Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

792. fundur
15. september 2016 kl. 13:00 - 16:05
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Formaður
Kristján Guðmundsson Varaformaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
3.
Náttúrusetur á Húsabakka ses; staða mála.
Málsnúmer 201609083
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Hjörleifur Hjartarson, kl. 14:19, en Hjörleifur óskaði eftir að koma á fund byggðaráðs til að ræða málefni Náttúruseturs.Til umræðu fuglasýningin sem verið hefur staðsett á Húsabakka "Friðland fuglanna" sem og umsjón með Friðlandi Svarfdæla.Hjörleifur vék af fundi kl. 15:12.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa til menningarráðs umfjöllun um fuglasýninguna "Friðland fuglanna" og framtíð hennar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að hafa samband við Umhverfisstofnun varðandi samninginn á milli Umhverfisstofunar og Dalvíkurbyggðar hvað varðar Friðland Svarfdæla og umsjón með því.
4.
Frá 80. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 6. september 2016; húsnæðismál.
Málsnúmer 201609018
Á 80. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 6. september 2016 var eftirfarandi bókað;"Farið yfir drög að starfsáætlun í íþrótta- og æskulýðsmálum. Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að óska eftir því við Byggðaráð að húseignir sem skráðar eru undir íþrótta- og æskuýðsmál verði teknar til skoðunar með það í huga að kostnaður við rekstur mannvirkja verði færðir á þá málaflokka sem nýtingin fer fram. Samkvæmt tímaramma vegna starfs- og fjárhagsáætlunar eiga fagráð að vera búin að skila inn tillögum 27. september. Samþykkt að næsti fundur verði færður fram um eina viku, eða þriðjudaginn 27. september."Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar 2017-2020.
5.
Fjárhagsáætlun 2017; Frá starfsmannafélagi Dalvíkurbyggðar, Ósk um hækkun á framlagi Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201608094
Á 791. fundi byggðaráðs þann 8. september s.l. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Starfsmannafélagi Dalvíkurbyggðar, bréf dagsett þann 29. ágúst 2016, þar sem stjórnin óskar eftir því við Dalvíkurbyggð að framlag til starfsmannafélagsins verði hækkað í samræmi við framlag starfsmanna. Hver félagsmaður greiðir á ári kr. 6.000 miðað við 12 mánuði. Er það ósk stjórnar að árið 2017 verði framlag Dalvíkurbyggðar sama upphæð eða kr. 6.000 á hvern starfsmann. Byggðaráð frestar afgreiðslu."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hækka framlagið úr kr. 3.500 og í kr. 6.000 árið 2017.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fjárhagsrammi 21600 fyrir 2017 hækki sem þessu nemur.
6.
Útboð vátrygginga 2016; útboðslýsing
Málsnúmer 201604054
Á fundi byggðaráðs var farið yfir drög að útboðslýsingu vegna útboðs á vátryggingum Dalvíkurbyggðar.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreind drög.
7.
Frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu; Eftirfylgni með úttekt á Dalvíkurskóla - upplýsinga óskað á mat sveitarstjórnar á framkvæmd umbóta
Málsnúmer 201608027
Tekið fyrir bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, dagsett þann 6. september 2016, þar sem vísað er til fyrri bréfasamskipta vegna úttektar á Dalvíkurskóla árið 2014. Fram kemur að staðfesting skólastjóra á að umbótum sé lokið barst ráðuneytinu með rafpósti þann 15. ágúst 2016. Ráðuneytið minnir á beiðni þess um staðfestingu sveitarfélags og mat sveitarstjórnar á hvernig sveitarfélagi og skóla hefur tekist að vinna að umbótum á skólastarfinu í kjölfar úttektarinnar. Þess er vænst að staðfesting berist ráðuneytinu eigi síðar en 20. september n.k.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn með vísan í umfjöllun fræðsluráðs um málið.
8.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Málsnúmer 201604102
Frestað.
9.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 842. fundur stjórnar.
Málsnúmer 201603022
Lögð fram til kynningar 842. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.