Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
801. fundur
20. október 2016
kl.
13:00
-
16:35
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Kristján Guðmundsson
Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2017; Frá Gísla, Eiríki og Helga ehf.; Sigtún og Ungó.
Frestað.
2.
Framkvæmdir á Skrifstofum Dalvíkurbyggðar og í Ráðhúsi Dalvíkur vegna öryggismála.
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillögur að breytingum á húsnæði Skrifstofa Dalvíkurbyggðar ásamt drög að kostnaðaráætlun.Til umræðu ofangreint.Börkur Þór vék af fundi kl. 14:13.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
4.
Gjaldskrár Dalvíkurbyggðar; tillögur fyrir árið 2017.
Frestað.
5.
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn um rekstrarleyfi - Höfði gistihús.
Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, bréf dagsett 27.09.2016, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Zophaníasar Antonssonar, kt. 220546-2769, fyrir hönd GHD ehf, kt. 691215-0750, hvað varðar endurnýjun og breytingu á rekstrarleyfi til sölu gistingar í sumarbústað og tveimur gistihúsum í Höfða; flokkur II.Rekstrarleyfi gististaður: flokki: II.Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingafulltrúa.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina með fyrirvara um afgreiðslu slökkviliðsstjóra.
6.
Frá Greiðri leið ehf; Árleg aukning hlutafjár í Greiðri leið ehf.
Tekið er fyrir erindi frá Greiðri leið ehf., bréf dagsett þann 4. október 2016, þar sem óskað er eftir að hluthafar falli frá forkaupsrétti á 1,1 m.kr. og staðfesti það ekki síðar en 1. nóvember n.k. Einnig er óskað eftir að hluthafar nýti sér sinn forkaupsrétt í samræmi við meðfylgjandi gögn hvað varðar þær 38,9 m.kr. sem eftir standa. Hlutafjáreign Dalvíkurbyggðar er að nafnvirði 78.334 eða 0,04% og forkaupsrétturinn er því kr. 15.763. Óskað er eftir að tilkynning um nýtingu á áskriftarrétti og greiðsla berist eigi síðar en 1. nóvember 2016.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að nýta sér ekki forkaupsréttinn að 1,1 m.kr.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að nýta sér forkaupsrétt sinn að upphæð kr. 15.763.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að nýta sér forkaupsrétt sinn að upphæð kr. 15.763.
7.
Frá Eyþingi; Aðalfundur Eyþings 2017
Tekið fyrir bréf frá Eyþingi, dagsett þann 6. október 2016, þar sem boðað er til aðalfundar 11. og 12. nóvember n.k. í félagsheimilinu Þórsveri á Þórshöfn.Aðalmenn f.h. Dalvíkurbyggðar Varamenn:Heiða HilmarsdóttirÍris HauksdóttirBjarni Th. BjarnasonPétur SigurðssonLilja Björk ÓlafsdóttirGunnþór E Gunnþórsson Kristján E HjartarsonValdís Guðbrandsdóttir
Lagt fram til kynningar.