Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

822. fundur
18. maí 2017 kl. 13:00 - 14:51
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Frá sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Tjaldsvæði - Rekstrarsamningur 2017 - 2027
Málsnúmer 201705080
Á 821. fundi byggðaráðs þann 11. maí 2017 var m.a. eftirfarandi bókað:"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu íþrótta- og æskulýðsráðs um að gengið verði til samninga við Landamerki ehf. Drög að samningi komi síðan fyrir byggðaráð."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að samningi um rekstur og umsjón tjaldsvæðisins á Dalvík.Til umræðu ofangreint.Hlynur vék af fundi kl. 13:43.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum samningsdrögin eins og þau liggja fyrir með þeim fyrirvörum sem ræddir voru á fundinum.
3.
Sjávarútvegssaga Dalvíkurbyggðar- tillaga um fulltrúa í ritnefnd
Málsnúmer 201510077
Á 821. fundi byggðaráðs þann 11. maí 2017 var m.a. eftirfarandi bókað:"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ráðið muni koma með tillögu að fulltrúum í ritnefnd um sjávarútvegssögu Dalvíkurbyggðar fyrir mánaðarmótin maí / júní 2017."Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að koma með fyrirmynd að erindisbréfi fyrir væntanlega ritnefnd.
4.
Tilboð í Lokastíg 1, íbúð 0201
Málsnúmer 201705114
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir tilboðum sem hafa borist í Lokastíg 1, íbúð 0201 og íbúð 102.Málið er í vinnslu.
Lagt fram til kynningar.
6.
Frá sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Stöðumat janúar - mars 2017
Málsnúmer 201704068
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti skil stjórnenda hvað varðar stöðumat janúar - mars 2017, þ.e. samanburður bókhalds í fjárhagsáætlun 2017.
Lagt fram til kynningar.
7.
Frá Greiðri leið; Aðalfundur Greiðrar leiðar 2017
Málsnúmer 201705125
Tekið fyrir aðalfundarboð frá Greiðri leið ehf. dagsett þann 12. maí 2017, þar sem boðað er til aðalfundar mánudaginn 29. maí 2017 kl. 13:00 á Akureyri.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að sækja fundinn.
8.
Frá Markaðsstofu Norðurlands; Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands
Málsnúmer 201705126
Tekinn fyrir rafpóstur frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsettur þann 12. maí 2017, þar sem minnt er á aðalfundinn þriðjudaginn 16. maí s.l.Upplýst var á fundinum að Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi, sótti fundinn f.h. Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
9.
Frá Eyþingi; fundargerð stjórnar nr. 295
Málsnúmer 201701030
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Eyþings nr. 295 frá 15. maí 2017.
Lagt fram til kynningar.