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna drög að starfssamningi við sveitarstjóra. "Á 870. fundi byggðaráðs þann 4. júlí s.l. var umfjöllun og afgreiðslu um þennan lið frestað.Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að starfs- og launasamningi við Katrínu Sigurjónsdóttur, sveitarstjóra.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi drög að samningi og felur forseta sveitarstjórnar að undirrita fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
15.
Frá 306. fundi umhverfisráðs þann 8. júní 2018; Umsókn um uppsetningu á skilti við Goðabraut 3, Dalvík og sunnan Dalvíkur
Katrín Sigurjónsdóttir kom inn á fundinn að nýju kl. 16:21.Á 306. fundi umhverfisráðs var eftirfarandi bókað:"Með innsendum erindum dags. 14. og 25. maí 2018 óskar Grzegorz Tomasz Maniakowski fyrir hönd Gregdalvik ehf. eftir leyfi til uppsetningar á skilti við Goðabraut 3, Dalvík og sunnan Dalvíkur samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Umhverfisráð samþykkir að veita umbeðið leyfi og felur svisstjóra að hafa eftirlit með framkvæmdunum. Samþykkt með fimm atkvæðum. "Á 870. fundi byggðaráðs þann 4. júlí s.l. var afgreiðslu á ofangreindum lið frestað og sveitarstjóra falið að afla nánari upplýsinga á milli funda.Sveitarstjóri gerði grein fyrir þeim upplýsingum sem hún hefur aflað á milli funda um málið, sbr. fundur þann 10.07.2018 með Grzegorz Tomasz Maniakowski.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs hvað varðar veitingu á umbeðnu leyfi og að felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að hafa eftirlit með framkvæmdinni.
16.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; fundagerðir stjórnar nr. 860 og nr. 861
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 860 og nr. 861.
Lagt fram til kynningar.
17.
Frá Eyþingi; fundargerð stjórnar nr. 306.
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Eyþings nr. 306.
Lagt fram til kynningar.
18.
Atvinnumála- og kynningarráð - 35, frá 04.07.2018
19.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 101, frá 02.07.2018
Til afgreiðslu:3. liður.4. liður.
20.
Menningarráð - 68, frá 03.07.2018
Til afgreiðslu:5. liður.
21.
Umhverfisráð - 307, frá 06.07.2018
Til afgreiðslu:3. liður.5. liður 6. liður.7. liður.8. liður.9. liður.10. liður.14. liður.
22.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 75, frá 05.07.2018
Til afgreiðslu:6. liður.