Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
825. fundur
15. júní 2017
kl.
12:00
-
14:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Kristján Guðmundsson
Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Rafnsdóttir
félagsmálastjóri
Dagskrá
1.
Innviðir fyrir rafbíla - styrkur Orkusjóðs
Á 824. fundi byggðaráðs þann 8. júní 2017 var tekið fyrir erindi frá Vistorku, dagsett þann 29. maí 2017, til sveitarstjórnar sem tengjst umsókn Vistorku í Orkusjóði um uppbyggingu innviða fyrir rafbíla á Norðurlandi.Til umræðu ofangreint.Börkur vék af fundi kl. 13:32.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir að Guðmundur Haukur Sigurðarson, framkvæmdastjóri Vistorku, mæti á fund byggðaráðs til að fara yfir ofangreint.Guðmundur kynnti fyrir ráðinu fyrirtækið Vistorku ehf. sem og vörur frá Vistorku notaðar til endurvinnslu. Einnig kynnti Guðmundur samstarfsverkefni við einn skóla á Akureyri, blævænginn. Vistorka sótti um styrk til Orkusjóðs fyrir Norðurland til að setja upp hraðhleðslustöðvar á Norðurlandi og fengu úthlutun upp á 26 milljónir. Rætt var um rafbíla og hleðslustöðvar á svæðinu. Í dag eru 3 stöðvar á Akureyri. Gert er ráð fyrir að sett verði upp ein millihleðslustöð í Dalvíkurbyggð.
Byggðarráð felur Berki Þór Ottóssyni, sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs í samvinnu við Guðmund Hauk Sigurðsson framkvæmdastjóra Vistorku að vera í samskiptum við Orku náttúrunnar að setja upp hraðhleðslustöð á Dalvík í stað millihleðslustöðvar.
2.
Búsetuúrræði fatlaðra ungmenna í Dalvíkurbyggð
Lögð fram til kynningar umsóknargögn og farið yfir stöðu máls varðandi búsetuúrræði fatlaðra ungmenna í Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fundargerðir Eyþings 2017
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Eyþings nr. 296 frá 7. júní 2017.
Lagt fram til kynningar.
4.
Erindi Íbúðalánasjóðs til sveitarstjórnar
Tekið fyrir erindi ÍLS þar sem óskað er eftir viðræðum um möguleg kaup sveitarfélagsins á fasteignum í eigu sjóðsins innan sveitarfélagsins.
Byggðarráð felur Bjarna Th. Bjarnasyni sveitarstjóra að vera í samskiptum við Íbúðalánasjóð um eignir sjóðsins í Dalvíkurbyggð.
5.
Skýrsla RHA
Lögð fram skýrsla RHA um kosti og galla sameiningar Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna í samræmi við samþykkt aðalfundar 2016. Skýrslan var kynnt á stjórnarfundi Eyþings 7. júní og var til umfjöllunar á fundi fulltrúaráðs 8. júní 2017. Hún mun síðan verða til frekari umræðu á aðalfundi Eyþings í haust að lokinni umfjöllun í sveitarstjórnum innan Eyþings.
Lagt fram til kynningar.
6.
Aðalfundarboð 2017
Tekið fyrir aðalfundarboð BHS ehf. sem haldinn verður þriðjudaginn 20. júní 2017 kl. 20 að Fossbrún 2 á Árskógsströnd.
Byggðarráð tilnefnir Bjarna Th. Bjarnason sveitarstjóra sem fulltrúa Dalvíkurbyggðar á aðalfundi BHS ehf.