Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

826. fundur
6. júlí 2017 kl. 13:00 - 15:55
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá vinnuhóp: Búsetuúrræði fatlaðra ungmenna í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 201608105
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Eyrún Rafnsdóttir, sviðstjóri félagsmálasviðs, og Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl. 13:00.a) Staðsetning.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga, dagsett 5. júlí 2017, frá vinnuhópi um búsetu fyrir fatlað fólk í Dalvíkurbyggð um að staðsetning fyrir fyrirhugaðar byggingar verði valin við Lokastíg 3. Einnig er óskað eftir að vinna við deiliskipulag svæðisins verði komið í framkvæmd.Til umræðu ofangreint.b) Drög að Samþykktum fyrir húsnæðisfélag; Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi drög að stofnsamþykktum fyrir Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses.Til umræðu ofangreint.Eyrún vék af fundi kl. 13:33.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu að staðsetningu og að vinna við deiliskipulag á svæðinu fari af stað.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreind drög að stofnsamþykktum fyrir Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses.
2.
Framkvæmdir og viðhald við sundlaug Dalvíkur
Málsnúmer 201408097
a) Staða mála.Sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs kynnti stöðu mála hvað varðar framkvæmdir og viðhald við Sundlaug Dalvíkur, sbr. verkfundur í morgun. Fyrir liggur að seinkun verða á verklokum um rúma viku.b) Erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs um viðauka vegna endurnýjunar á hellum.Tekið fyrir erindi frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 4. júlí 2017, þar sem óskað er eftir því að hellur við sundlaug verði endurnýjaðar í stað þess að nota áfram þær sem fyrir voru. Rökin fyrir þessu eru að hellurnar eru komnar til ára sinna og orðnar grófar (sem gerir það að verkum að vont er að labba á þeim berfættur). Eldri hellur geta nýst í önnur verkefni, einnig er hægt að skoða að selja þær.Niðurlögn á nýju svæði verður allt að 350 fm. Fermetraverð á nýjum hellum er kr. 4.990 og er því áætlaður kostnaður kr. 1.746.500. Ekki er talið að áætlaður ófyrirséður kostnaður á verkið geti dekkað þennan kostnað og er því óskað sérstaklega eftir þessu.Til umræðu ofangreint.
a) Lagt fram til kynningar.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka að upphæð kr. 1.746.500, viðauki 12/2017 vísað á málaflokk 32 og mætt með lækkun á handbæru fé.
3.
Varðar rafhleðslustöð og tengingu á henni
Málsnúmer 201702072
Á 291. fundi umhverfisráðs þann 16. júní 2017 var eftirfarandi bókað:"Til umræðu innsent erindi frá Ísorku móttekið 15. febrúar 2017 vegna uppsetningar og tengingar á rafhleðslustöð sem sveitarfélaginu barst að gjöf frá Orkusölunni ehf.Á 288. fundi umhverfisráð Dalvíkurbyggðar þann 10. mars síðastliðinn var lagt til að setja hleðslustöðina á bílastæði vestan við Ráðhús Dalvíkurbyggðar. Eftir nánari skoðun er staðsetning talin hentugri við íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar. Sviðsstjóra falið að útfæra staðsetningu innan lóðar íþróttamiðstöðvarinnar í samráði við forstöðumann hennar. Ráðið bendir á að ekki var gert ráð fyrir fjármagni til uppsetningar á stöðinni í fjárhagsáætlun 2017. Samþykkt með fimm atkvæðum."Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 5. júlí 2017, þar sem fram kemur að óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 800.000 vegna þessa verkefnis inn á lið 11410-4396, en tekið skal fram að ekki er séð að hægt verði að finna fjármagn í þetta verkefni annars staðar.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umhverfisráðs m.t.t. staðsetningar og kostnaðar sem nú liggur fyrir. Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2018-2021.
4.
Frá Eignasjóði; Útboð á ræstingum 2017
Málsnúmer 201611144
Þann 24. júní s.l. voru opnuð tilboð í verið "Ræsting stofnana Dalvíkurbyggðar 2017".Tvö tilboð bárust frá eftirtöldum:Þrif og ræstivörur ehf.; miðað við samningstímann í 3 ár kr. 59.996.755 í reglulega ræstingu. Samtals einingarverð í hreingerningu kr. 5.950.ISS Ísland ehf; miðað við samningstímann í 3 ár kr. 41.888.259 í reglulega ræstingu.Samtals einingarverð í hreingerningu kr. 7.025.Til umræðu ofangreint.Börkur vék af fundi kl. 14:51.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda sem er ISS Íslands ehf.
5.
Kauptilboð í Árskóg lóð 1.
Málsnúmer 201702069
Á 823. fundi byggðaráðs þann 1. júní 2017 var samþykkt samhjóða með 3 atkvæðum að framlengja gagntilboð sveitarfélagsins til tilboðsgjafa vegna kauptilboðs í Árskóg lóð 1 að hámarki til og með 30. júni 2017.Tekið fyrir undirritað kauptilboð, dagsett þann 28. júní 2017, að upphæð kr. 23.900.000.
Byggaðráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint kauptilboð og sölu á eigninni.
6.
Frá Íbúðalánasjóði; Erindi Íbúðalánasjóðs til sveitarstjórnar
Málsnúmer 201706053
Á 825. fundi byggðaráðs þann 15. júní 2017 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi ÍLS þar sem óskað er eftir viðræðum um möguleg kaup sveitarfélagsins á fasteignum í eigu sjóðsins innan sveitarfélagsins.Byggðarráð felur Bjarna Th. Bjarnasyni sveitarstjóra að vera í samskiptum við Íbúðalánasjóð um eignir sjóðsins í Dalvíkurbyggð."Sveitarstjóri gerði grein fyrir samskiptum sínum við Íbúðalánasjóð og þeim upplýsingum sem hann hefur aflað.
Byggaðráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna boði um viðræður um þann möguleika að kaupa eignir sjóðsins áður en þær verða boðnar til sölu á almennum markaði.
Byggðaráð vill nota tækifærið til að minna Íbúðalánasjóð á, sem og aðra fasteignaeigendur í sveitarfélaginu, þær skyldur sem þeir bera hvað varðar viðhald húss og lóða í sinni eigu.
8.
Frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Fjárhagsáætlun 2017; heildarviðauki I
Málsnúmer 201707002
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusvið kynnti heildarviðauka I við fjárhagsáætlun 2017 með þeim viðaukum sem samþykktir hafa verið það sem af er árs 2017.Um er að ræða 11 viðauka og sölu á 2 eignum; mál 201701041 Hólavegur 1 og 201705115 Kirkjuvegur 9.Helstu niðurstöður:Niðurstaða Aðalsjóð var neikvæð um kr. 27.105.000 en verður neikvæð um kr. 22.527.000, alls breyting kr. 4.578.000Niðurstaða A-hluta var jákvæð um kr. 46.759.000, verður jákvæð um kr. 31.549.000, alls breyting kr. 11.895.000.Niðurstaða Samstæðu A- og B- hluta var jákvæð um kr. 70.816.000 en verður alls kr. 85.046.000, breyting um kr. 14.229.000Fjárfestingar alls voru kr. 383.267.000 en verða kr. 441.847.000, breyting alls kr. 58.580.000.Lántaka er óbreytt eða kr. 237.000.000 en gert er ráð fyrir lántöku til skemmri tíma að upphæð kr. 188.600.000 vegna hlutdeildar ríkisins í hafnaframkvæmdum.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindan heildarviðauka I við fjárhagsáætlun 2017.
9.
Fjárhagsáætlun 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021; framhald umfjöllunar
Málsnúmer 201705174
Á 824. fundi byggðaráðs þann 8. júní 2017 var eftirfarandi bókað:"Samkvæmt fjárhagsáætlunarferli Dalvíkurbyggðar er eftirfarandi til umfjöllunar í byggðaráði í apríl - maí eða þegar ársreikningur liggur fyrir: a) Framkvæmdastjórn og byggðaráð ræða um og koma með hugmyndir að verkefnum, framkvæmdum, áherslum og stefnu. b) Umræða í byggðaráði um verklag, áherslur, markmið og tímaramma. d) Byggðaráð tekur formlega ákvörðun um markmið fjárhagsáætlunar og setur fram stefnu. Til umræðu ofangreint. Lagt fram til kynningar. "
Lagt fram til kynningar.
10.
Tímarammi vegna fjárhagsáætlunar 2018; tillaga
Málsnúmer 201706138
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að tímaramma vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2018-2021.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að tímaramma.
11.
Auglýsing um fjárhagsáætlun 2018; tillaga
Málsnúmer 201706139
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að auglýsingu vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2018.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að auglýsingu.
12.
Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillögu til þingsályktunar um mótun eigendastefnu ríkisins fyrir bújarðir, 414. mál.
Málsnúmer 201706089
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 16. júní 2017, þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um mótun eigendastefnu ríkisins fyrir bújarðir, 414. mál. Óskað er umsagnar eigi síðar en 15. ágúst n.k.
Lagt fram.
13.
Frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga; fundargerðir stjórnar nr. 31, 32, 33 og 34.
Málsnúmer 201706024
Lagðar fram til umfjöllunar fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr. 31, 32, 33 og 34.
Lagt fram til kynningar.
14.
Frá 293. fundi sveitarstjórnar þann 20.06.2017; Lögreglusamþykkt Dalvíkurbyggðar. Síðari umræða.
Málsnúmer 201606115
Á 293. fundi sveitarstjórnar þann 20. júní 2017 var eftirfarandi bókað:"Á 223. fundi byggðaráðs Dalvíkurbygðar þann 1. júní 2017 voru samþykktar samhljóða með þremur atkvæðum tillögur að breytingum á Lögreglusamþykkt fyrir Dalvíkurbyggð og vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn. Til máls tóku: Bjarni Th. Bjarnason. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa tillögu að breytingum á lögreglusamþykkt fyrir Dalvíkurbyggðar til síðari umræðu. "Enginn tók til máls.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum lögreglusamþykkt fyrir Dalvíkurbyggðar eins og hún liggur fyrir og vísar henni til staðfestingar ráðuneytis.
15.
Menningarráð - 63, frá 08.06.2017.
Málsnúmer 1706005F
16.
Ungmennaráð - 13, frá 02.06.2017
Málsnúmer 1706001F
Til afgreiðslu:2. liður.
17.
Fræðsluráð - 218, frá 05.07.2017
Málsnúmer 1706015F
Til afgreiðslu:3. liður.