Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

800. fundur
19. október 2016 kl. 12:00 - 16:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá
2.
Frá Trausta Þorsteinssyni; vegna fjárhagsáætlunargerðar 2017. Vegur að Framnesi
Málsnúmer 201608088
Á 282. fundi umhverfisráðs þann 20. september 2016 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Trausta Þorsteinssyni, dagsett þann 25. ágúst 2016, þar sem vakin er athygli á ástandi vegar að Framnesi sem og að huga þurfi að koma í veg fyrir landbrot á svæðinu.Á 791. fundi byggðarráðs var erindinu vísa til umhverfisráðs og óskað eftir niðurstöðu og tillögu að afgreiðslu.Á 281. fundi umhverfisráðs var erindinu frestað.Umhverfisráð samþykkir að gerðar verði lagfæringar á veginum að Framnesi og felur sviðsstjóra að ræða við umsækjanda.Samþykkið er gert með fyrirvara um að legu veganna á svæðinu verði ekki breytt í tengslum við umferðaöryggisáætlun.Samþykkt með þremur atkvæðum".
Byggðaráð vekur athygli umhverfisráðs á að ef ofangreind afgreiðsla umhverfisráð er tillaga til gerðar starfs- og fjárhagsáætlunar 2017-2020 þá er ekki hægt að afgreiða og samþykkja einstakar tillögur. Frumvarp að fjárhagsáætlun sem byggðaráð afgreiðir frá sér til sveitarstjórnar hverju sinni er tekið til umfjöllunar og afgreiðslu í heild sinni.

Lagt fram til kynningar.
3.
Frá Magnúsi Ásgeiri Magnússyni; Fjárhagsáætlun 2017; Umsókn um lagfæringu á heimreið að Svæði
Málsnúmer 201609003
Á 281. fundi umhverfisráðs þann 16. september 2016 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Magnúsi Á. Magnússyni og Heiðu Hringsdóttur, dagsett þann 31. ágúst 2016, þar sem ábúendur í Svæði ítreka beiðni frá 2015 þar sem þess var farið á leit við umhverfisráð að laga heimreiðina að bænum. Á 791. fundi byggðarráðs var erindinu vísað til umhverfisráðs til umfjöllunar og óskar eftir niðurstöðu ráðsins og tillögu að afgreiðslu.Ráðið samþykkir að vegur að heimreið við Svæði verði lagfærður og felur sviðsstjóra að leggja fram kostnaðaráætlun fyrir aukafund ráðsins í næstu viku.Samþykkt með fjórum atkvæðum."
Byggðaráð vekur athygli umhverfisráðs á að ef ofangreind afgreiðsla umhverfisráð er tillaga til gerðar starfs- og fjárhagsáætlunar 2017-2020 þá er ekki hægt að afgreiða og samþykkja einstakar tillögur. Frumvarp að fjárhagsáætlun sem byggðaráð afgreiðir frá sér til sveitarstjórnar hverju sinni er tekið til umfjöllunar og afgreiðslu í heild sinni.

Lagt fram til kynningar.
4.
Frá Mótosportfélagi Dalvíkur; Fjárhagsáætlun 2017; umsókn um styrk
Málsnúmer 201608108
Á 283. fundi umhverfisráðs þann 14. október 2016 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Mótorsportfélagi Dalvíkur, rafbréf dagsett þann 30. ágúst 2016, er varðar umsókn til Dalvíkurbyggðar um styrk vegna uppbyggingar á svæði fyrir félagið.Á 791. fundi byggðarráðs var erindinu vísað til íþrótta- og æskulýðsráðs og umhverfiráðs til umfjöllunar og óskað eftir niðurstöðum ráðanna og tillögu að afgreiðslu.Á 281 fundi umhverfisráðs var afgreiðslu frestað og sviðsstjóra falið að kalla forsvarmenn/fulltrúa frá mótorsportfélagi Dalvíkur til fundar með ráðinu.Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, sviðsstjóri fræðslu- og menningasviðs ásamt formanni umhverfisráðs funduðu með forsvarmönnum félagsins 13.10.2016 og minnisblað frá þeim fundi til umræðu á fundinum.Minnisblað lagt fram til kynningar og afgreiðslu frestað þar til afmörkun svæðisins berst frá Mótorsportfélagi Dalvíkur.Samþykkt með fimm atkvæðum."
Lagt fram til kynningar.
5.
Gjaldskrár Dalvíkurbyggðar; tillögur fyrir árið 2017, umhverfis- og tæknisvið.
Málsnúmer 201609127
Bjarni Th. Bjarnason vék af fundi undir þessum lið kl. 14:13 til annarra starfa.Á fundinum var farið yfir tillögur landbúnaðarráðs og umhverfisráð að gjaldskrám fyrir árið 2017.Sérstaklega var farið yfir tillögu að sorphirðugjaldi fyrir árið 2017.
Afgreiðslu frestað.
6.
Vinnuhópur vegna nýtingu á húsnæði Víkurrastar, sbr. hugmyndir um Frístundahús.
Málsnúmer 201511067
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kl.14:25.Á 797. fundi byggðaráðs þann 13. október s.l. var meðal annars bókað:"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela vinnuhópnum að koma með uppfærða kostnaðaráætlun eins og unnt er og í samræmi við þær tillögur sem liggja fyrir um flutning á starfsemi á milli húsa, til að hafa til hliðsjónar við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar 2017-2020."Á fundinum var kynnt kostnaðaráætlun:Víkurröst; kr. 12.719.283 vegna flutnings á Tónlistarskóla yfir í Víkurröst og mögulega Símey.Dalvíkurskóli; kr. 3.397.680 vegna flutnings á Frístund.
Byggðaráð samþykkir með 3 atkvæðum ofangreinda kostnaðaráætlun og vísar til gerðar starfs- og fjárhagsáætlunar 2017-2020, með fyrirvara um kaup á uppþvottavél í Dalvíkurskóla.
7.
Frístund, ósk um breytingar á húsnæði Dalvíkurskóla
Málsnúmer 201609044
Á 791. fundi byggðaráðs þann 8. september 2016 var tekið fyrir erindi frá skólastjóra Dalvíkurskóla, dagsett þann 5. september 2016, þar sem óskað er eftir breytingum á húsnæði Dalvíkurskóla vegna færslu Frístundar úr Víkurröst í skólann. Lagt er til að Frístund verði þar sem nú er tölvustofa og tölvustofan verði í tengslum við bókasafn Dalvíkurskóla. Að auki sér skólastjóri fyrir sér samnýtingu á verkgreinastofnum og miðrými í Dalvíkurskóla.Kostnaður við breytingar eru áætlaðar:Uppþvottavél kr. 300.000Framkvæmdir vegna færslu og breytinga á tölvustofu kr. 2.938.000.Byggðaráð samþykkti samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til gerðar starfs- og fjárhagsáætlunar 2017. Fyrir liggur samþykki byggðaráðs á flutningi Frístundar úr Víkurröst í Dalvíkurskóla. Vísað til fræðsluráðs til upplýsingar. Börkur Þór vék af fundi kl. 14:33.
Byggðaráð vísar í afgreiðslu hér að ofan hvað varðar 6. lið, mál 201511067.
9.
Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og menningarsviðs 2017; breytingar í starfsmannahaldi.
Málsnúmer 201609018
Kristján Guðmundsson vék af fundi undir þessum lið kl. 15:06 vegna vanhæfis.Á 797. fundi byggðaráðs þann 13. október 2016 var til umfjöllunar breytingar í starfsmannahaldi vegna niðurlagningar á starfi forstöðumanns Víkurrastar og tillögur að endurskipulagningu á verkefnum. Byggðaráð samþykkti að fela sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs að koma með fullmótaða tillögu fyrir byggðaráðs.Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir tillögur og samantekt sína á útreikingum varðandi ofangreindar breytingar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að vísa ofangreindri tillögu sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs til gerðar starfs- og fjárhagsáætlunar 2017-2020.
10.
Gjaldskrár Dalvíkurbyggðar; tillögur fyrir árið 2017; fræðslu- og menningarsvið.
Málsnúmer 201609127
Kristján Guðmundsson kom inn á fundinn að nýju kl. 15:20Á fundinum var farið yfir tillögur íþrótta- og æskulýðsráðs og fræðsluráðs að gjaldskrám 2017.Hlynur vék af fundi kl. 15:51.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa gjaldskrám íþrótta- og æskulýðsráðs til endurskoðunar í ráðinu í samræmi við þær ábendingar sem fram komu á fundinum.
Byggðaráð bendir á að setja þarf gjaldskár frá fræðsluráði upp í endanleg skjöl til samþykktar í byggðaráði og síðan sveitarstjórn.
11.
Vinnuhópur vegna skilta og merkinga, tillögur vinnuhóps vegna fjárhagsáætlunar 2017-2020.
Málsnúmer 201602048
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga vinnuhóps vegna skilta og merkinga í sveitarfélaginu en vinnuhópurinn var settur á laggirnar af byggðaráð við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar 2016-2019.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindum tillögum til gerðar starfs- og fjárhagsáætlunar 2018-2020.
Byggðaráð þakkar vinnuhópnum fyrir góða vinnu.
12.
Fjárhagsáætlun 2017;Frá foreldrum fatlaðra ungmenna í Dalvíkurbyggð; búsetumál
Málsnúmer 201608105
Á 797. fundi byggðaráðs þann 13. október 2016 var eftirfarandi bókað m.a.:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi undirritað minnisblað frá ofangreindum vinnuhópi, dagsett þann 11. október 2016, þar sem fram kemur að óskað er eftir að fjármagn verði sett í byggingar á þjónustuíbúðum fyrir fólk með fötlun í Dalvíkurbyggð. Gert er ráð fyrir að hönnun og útboð fari fram á árinu 2017 og framkvæmdir á árinum 2018 og 2019. Upphæðir í áætlun er byggðar á reynslutölum frá öðrum sveitarfélögum, en ekki liggur fyrir hvort og þá hversu mikil þátttaka ríkisins er í slíkri byggingu.Í meðfylgjandi tillögu að fjárfestingum er lagt til 20 m.kr árið 2017, 75 m.kr. árið 2018 og 75 m.kr árið 2019.Til umræðu ofangreint.Byggðaráð frestar afgreiðslu og óskar eftir nánari upplýsingar hvað varðar fjármögnun og rekstrarframlag."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að gert verði ráð fyrir 20 m.kr. kostnaði vegna ofangreinds verkefni inn á fjárhagsáætlun 2017 en óskar jafnframt eftir að fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Íbúðalánasjóði komi á fund byggðaráðs við fyrsta tækifæri til að fara yfir með hvaða hætti er gert ráð fyrir að fjármögnum á húsnæðisúrræðum fyrir fatlað fólk verði og skýra útfærsluna.