Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

858. fundur
1. mars 2018 kl. 13:00 - 15:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá 215. fundi félagsmálaráðs þann 8.2.2018; Leiðbeinandi reglur um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis
Málsnúmer 201710024
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, kl. 13:00.Á 857. fundi byggðaráðs þann 22. febrúar voru til umfjöllunar drög að reglum félagsmálasviðs um úthlutun á félagslegu leiguhúsnæði, sbr. fundir félagsmálaráðs þann 10. október 2017 og 8. febrúar 2018.Til umræðu ofangreint. Farið yfir stöðu mála.Eyrún vék af fundi kl. 13:19.
Lagt fram til kynningar.
2.
Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Styrktarsjóður EBÍ 2018
Málsnúmer 201802110
Tekið fyrir erindi frá styrktarsjóði Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 21. febrúar 2018, þar sem gefinn er kostur á að sækja um styrk í sjóðinn vegna sérstakra framfaraverkefna og hvert sveitarfélag getur aðeins sent inn eina umsókn. Umsóknarfrestur er til aprílloka.Dalvíkurbyggð fékk styrk árið 2016 að upphæð kr. 300.000 vegna göngubrúar yfir Svarfaðardalsá í Friðlandi Svarfdæla.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til framkvæmdastjórnar og óskar eftir tillögu frá framkvæmdastjórn.
3.
Frá Skíðafélagi Dalvíkur; Húsnæði og troðari
Málsnúmer 201802112
Tekið fyrir erindi frá stjórn Skíðafélags Dalvíkur, bréf dagsett þann 21. febrúar 2018, þar sem fjallað er um geymsluhúsnæði skíðasvæðisins annars vegar og endurnýjun á snjótroðara hins vegar. Óskað er eftir viðræðum við sveitarfélagið um þessi mál.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs til umfjöllunar.
4.
Frá Prima Lögmönnum ehf.; Vegna umsóknar um lóðarstækkun
Málsnúmer 201711054
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl. 13:25.Á 855. fundi byggðaráðs þann 8. febrúar 2018 var m.a. eftirfarandi bókað:"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að hafa samband við bæjarlögmann og fela honum að taka málið áfram í samræmi við umræður á fundinum."Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs gerðu grein fyrir framvindu málsins.
Lagt fram til kynningar
5.
Frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Starfsmannamál - ráðningar
Málsnúmer 201801025
Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs gerði grein fyrir starfsmannamálum sviðsins.Til umræðu ofangreint.Kristján Guðmundsson vék af fundi undir þessum lið kl. 13:56 vegna vanhæfis.
Lagt fram til kynningar.
7.
Frá skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga; Bílamál Tónlistarskólans á Tröllaskaga 2018
Málsnúmer 201802094
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 14:45.Tekið fyrir erindi frá Tónlistarskólanum á Tröllaskaga er varðar bílamál skólans, dagsett þann 22. febrúar 2018. Lagt er til að skólinn leigi 2 bíla í rekstrarleigu. Annar bílinn yrði staðsettur í Fjallabyggð og hinn í Dalvíkurbyggðar. Bílarnir yrðu afhentir 1. september og skilað 31. maí ár hvert. Lagt er til að óskað verði eftir heimild frá byggðaráði Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar að hefja viðræður við Bílaleigu Akureyrar á grundvelli tilboðs sem liggur fyrir.Á fundi skólanefndar TÁT þann 6. febrúar 2018 var eftirfarandi bókað varðandi ofangreint:2. 1801089 - Bifreiðamál TÁT, afnot og reksturBifreiðamál TÁT er til skoðunar. Núverandi bifreið er kostnaðarsöm í rekstri, óhagkvæm og viðhaldsfrek. Verið er að skoða rekstrarleigu á tveimur bílum. Áætlað að leiga og rekstur slíkra bíla sé mun hagstæðari en núverandi rekstur bifreiðar og kostnaður við akstur á starfsmannabílum. Hlyni Sigursveinssyni sviðsstjóra og Magnúsi Ólafssyni skólastjóra falið að vinna málið áfram og skila tillögu til nefndarinnar sem vísar tillögunni áfram til Byggðarráðs Dalvíkur og Bæjarráðs Fjallabyggðar.Á 544. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar þann 27. febrúar s.l. var ofangreint til umfjöllunar og samþykkti bæjarráð beiðnina fyrir sitt leyti.Til umræðu ofangreint.Kristján Guðmundsson vék af fundi kl. 14:51 til annarra starfa.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda tillögu frá Tónlistarskólanum á Tröllaskaga um bílamál.
9.
Frá Búfesti hsf: Möguleikar á samstarfi sveitarfélaga um nýtt framboð hagkvæmra íbúða á NA-landi
Málsnúmer 201802099
Tekið fyrir erindi frá Búfesti hsf, dagsett þann 22. febrúar 2018, endurnýjað erindi til sveitarfélaga á Norðausturlandi um mögulegt samstarf Búfesti hsf og sveitarfélaga og stéttarfélaga/íbúðafélaga um byggingu hagkvæmra íbúða og/eða um veitingu stofnstyrkja skv. lögum nr. 52/2016 til næstu 3ja til 5 ára.Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
10.
Málstefna Dalvíkurbyggðar; skipun vinnuhóps og erindisbréf.
Málsnúmer 201802007
Á 855. fundi byggðaráðs þann 8. febrúar 2018 var m.a. eftirfarandi bókað:"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir tilnefningum í 3 manna vinnuhóp sem hér segir: 1 frá grunnskóla 1 frá leikskóla 1 frá félagsmálasviði"Fyrir liggja tilnefningar í vinnuhópinn:Elsa Austfjörð frá Dalvíkurskóla.Eyrún Rafnsdóttir frá félagsmálasviði.Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir frá Krílakoti.Með fundarboði byggðaráðs liggja fyrir drög að erindisbréfi fyrir vinnuhópinn.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda tillögu að vinnuhópi og felur sviðsstjóra félagsmálasviðs að boða til fyrsta fundar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum drög að erindisbréfi en felur vinnuhópnum að leggja til áætluð skil.
11.
Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, 179. mál.
Málsnúmer 201802116
Tekinn fyrir rafpóstur, dagsettur þann 26. febrúar 2018, þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, 179. mál, eigi síðar en 13. mars n.k.
Lagt fram til kynningar.
12.
Frá Markaðsstofu Norðurlands; Arctic Coast Way - Norðurstrandarleið
Málsnúmer 201710103
Tekinn fyrir rafpóstur frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsettur þann 26. febrúar 2018, þar sem kynnt er þriðja áfangaskýrslan um Arctic Coast Way-Norðurstrandarleið.
Lagt fram til kynningar.