Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

829. fundur
9. ágúst 2017 kl. 12:00 - 13:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir Varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 64
Málsnúmer 1708002F
Til samþykktar:liður 1liður 2liður 6liður 8
2.
Gísli, Eiríkur og Helgi - umsókn um rekstrarleyfi til veitingu veitinga
Málsnúmer 201708003
Með bréfi dagsettu 2. ágúst 2017 óskar Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra eftir umsögn Dalvíkurbyggðar vegna umsóknar Gísla,Eiríks, Helga ehf um rekstrarleyfi til sölu gistingar og/eða veitingu veitinga.
Byggðarráð samþykkir með 3 greiddum atkvæðum að umbeðið rekstrarleyfi sé veitt.
3.
Kauptilboð Lokastíg 1
Málsnúmer 201707051
Á 828. fundi byggðaráðs Dalvíkurbyggðar var eftirfarandi bókað: ,,Tekið fyrir undirrituð kauptilboð, dagsett þann 24.07.2017 í eignirnar: Lokastígur 1 íbúð 0102, að upphæð 9.400.000,-Lokastígur 1 íbúð 0201, að upphæð 9.400.000,-Lokastígur 2 íbúð 0301, að upphæð 9.400.000,-Byggðarráð samþykkir með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að gera gagntilboð í eignirnar samkvæmt umræðum á fundi. "Í kjölfarið hafa borist þrjú ný kauptilboð bjóðanda í eftirfarandi eignir: Lokastígur 1 íbúð 0201, að upphæð 10.000.000,-Lokastígur 2 íbúð 0202, að upphæð 10.000.000,-Lokastígur 2 íbúð 0301, að upphæð 10.000.000,-
Byggðarráð samþykkir með 3 greiddum atkvæðum að taka framlögðu tilboði í framangreindar íbúðir.
4.
Búsetuúrræði fatlaðra ungmenna í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 201608105
Samkvæmt tölvupósti og símtali 8. ágúst 2017 við Rún Knútssdóttur hjá Velferðarráðuneytinu þarf sveitarstjórn að tilnefna bráðbirgðastjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses. Sú stjórn heldur stofnfund, gerir stofnfundargerð og staðfestir samþykktir og undirritar. Samþykktir og stofnfundargerð er svo sent til ráðuneytis og sjálfseignarstofnunarskrár til yfirlestrar og samþykktar.Byggðarráð þarf því að tilnefna 3 aðalmenn og 3 varamenn í stjórn LD hses. Jafnframt þarf að tilnefna framkvæmdastjóra og endurskoðanda til bráðbirgða.
Byggðarráð tilnefnir, til bráðabirgða, eftirfarandi í stjórn LD hses:

Aðalmenn: Valdís Guðbrandsdóttir, Börkur Þór Ottósson og Heiða Hilmarsdóttir.

Varamenn: Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, Bjarni Th. Bjarnason og Eyrún Rafnsdóttir.

Byggðarráð tilnefnir, til bráðabirgða, framkvæmdastjóra: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir

Byggðarráð tilnefnir, til bráðabirgða, sem endurskoðanda: Þorsteinn Þorsteinsson, KPMG.