Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
866. fundur
3. maí 2018
kl.
13:00
-
15:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Kristján Guðmundsson
Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Frá Ungmennafélagi Íslands: Framlag sveitarfélaga til íþrótta- og ungmennafélaga - fyrirspurn
Tekið fyrir erindi frá Ungmennafélagi Íslands, rafpóstur dagsettur þann 30. apríl 2018, þar sem leitað er upplýsinga við eftirfarandi spurningum: 1. Hvert er beint fjárhagslegt framlag sveitarfélagsins við íþrótta- og ungmennafélag? (fjárhagsstyrkur og aðstöðustyrkur/innri leigu)2. (Ef við á) Hvert er beint framlag sveitarfélagsins við íþróttahéraðið?3. Hvað er frístundastyrkur sveitarfélagsins hár?
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að svara ofangreindu erindi.
3.
Frá Slysavarnardeildinni Dalvík; Beiðni um styrk
Tekið fyrir erindi frá Slysavarnardeildinni Dalvík, bréf dagsett þann 24. apríl 2018, þar sem formaður óskar eftir styrk til að senda 3 stjórnarmenn deildarinnar á heimaráðsstefnu slysavarna með Slysavarnafélaginu Landsbjörg sem haldin verður í Bangkok 5. - 7. nóvember 2018. Inntak ráðstefnunnar er ofbeldi, áverkar og öryggi.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fá forsvarsmenn Slysavarnardeildarinnar Dalvík á fund.
4.
Fjárhagsáætlun 2018; stöðumat janúar - mars - skil frá stjórnendum.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti skil stjórnenda hvað varðar stöðumat janúar - mars 2018, þ.e. staða bókhalds í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun.Einnig farið yfir:Staðgreiðslu janúar- mars 2018 í samanburði við fyrra ár og önnur sveitarfélög.Áætluð framlög Jöfnunarsjóðs 2018 skv. nýjustu upplýsingum. í samanburði við fjárhagsáætlun.Laun og launatengd gjöld janúar - mars 2018 ásamt stöðugildum, samanburður raun við heimildir.
Lagt fram til kynningar.
5.
Frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra; Ársreikningur HNE 2017
Tekinn fyrir rafpóstur frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, dagsettur þann 26. apríl 2018, þar sem meðfylgjandi er ársreikningur HNE vegna ársins 2017.
Lagt fram til kynningar og vísað til umhverfisráðs.
6.
Frá Greiðri leið; Aðalfundur 2018
Tekinn fyrir rafpóstur frá Greiðri leið ehf., dagsettur þann 26. apríl 2018, þar sem boðað er til aðalfundur 11. maí n.k. kl. 15:00.
Lagt fram til kynningar.
7.
Frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar; Hækkun á framlagi sveitarfélaga 2018 til AFE
Tekinn fyrir rafpóstur dagsettur þann 2. maí 2018 frá framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar þar sem kynnt er eftirfarandi bókun frá stjórnarfundi AFE þann 16. apríl s.l.:"Stjórn AFE samþykkir tillögu framkvæmdastjóra um að leggja fram á aðalfundi AFE 3% hækkun framlaga frá sveitarfélögunum. Framkvæmdastjóra falið að kynna það fyrir sveitarstjórnum fyrir aðalfund. "
Lagt fram til kynningar.