Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

855. fundur
8. febrúar 2018 kl. 13:00 - 15:33
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Starfsmannamál - ráðningar á veitu- og hafnasviði
Málsnúmer 201801025
Undir þessum lið kom á fund byggðráðs Þorsteinn K. Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, kl. 13:25.Á 851. fundi byggðaráðs þann 11. janúar 2018 var m.a. eftirfarandi bókað: "b) Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar, ráðning í starf í stað yfirhafnavarðar. Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Þorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri veitu- og hafnasviðs, kl. 13:27. Fyrir liggur að yfirhafnavörður mun láta af störfum í enda febrúar 2018. Til umræðu ráðning starfsmanns Hafnasjóðs Dalvíkurbyggð í stað yfirhafnavarðar. Þorsteinn gerði grein fyrir í hvaða farvegi málið er. Þorsteinn vék af fundi kl. 13:55.Lagt fram til kynningar."Á 71. fundi veitu- og hafnaráðs þann 17. janúar 2018 var eftirfarandi bókað:"Starfsmannamál.201801046Breytingar eru fyrirsjáanlegar á hjá Hafnasjóði Dalvíkurbyggðar, Gunnþór E. Sveinbjörnsson, yfirhafnavörður, mun láta af störfum 1. mars n.k. vegna aldurs því er brýnt að skoða starfmannamál Hafnasjóðs. Á síðasta fundi ráðsins ræddi sviðsstjóri þessi mál og fól ráðið honum að koma með tillögu næsta fund ráðsins.Veitu- og hafnaráð óskar eftir því að fá á næsta fund ráðsins tillögu að starfslýsingum og skipurit starfsmanna Hafnasjóðs."Þorsteinn gerði grein fyrir í hvaða farvegi ofangreint mál er.Þorsteinn vék af fundi kl. 13:45.
Lagt fram til kynningar.
3.
Frá Prima Lögmönnum ehf.; Vegna umsóknar um lóðarstækkun
Málsnúmer 201711054
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl. 13:45.Á 851. fundi byggðaráðs þann 11. janúar 2018 var eftirfarandi bókað:"Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir framvindu málsins milli funda byggðaráðs.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela bæjarlögmanni að taka málið áfram."Tekið fyrir erindi frá Prima lögmönnum, dagsett þann 5. febrúar 2017, fyrir hönd Guðraðar Ágústsonar og Freydísar Dönu Sigurðardóttur þar sem fram koma tillögur þeirra í tengslum við ef hesthús verði reist á annarri lóð en þau upprunalegu ætluðu.Til umræðu ofangreint.Börkur vék af fundi kl. 13:59.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að hafa samband við bæjarlögmann og fela honum að taka málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
4.
Málstefna Dalvíkurbyggðar skv. sveitarstjórnarlögum, skipun vinnuhóps.
Málsnúmer 201802007
Samkvæmt 130. gr sveitarstjórnarlaga, XIV. kafla. þá segir eftirfarandi um Málstefnu:"Sveitarstjórn mótar sveitarfélaginu málstefnu í samráði við Íslenska málnefnd og eftir atvikum málnefnd um íslenskt táknmál. Þar skal koma fram að öll gögn liggi fyrir á íslensku svo sem kostur er og gerð grein fyrir heimilum undantekningum á þeirri reglu. Þar skulu settar reglur um notkun íslensks táknmáls og íslensks punktaleturs í gögnum og starfsemi sveitarfélagsins. Enn fremur skal koma fram hvaða gögn liggja að jafnaði fyrir í erlendum málbúningi og hvaða tungumál þar er um að ræða. Þá skal þar setja reglur um rétt íbúa af erlendum uppruna til samskipta við stofnanir sveitarfélagsins á annarri tungu en íslensku. Mál það sem er notað í starfsemi sveitarfélags eða á vegum þess skal vera vandað, einfalt og skýrt. "Til umræðu skipun vinnuhóps við gerð málstefnu fyrir Dalvíkurbyggð.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir tilnefningum í 3 manna vinnuhóp sem hér segir:
1 frá grunnskóla
1 frá leikskóla
1 frá félagsmálasviði
5.
Breyting á A-deild Brúar lífeyrissjóðs vegna breytinga á lögum
Málsnúmer 201703138
Á 853. fundi byggðaráðs þann 25. janúar 2018 var m.a. eftirfarandi bókað:"Til upplýsingar: a) Sveitarfélagið hefur fengið sent gögn sem eru forsendur að uppgjörinu. b) Hlutdeild Dalvikurbyggðar í uppgjöri vegna Hafnasamlag Eyjafjarðar, er 63,49% eða kr. 506.081. c) Sótt hefur verið um lán til Lánasjóðs sveitarfélaga."Upplýst var á fundinum að Lánasjóður sveitarfélaga hefur boðið skammtímalán til að brúa bilið til að hægt sé að standa skil á greiðslum í síðasta lagi 15. febrúar n.k. þar til langtímafjármögnun liggur fyrir. Dalvíkurbyggð ætlar að þiggja boð sjóðsins um brúarlán.
Lagt fram til kynningar.
6.
Hvatasamningur við Bjórböðin ehf.
Málsnúmer 201609031
Á 853. fundi byggðaráðs þann 25. janúar 2018 var m.a. eftirfarandi bókað:"Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með þremur atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að ganga frá samningi við Bjórböðin ehf. Heildarupphæð þriggja ára samnings er kr. 7.755.971. Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með þremur atkvæðum að vísa samningsdrögunum og afgreiðslunni til byggðaráðs.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu atvinnumála- og kynningarráðs og felur upplýsingafulltrúa að ganga frá samningsdrögum og leggja fyrir byggðaráð til umfjöllunar og afgreiðslu."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu samningsdrög til umfjöllunar og afgreiðslu á milli Dalvíkurbyggðar og Bjórböðin ehf. sem er hvatasamningur til 3ja ára og heildar styrkfjárhæðin er kr. 7.755.971, fyrst kr. 4.123.600 árið 2018.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreind samningsdrög eins og þau liggja fyrir og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun 2018, viðauki 2/2018, að upphæð kr. 4.123.600 á deild 13810, lykill 9145. Viðaukanum mætt með lækkun á handbæru fé.

7.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Málsnúmer 201604102
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti stöðulista bókhalds í samburði við gildandi fjárhagsáætlun 2017, janúar - desember.
Lagt fram til kynningar.
8.
Frá Skipulagsstofnun; 20.000 tonna laxeldi í lokuðum eldiskvíum í Eyjafirði - beiðni um umsögn.
Málsnúmer 201802015
Tekið fyrir erindi frá Skipulagsstofnun, dagsett þann 24. janúar 2018 en móttekið 29. janúar 2018, þar sem óskað er umsagnar Dalvíkurbyggðar um meðfylgjandi tillögu að matsáætlun framkvæmdar AkvaFuture um 20.000 tonna laxeldi í lokuðum eldiskvíum í Eyjafirði. Óskað er eftir umsögn fyrir 12. febrúar n.k.
Lagt fram til kynningar.
9.
Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um skilyrðislausa grunnframfærsla (borgaralaun), 9. mál.
Málsnúmer 201802018
Tekinn fyrir rafpóstur, dagsettur þann 2. febrúar 2018 frá nefndasviði Alþings þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um skilyrðislausa grunnframfærsla (borgaralaun), 9. mál.Óskað er eftir að umsögnin berist eigi síðar en 2. mars n.k.
Lagt fram til kynningar.
10.
Frá Ragnari Þ. Þóroddssyni; Útgáfa bókar um Brimar - "Tabula Gratulatoria"
Málsnúmer 201802022
Tekið fyrir dreifibréf frá Ragnari Þ. Þóroddsyni, ódagsett en móttekið þann 5. febrúar 2018, þar sem gefinn er sá kostur að nafn og lógó fyrirtækis/stofnunar/sveitarfélags verði ritað á "Tablula Gratulatioria" blaðsíðu í bók um Brimar "Demanta Dalvíkur" sem kemur út um mitt árið 2018 til heiðurs hans arfleiðar. Gert er ráð fyrir að lágmarki kr. 50.000 sem endurgjald.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum framlag að upphæð kr. 100.000, vísað á lið 21010-4915.