Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

844. fundur
9. nóvember 2017 kl. 13:00 - 16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir Varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201710070
Bókað í trúnaðarmálabók.
2.
Nýting Ungó
Málsnúmer 201709004
Hlynur Sigursveinsson, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum lið, kl. 13:23.Á 839. fundi byggðaráðs Dalvíkurbyggðar þann 12. október 2017 var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Kristín Aðalheiður Símonardóttir og Bjarni Gunnarsson frá Gísla, Eiríki og Helga ehf., og Ingvar Kristinsson, umsjónarmaður fasteigna, og Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs kl. 13:00. Á 833. fundi byggðaráðs þann 7. september 2017 samþykkti byggðaráð eftirfarandi: "Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fá fulltrúa Leikfélags Dalvíkur á fund sem og að fá forsvarsmenn Gísla, Eiríks og Helga ehf. á fund. Byggðaráð óskar eftir að fá áætlun frá Eignasjóði um kostnað vegna endurnýjunar á klósettaðstöðu. Byggðaráð tekur jákvætt í að sýningargluggi verði gerður eins og gert er grein fyrir í erindinu með fyrirvara um tilskilin leyfi byggingafulltrúa en framkvæmdin yrði á kostnað Gísla, Eiríks og Helga ehf." Fulltrúar Leikfélags Dalvíkur komu á fund byggðaráðs 14. september s.l. Tekinn fyrir rafpóstur frá Gísla, Eiríki og Helga ehf., dagsettur þann 1. september 2017, þar sem fram kemur að óskað er eftir að tekið verði tillit til eftirfarandi tillagna vegna fjárhagsáætlunar 2018. Um er að ræða sömu tillögur og árið áður, sbr. málsnr. 201609017. Tillögur frá forsvarsmönnum Gísla, Eiríks og Helga ehf.; 1. Farið verði í endurnýjun snyrtinga í andyri Ungó - samnýtt af kaffihúsi Bakkabræðra. Undirrituð lýsa sig tilbúin til þátttöku í kostnaði/vinnu gegn áframhaldandi samningi um afnot af andyri/snyrtingum. 2. Undirrituð hafa áður viðrað hugmyndir um að búa til glugga milli sýningarrýmis Ungo (bíósýningarsals) yfir í setustofu Bakkabræðra á efri hæð kaffihúss Bakkabræðra. Óskað er eftir þvi að farið verði í þessa framkvæmd og eru untirrituð tilbúin til viðræðna um útfærslu og þáttöku í kostnaði. Til umræðu ofangreint. Kristín Aðalheiður, Bjarni, Ingvar, Börkur Þór og Hlynur viku af fundi kl.13:40. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs og sveitarstjóra að funda með forsvarmönnum Leikfélags Dalvíkur og Gísla, Eiríks og Helga ehf. og ræða meðal annars nýtingu á Ungó og samningamál."Sveitarstjóri og sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerðu grein fyrir fundi sínum með forsvarsmönnum Leikfélags Dalvíkur og Gísla, Eiríks og Helga ehf.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs að leggja fyrir byggðaráð drög að auglýsingu varðandi útleigu á Ungó utan starfstíma Leikfélags Dalvíkur sem og drög að samningi við Leikfélag Dalvíkur og drög að samningi við mögulegan leigutaka að Ungó fyrir utan starfstíma Leikfélagsins.
3.
Frá 95. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs frá 7.11.2017; Ábending frá Bessa og Orra á Ingvörum
Málsnúmer 201709117
Á 95. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 7. nóvember 2017 var eftirfarandi bókað:"Tekin var fyrir ábending frá Bessa og Orra á Ingvörum varðandi hjólabrettagarð. Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar fyrir ábendinguna. Íþrótta- og æskulýðsráð vísaði sl. vor til umræðu við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2018 hugmyndum um hjólabraut. Í vinnu við fjárhagsáætlun á síðasta fundi ráðsins misfórst að fjalla um þetta mál og óskar því íþrótta- og æskulýðsráð eftir því að sveitarstjórn kanni hvort hægt verði að gera ráð fyrir einni braut á fjárhagsáætlun fyrir árið 2018. Kostnaður við slíka braut er áætlaður kr. 5.900.000"Til umræðu ofangreint.Hlynur vék af fundi kl. 13:54.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu íþrótta- og æskulýðsráðs og leggur til að bætt verði við fjárhagsáætlun 2018 kr. 5.900.000 á deild 32.
5.
Frá umhverfis- og tæknisviði; Tilboð í leigu á gæsluvallarhúsi við Svarfaðarbraut.
Málsnúmer 201710099
Þann 18. október s.l. var auglýst til leigu Gæsluvallarhúsið við Svarfaðarbraut á Dalvík. Óskað var eftir tilboði í leiguna og var fresturinn til 1. nóvember s.l.Tvö tilboð bárust:1. Vignir Þór Hallgrímsson og Margrét Víkingsdóttir, kr. 15.000 á mánuði með hita og rafmagni. Notkun: Vinnustofa.2. Dagur Óskarsson, kr. 20.000 - kr. 30.000 á mánuði.Endanleg útfærsla kostnaðar myndi vera samningsatriði m.t.t. hita, rafmagns og aðkallandi viðhalds. Ef til þess kæmi, þá er Dagur enn fremur reiðubúinn að sinna lagfæringum/viðhaldi á húsnæðinu eftir aðstæðum. Notkun: Hönnun og smíði á handgerðum skíðum.Til umræðu ofangreint.Ingvar vék af fundi kl.14:39.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs að semja við hæstbjóðanda, Dag Óskarsson, um leigu í allt að 12 mánuði með fyrirvara um að starfsemin valdi ekki nágrönnum ónæði.
6.
Frá sviðstjóra veitu- og hafnasviðs; Dalvíkurhöfn:Fyllingu við Austurgarð Verðkönnun.
Málsnúmer 201711035
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Þorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri veitu- og hafnasviðs, kl. 14:41.Þorsteinn kynnti niðurstöðu úr verðkönnun vegna fyllingu við Austurgarð Dalvíkurhafnar:Árni Helgason ehf 25.400.000 100,0%Steypustöðin Dalvík ehf 27.600.000 108,7%Dalverk eignarhaldsfélag ehf 31.260.000 123,1%boðið efni frá Ytra-HvarfiDalverk eignarhaldsfélag ehf 33.760.000 132,9%Kostnaðaráætlun var kr. 28.600.000.Þorsteinn vék af fundi kl. 14:45.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Árna Helgason ehf, með fyrirvara um umsögn veitu- og hafnaráðs.
7.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð; jan - sept, kl. 14:00.
Málsnúmer 201604102
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti stöðu bókhalds í samanburði við fjárhagsáætlun 2017 vegna janúar - september.
Byggðaráð óskar eftir nánari skýringum stjórnenda á nokkrum deildum í rekstrinum í samræmi við umræður á fundinum.
8.
Frá Markaðsstofu Norðurlands; Arctic Coast Way - Norðurstrandarleið
Málsnúmer 201710103
Tekinn fyrir rafpóstur frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsettur þann 31. október 2017, þar sem kynnt er framvindan í verkefninu Arctic Coast Way. 17 sveitarfélög eru nú tengd verkefninu.
Lagt fram til kynningar.
9.
Frá Dómsmálaráðuneytinu; Til sveitarfélaga vegna greiðslu kostnaðar við kosningar 28. október 2017
Málsnúmer 201710108
Tekið fyrir bréf frá Dómsmálaráðuneytinu, dagsett þann 30. október 2017, þar sem kynnt er samkomulag við Samband íslenskra sveitarfélaga um greiðslur til sveitarfélaga vegna starfa undirkjörstjórna og kjörstjórna auk kostnaðar við húsnæði til kjörfunda, kjörkassa og önnur áhöld vegna kosninga til Alþingis þann 28. október s.l.:1. Fyrir hvern kjósanda á kjörskrá eins og fjöldi þeirra var í lok kjördags SBR. 27. gr. laga nr. 24/2000 646 krónur.2. Fyrir hvern kjörstað sem sveitarstjórn ákvað skv. 1. mgr. 68. gr. laga nr. 24/2000 481.000 krónur.
Lagt fram til kynningar.
10.
Frá Eyþingi; Aðalfundur 2017
Málsnúmer 201710101
Tekinn fyrir rafpóstur frá Eyþingi, dagsettur þann 27. október 2017, þar sem kynnt er dagskrá aðalfundar Eyþings sem haldinn verður á Siglóhóteli Siglufirði 10. og 11. nóvember n.k.
Lagt fram til kynningar.
11.
Frá Eyþingi; 300. fundur stjórnar.
Málsnúmer 201701030
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Eyþings nr. 300 frá 25. október 2017.
Lagt fram til kynningar.
12.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 853. fundur stjórnar.
Málsnúmer 201702014
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 853 frá 27. otkóber 2017.
Lagt fram til kynningar.
13.
Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélagi Íslands; Ágóðahlutagreiðsla 2017
Málsnúmer 201711025
Tekið fyrir bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 30. október 2017, þar sem tilkynnt er að hlutdeild Dalvíkurbyggðar í Sameignarsjóði EBÍ er 1,684% og greiðsla ársins þann 31. október verður þá hlutfall af 50 m.kr. eða kr. 842.000.
Lagt fram til kynningar.