Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

870. fundur
4. júlí 2018 kl. 13:00 - 16:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Ingi Sveinsson formaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson aðalmaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Heilsufarsmælingar 2018; samantekt.
Málsnúmer 201803078
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Anita Aanesen, yfirhjúkrunarfræðingur, og Guðmundur Pálsson, læknir, frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Dalvík, kl. 13:00. Einnig komu á fundinn Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, kl. 13:00.Anita og Guðmundur kynntu almennar niðurstöður úr heilsuskoðun starfsmanna Dalvíkurbyggðar 2018.Til umræðu ofangreint.Anita og Guðmundur viku af fundi kl. 13:39.Gísli Rúnar vék af fundi kl. 13:44.
Lagt fram til kynningar.
2.
Frá 227. fundi fræðsluráðs þann 26.06.2018; Starfsmannamál 2017 og 2018 Krílakoti og verkefnastjóri sérkennslu
Málsnúmer 201806077
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri Krílakots, kl. 13:30.Á 227. fundi fræðsluráðs þann 26. júní 2018 var eftirfarandi bókað:"Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og mennningarsviðs, kynnti erindi hans og leikskólastjóra Krílakots sem lagt verður fyrir byggðaráð og að hluta til var lagt fyrir á síðasta fundi fræðsluráðs. Þar er gerð grein fyrir stöðugildum 2017 og 2018 og beiðni um ráðningu verkefnastjóra sérkennslu. Ágústa K. Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri, skýrði stöðu starfsmannamála nánar á fundinum. fram til kynningar. Sveitarstjóri, Katrín Sigurjónsdóttir, lagði áherslu á mikilvægi þess að vel sé staðið að móttöku nýrra starfsmanna og að þeim sé kynnt mannauðsstefna Dalvíkurbyggðar við upphaf starfsferils",Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs,dagsett þann 21. júní 2018, er varðar beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2018 vegna verkefnastjóra sérkennslu á Krílakoti og samantekt á stöðugildum við Krílakot 2017 og fyrstu fjóra mánuði ársins 2018. Fram kemur að árið 2017 var upprunaleg heimild stöðugilda 23,6. Með samþykktum viðaukum við fjárhagsáætlun 2017 var heimild stöðugilda árið 2017 25,43 en raun varð 24,65. Samkvæmt gildandi fjárhagsáætlun er heimild stöðugilda nú 27,3 en fyrstu 4 mánuði ársins er fjöldi stöðugilda 29,63 eða 2,33 umfram heild. Launakostnaður fyrstu 4 mánuði ársins er því um 6,0 m.kr. umfram heimild. Í upphafi ársins 2018 var ráðið inn í 3 stöðugildi vegna veikinda starfsmanna en ekki var gert ráð fyrir þeim stöðugildum í launa- og fjárhagsáætlun 2018. Óskað er eftir heimild til að ráða í starf verkefnastjóra sérkennslu sem þýðir 25% aukning á stöðugildi og kostnað um 2,0 m.kr. Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
3.
Frá 304. fundi sveitarstjórnar þann 11.06.2018; Verkefnastjóri sérkennslu á Krílakoti 2018
Málsnúmer 201805066
Á 226. fundi fræðsluráðs þann 23. maí 2018 var eftirfarandi bókað:"Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og leikskólastjóri Krílakots lögðu fram beiðni um ráðningu í nýja stöðu verkefnastjóra sérkennslu á Krílakoti. Um er að ræða 100% starf. Leikskólakennari sem nú er að láta af 75% starfi hefur sinnt sérkennslu fram að þessu. Auk þess er óskað eftir 15% viðbótarstöðugildi til sérkennslu vegna aukinna þarfa. Samtals er um 40% aukningu stöðugilda að ræða. Áætlaður kostnaður við þessa aukningu er um það bil 3.000.000 kr.á ári.Fræðsluráð samþykkir beiðnina með 5 atkvæðum." Á 304. fundi sveitarstjórnar þann 11. júní 2018 var samþykkt sú tillaga að vísa ofangreindu máli til byggðaráðs.Tekið fyrir erindi frá leikskólastjóra Krílakots, dagsett þann 18. maí 2018, þar sem óskað er eftir leyfi til að auglýsa eftir sérkennslustjóra við leikskólann í 100% starf sem allra fyrst. Starfsmaður sem hefur séð um málörvun og sérkennslu tvítyngdra barna í 75% starfi mun láta af störfum 15. júlí n.k. Að auki er óskað eftir heimild til að ráða í 15% starf vegna stuðnings. Samtals er því um að ræða 40% aukningu á stöðugildum við Krílakot. Áætlaður kostnaður vegna þessa er kr. 2.892.000 á ári.Til umræðu ofangreint.Guðrún Halldóra vék af fundi kl. 14:17.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir formlegri beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun Krílakots vegna starfsmannamála ásamt þarfagreiningu stöðugilda til áramóta, sbr. einnig mál 201806077 hér að ofan.
4.
Frá 304. fundi sveitarstjórnar þann 11.06.2018; Starfslok kennsluráðgjafa 2018
Málsnúmer 201805069
Á 304. fundi sveitarstjórnar þann 11. júní 2018 var samþykkt sú tillaga að vísa eftirfarandi til byggðaráðs frá 226. fundi fræðsluráðs þann 23. maí 2018:"Lagt var fram bréf frá Dóróþeu Reimarsdóttur, dagsett 16. maí 2018, þar sem hún segir upp starfi kennsluráðgjafa á fræðslusviði frá og með 1. nóvember 2018. Fræðsluráð þakkar Dóróþeu samstarfið og óskar henni velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur. Fræðsluráð felur sviðsstjóra að auglýsa starfið laust til umsóknar sem fyrst." Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar og vísað til næsta liðar hér á eftir; málsnúmer 201807002.
5.
Frá sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Kennsluráðgjafi/sérfræðingur á skólaskrifstofu 2018
Málsnúmer 201807002
Tekin fyrir greinargerð sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 2.júlí 2018, er varðar mat á ráðningu kennsluráðgjafa / sérfræðings á fræðslu- og menningarsviði. Samkvæmt vinnureglum Dalvíkurbyggðar á forstöðumaður stofnunar eða sviðsstjóri, áður en eldra starf er auglýst laust til umsóknar, að framkvæma mat á þörf fyrir ráðningu í starfið og skila slíku mati skriflega til sveitarstjóra sem leggur það fyrir byggðaráð ef þörf krefur. Kanna skal hvort þörf er á breytingu á starfslýsingu eða kröfum til umsækjenda eða ekki. Einnig skal kanna möguleika þess að leggja starfið niður eða sameina það öðru. Kanna skal hvort þörf er á breytingu á starfslýsingu eða kröfum til umsækjenda eða ekki. Einnig skal kanna möguleika þess að leggja starfið niður eða sameina það öðru. Lagt er til að auglýst verði eftir starfsmanni í starfið í 80%-100% stöðugildi.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að auglýsa starfið með áorðnum breytingum á auglýsingu sem gerðar voru á fundinum og að sveitarstjóri aðstoði sviðsstjóra við ráðningarferlið.
6.
Frá sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Viðaukabeiðni við fjárhagsáætlun Árskógar- og Dalvíkurskóla fjárhagsárið 2018; skólamáltíðir
Málsnúmer 201806127
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 28. júní 2018, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun Árskógarskóla og Dalvíkurskóla vegna ársins 2018 vegna mistaka / misskilnings við útreikninga/bókunar á mötuneytiskostnaði.Óskað er eftir viðauka við Dalvíkurskóla, deild 04210, að upphæð kr. 12.250.800 nettó, og við Árskógarskóla, deild 04240, að upphæð kr. 1.347.000 nettó.Til umræðu ofangreint.Hlynur vék af fundi kl. 15:02.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu málsins og óska eftir frekari upplýsingum er varðar tekjuhlið viðaukans hvað Dalvíkurskóla varðar.
7.
Fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022
Málsnúmer 201806016
a) AuglýsingSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti tillögu að auglýsingu vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2019 þar sem auglýst er eftir erindum, sbr. fyrri ár.b) StefnumótunÁ tímabilinu 21.06.2018 - 13.09.2018 er gert ráð fyrir samkvæmt tímaramma fjárhagsáætlunar að byggðaráð fjalli um "Umræður og tillögur að verkefnum, framkvæmdum, áherslum og stefnu. Umræður um verklag, áherslur, markmið og tímaramma. Byggðaráð tekur formlega ákvörðun um markmið fjárhagsáætlunar og setur fram stefnu".
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu að auglýsingu eins og hún liggur fyrir.
b) Til umræðu.
8.
Siðareglur kjörinna fulltrúa - endurskoðun í upphafi kjörtímabils; framhald endurskoðunar
Málsnúmer 201806084
Frestað til næsta fundar.
9.
Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Ráðningarnefnd Dalvíkurbyggðar - tillaga
Málsnúmer 201806125
Frestað til næsta fundar.
10.
Frá Stangveiðifélagi Akureyrar; Veiðidagar Dalvíkurbyggðar í Svarfaðardalsá 2018
Málsnúmer 201806091
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi úthlutun veiðileyfa til Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 19. maí 2018, frá Stangveiðifélagi Akureyrar vegna Svarfaðardalsár - svæði 1. Um er að ræða 10 stangir á tímabilinu 9. júlí 2018 til og með 8. september 2018.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ofangreind leyfi Dalvíkurbyggðar verði auglýst laus til umsóknar fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar 67 ára og eldri og fyrir ungmenni 18 og yngri.
Upplýsingafulltrúa falið að auglýsa veiðileyfin laus til umsóknar á heimasíðunni og dregið verði úr umsóknum fyrir hvern veiðidag. Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí n.k.
11.
Frá Greiðri leið ehf.; Hluthafafundur
Málsnúmer 201806103
Tekið fyrir erindi frá Greiðri leið ehf., dagsett þann 22.06.2018, þar sem boðað var til hluthafafundar mánudaginn 2. júlí s.l. á Akureyri.
Lagt fram til kynningar.
12.
Frá Íslenskri orkumiðlun ehf.; Fyrirspurn um raforkukaup
Málsnúmer 201806056
Á 869. fundi byggðaráðs þann 22. júní 2018 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Íslenskri orkumiðlun ehf., dagsett þann 4. júní 2018, móttekið þann 14. júní 2018, þar sem óskað er eftir upplýsingum og gögnum frá sveitarfélaginu, m.a. með vísan til upplýsingalaga nr. 140/2012, í tengslum við raforkukaup sveitarfélagsins. a) Hefur Dalvíkurbyggð boðið út raforkukaup sveitarfélagsins og/eða hyggur sveitarfélagið á útboð raforkukaupa félagsins á grundvelli laga nr. 120/2016 ? b) Hefur Dalvíkurbyggð stefnu í útboðum / innkaupum á raforku (verðstefna / almenn stefna)? c) Hver voru heildarinnkaup sveitarfélagsins á raforku árið 2017 og fyrstu 3 mánuði ársins 2018 (flokkað eftir af hverjum var keypt, hversu mikið magn á og hvaða verði)? Óskað er eftir afstöðu Dalvíkurbyggðar og svörum við framangreindu sem fyrst, sem og þeim upplýsingum sem óskað er eftir, og eigi síðar en 14 dögum eftir móttöku þessarar beiðni. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að afla frekari upplýsinga um málið. "Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að svarbréfi við ofangreindri fyrirspurn.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu að svarbréfi eins og það liggur fyrir.
13.
Frá Prima Lögmönnum ehf.; Vegna umsóknar um lóðarstækkun; Árskógur lóð 1; staða mála
Málsnúmer 201711054
Á 869. fundi byggðaráðs þann 22. júní 2018 samþykkti byggðaráð að fela sveitastjóra að ræða við eigendur að Árskógi lóð 1 um framhald málsins.Sveitarstjóri gerði grein fyrir framvindu málsins á milli funda byggðaráðs og samtölum sínum við eigendur að Árskógi lóð 1 að lausnum.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að taka málið áfram.
14.
Frá sviðstjóra veitu- og hafnasviðs; Viðauki vegna lagnavinna við Öldugötu á Árskógssandi.
Málsnúmer 201806066
Frestað til næsta fundar.
16.
Ráðning sveitarstjóra, sbr. 47. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 206/2013 með síðari breytingum; drög að samningi
Málsnúmer 201806008
Frestað til næsta fundar.
17.
Félagsmálaráð - 219, frá 26.06.2018
Málsnúmer 1806004F
18.
Fræðsluráð - 227, frá 26.06.2018
Málsnúmer 1806003F
19.
Umhverfisráð - 306, frá 08.06.2018
Málsnúmer 1806002F
Til afgreiðslu:1. liður.2. liður.3. liður, sér liður á dagskrá.5. liður.8. liður.10. liður.11. liður.12. liður.
20.
Sveitarstjórn - 304, frá 11. 06.2018. Til kynningar.
Málsnúmer 1806001F
Guðmundur St. Jónsson vék af fundi kl. 16:23 til annarra starfa.
Lagt fram til kynningar.
21.
Frá 306. fundi umhverfisráðs þann 8. júní 2018; Fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand.
Málsnúmer 201608099
Á 306. fundi umhverfisráðs þann 8. júní 2018 var eftirfarandi bókað:"Laxós ehf. hefur látið vinna tillögu að breytingu á aðalskipulagi þar sem gert er ráð fyrir nýju 7.650 m² athafnasvæði á um 0,8 ha landfyllingu innan við höfnina á Árskógssandi. Þéttbýlismörkum á sveitarfélagsuppdrætti er breytt til samræmis. Fyrirhugað er að 1. hluti seiðaeldisstöðvar fyrirtækisins verði á athafnalóð við Öldugötu en 2. hluti, sjógönguseiðadeild, verði á nýja athafnasvæðinu við höfnina. Lýsing skipulagsbreytingarinnar var auglýst í júlí 2017. Fyrirhugaðar framkvæmdir voru tilkynntar Skipulagsstofnun til ákvörðunar um matsskyldu skv. ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Niðurstaða stofnunarinnar var að fyrirhuguð seiðaeldisstöð á Árskógssandi væri ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og væri því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Lögð var fram tillaga að breyttu aðalskipulagi á breytingablaði dags. 5. júní 2018. Umhverfisráð leggur til að breytingartillagan verði kynnt almenningi og hagsmunaaðilum sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gefi umræður eða ábendingar sem fram kunna að koma á kynningarfundi ekki tilefni til breytinga verði tillagan send Skipulagsstofnun til yfirferðar og auglýst sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga að fenginni umsögn stofnunarinnar. Samþykkt með fimm atkvæðum."Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda tillögu umhverfisráðs um að breytingartillagan verði kynnt almenningi og hagsmunaaðilum sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gefi umræður eða ábendingar sem fram kunna að koma á kynningarfundi ekki tilefni til breytinga verði tillagan send Skipulagsstofnun til yfirferðar og auglýst sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga að fenginni umsögn stofnunarinnar.