Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

803. fundur
3. nóvember 2016 kl. 13:00 - 15:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir Varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Útboð vátrygginga 2016;samningsdrög við VÍS
Málsnúmer 201604054
Á 284. fundi sveitarstjórnar þann 18. október s.l. var samþykkt samhljóða tillaga byggðaráðs að ganga til samninga við VÍS að undangengnu útboði.Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að samningi á milli Dalvíkurbyggðar og VÍS um vátryggingarvernd.Til umræðu ofangreint.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum drög að ofangreindum samningi eins og þau liggja fyrir og vísar þeim til sveitarstjórnar til afgreiðslu.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir tillögu frá framkvæmdastjórn hvað varðar tengilið Dalvíkurbyggð vegna forvarna og öryggismála.
3.
Stöðumat janúar - september 2016; skil frá stjórnendum.
Málsnúmer 201610045
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti skil stjórnenda hvað varðar stöðumat á starfs- og fjárhagsáætlun janúar-september 2016.Á fundinum voru einnig til umræðu eftirfarandi gögn sem fylgdu einnig fundarboði: *Samanburður bókhalds við fjárhagsáætlun janúar - september, niður á deildir.*Samanburður bókhalds við fjárhagsáætlun janúar- september, niður á lykla.*Viðhald Eignasjóðs, bókuð staða 2.11.2016 í samanburði við fjárhagsáætlun.*Staðgreiðsla 2016, samanburður á milli áranna 2015 og 2016 vegna janúar - september.*Upplýsingar um framlög Jöfnunarsjóðs árið 2016 í samanburði við fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2016. Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.