Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
849. fundur
14. desember 2017
kl.
13:00
-
14:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Kristján Guðmundsson
Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Trúnaðarmál
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, kl. 13:44.Bókað í trúnaðarmálabók.Eyrún vék af fundi kl.14:20.
4.
Samkomulag við Eimskip; lóðirnar Sjávarbraut 3 og 5 við Dalvíkurhöfn.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að samkomulagi á milli Dalvíkurbyggðar og Eimskips Íslands ehf., kt. 421104-3520, þar sem vísað er til fyrra samkomulags frá 14. júlí 2016 til útskýringar á þessu samkomulagi. Um er að ræða samkomulag vegna úthlutun á lóðum nr. 3 og nr. 5 við Sjávarbraut í stað lóðar nr. 7 við Sjávarbraut, sbr. fyrra samkomulag. Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint samkomulag við Eimskip Íslands ehf. eins og það liggur fyrir.