Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

864. fundur
18. apríl 2018 kl. 13:00 - 15:10
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
3.
Frá 304. fundi umhverfisráðs frá 12.04.2018; Endurnýjun á reykköfunarbúnaði slökkviliðs Dalvíkur
Málsnúmer 201804031
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs, og Vilhelm Anton Hallgrímsson, slökkviliðsstjóri, kl. 14:05.Á 304. fundi umhverfisráðs þann 12. apríl 2018 var eftirfarandi bókað:"Til umræðu endurnýjun á reykköfunarbúnaði slökkviliðs Dalvíkur. Undir þessum lið kom á fundinn Vilhelm Anton Hallgrímsson slökkvilisstjóri Vilhelm anton vék af fundi kl. 08:50 Umhverfisráð leggur til við byggðarráð að farið verði strax í kaup á umbeðnum búnaði samkvæmt innsendu erindi slökkviliðsstjóra dags. 19. mars 2018. Samþykkt með fimm atkvæðum." Til umræðu ofangreint.Vilhelm Anton vék af fundi kl. 14:20
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint erindi og viðauka nr. 10 / 2018 við deild 07210 allt að upphæð kr. 5.214.000. Viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
4.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201711054
Undir þessum lið sat fundinn Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs.Bókað í trúnaðarmálabók.
5.
Frá Herberti Hjálmarssyni o.fl.: Endurnýjun / viðhald á stoðvegg á lóðarmörkum v. Hafnarbrautar 16 og 18.
Málsnúmer 201708036
Undir þessum lið sat Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs, fundinn.Á 863. fundi byggðaráðs þann 11. apríl 2018 var m.a. eftirfarandi bókað:"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að leggja fyrir byggðaráð sem fyrst drög að samkomulagi við húseigendur að Hafnabraut 16 og 18 þar sem gert er ráð fyrir að sveitarfélagið komi að lausn málsins með framlagi allt að kr. 2.000.000 og að málinu sé þá lokið til framtíðar hvað varðar aðkomu sveitarfélagsins. "Sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs gerði grein fyrir framvindu málsins á milli funda.Til umræðu ofangreint.Kristján Guðmundsson vék af fundi kl. 14:44 til annarra starfa.Börkur Þór vék af fundi kl. 15:00
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að fá skriflegt svar frá eigendum að Hafnarbraut 16 og 18 hvort þeir fallist á ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs frá 11. apríl 2018.
6.
Innkaupareglur, endurskoðun skv. nýjum lögum; myndun vinnuhóps um endurskoðunina.
Málsnúmer 201703055
Ný lög um opinber innkaup tóku gildi þann 29. október 2016. Í 123. gr. eru þó ákvæði um gildistöku einstakra ákvæða.Til umræðu myndun vinnuhóps sem hafi það hlutverk að yfirfara og endurskoða innkaupareglur Dalvíkurbyggðar með ný lög til hliðsjónar og samhliða þeirri yfirferð verði farið yfir fyrirkomulag innkaupa hjá sveitarfélaginu og vinnuhópurinn komi með tillögur að breytingum, þar sem og/eða ef við á.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir með 2 atkvæðum að óska eftir tilnefningum frá framkvæmdastjórn í 3 manna vinnuhóp.