Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
784. fundur
4. ágúst 2016
kl.
13:00
-
00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir
Varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Bjarni Th. Bjarnason og Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sveitarstjóri / sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Málefni Húsabakka; söluferli.
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Sigurður Sveinn Sigurðsson, fasteignasali hjá fasteignasölunni Hvammi á Akureyri, kl. 13:00 í gegnum símafund.Dalvíkurbyggð auglýsti til sölu eignina Húsabakka í Svarfaðardal hjá Fasteignasölunni Hvammi. Tilboðsfrestur var til kl. 16:00 þann 29. júlí 2016. Um er að ræða tvær byggingar sem áður voru notaðar undir rekstur Húsabakkaskóla, sem var grunnskóli Svarfaðardalshrepps fram til ársins 2004. Húsabakki er í fallegu umhverfi rétt við Friðland Svarfdæla skammt sunnan Dalvíkur.Á staðnum eru tvö hús. Annað húsið er byggt árið 1953 og er skráð 675,8 m2 að stærð og hitt húsið er byggt 1966 og er skráð 556,4m2 að stærð. Húsin henta vel til ýmisskonar reksturs og eru nýtt í ferðaþjónustu að stærstum hluta í dag en í húsunum eru herbergi af ýmsum stærðum, íbúðir fyrir staðarhalda, eldhús, matsalur, fundarsalir og gott útisvæði.Við Húsabakka er einnig tjaldsvæði, félagsheimilið Rimar og sundskáli sem möguleiki er að semja um leigu á samhliða kaupum á Húsabakka.Þrjú tilboð bárust í eignina.Til umræðu ofangreint.Sigurður vék af fundi kl. 13:15.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að framlengja tilboðsfrestinn um einn mánuð og felur fasteignasölunni Hvammi að sjá áfram um söluferlið.
3.
Ósk um tilfærslu fjárhagsramma Dalvíkurskóla 2016.
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla, og Valur Hilmarsson, umhverfisstjóri, kl. 13:47.Tekið fyrir erindi frá Gísla Bjarnasyni, skólastjóra Dalvíkurskóla, dagsett þann 21. júlí 2016 þar sem óskað er eftir tilfærslu í fjárhagsramma 2016. Í fjárhagsramma Dalvíkurskóla var heimild fyrir því að kaupa nýtt leiktæki á skólalóð og var gert ráð fyrir að kostnaður við það væri 2.200.000 kr. og einnig var gert ráð fyrir að setja gúmmíhellur undir leiktæki á skólalóð og átti það að kosta 500.000 kr. Að ígrunduðu máli þá telja stjórnendur að fjármunum væri betur varið í að gera einhverja aðstöðu úti sem mundi nýtast frekar eldri nemendum skólans. Hugmyndin er að gera útikennslustofu sem mundi nýtast eldri nemendum í frímínútum og einnig öllum bekkjum skólans. Hún yrði staðsett sunnanmegin við skólann og norðanmegin á tjaldsvæðinu. Umhverfisstjóri telur að ekki væri mikill kostnaður í kringum þetta og þetta mundi líka nýtast tjaldsvæði Dalvíkurbyggðar. Einnig mælist skólastjóri til að hafa fjármagn til að geta klárað að þökuleggja við bílastæði austanmegin við skólann og svo að laga vissa grasbletti á skólalóð.Til umræðu ofangreint.Hlynur, Gísli og Valur viku af fundi kl. 14:12.
Afgreiðslu frestað.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela skólastjóra Dalvíkurskóla að koma með nýtt og uppfært erindi með nákvæmari útfærslu á framkvæmdum og kostnaðaráætlun.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela skólastjóra Dalvíkurskóla að koma með nýtt og uppfært erindi með nákvæmari útfærslu á framkvæmdum og kostnaðaráætlun.
5.
Málefni Menntaskólans á Tröllaskaga (MTR)
a) Tekið fyrir erindi frá Fjallabyggð, dagsett þann 11. júlí 2016, þar sveitarstjóri Gunnar I. Birgisson, gerir grein fyrir fyrirhuguðum byggingaframkvæmdum við MTR. Hlutdeild Dalvíkurbyggðar í þeim framkvæmdum væri árið 2017 kr. 1.650.000.b) Í sama erindi kemur fram að láðst hafi að gera leigusamning við sveitarfélögin vegna greiðslu á hlutdeild í leigu húsnæðis MTR.Dalvíkurbyggð hefur stutt við Menntaskólann á Tröllaskaga frá stofnun hans með greiðslu á hlutdeild í leigu húsnæðisins. Fyrir fundinum liggur leigusamningur sem formgerir þennan stuðning sem tekur gildi 1.1.2016 og gildir í 5 ár eða til ársloka 2020. Samningurinn er óuppsegjanlegur nema ef aðilar sammælast um annað. Hlutdeild Dalvíkurbyggðar í leigu árið 2016 er kr. 275.058. Leigafjárhæð hækkar skv. NVT 1. janúar ár hvert.Til umræða ofangreint.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum hlutdeild Dalvíkurbyggðar í byggingaframkvæmdum við MTR, kr. 1.650.000, með fyrirvara um að öll sveitarfélögin taki þátt. Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2017.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindan samning um hlutdeild Dalvíkurbyggðar í leigu til 5 ára með fyrirvara um að öll sveitarfélögin taki þátt.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindan samning um hlutdeild Dalvíkurbyggðar í leigu til 5 ára með fyrirvara um að öll sveitarfélögin taki þátt.
6.
Framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir
Tekið fyrir erindi frá Íbúðalánasjóði, dagsett þann 13. júlí 2016, um framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir auk erindis dagsett þann 15. júlí 2016 frá Benedikt Sigurðarsyni f.h. Búseta á Norðurlandi er varðar mögulegt samstarf sveitarfélaga og Búseta á Norðurlandi um byggingu leiguíbúða samkvæmt lögum um "almennar íbúðir" þskj.1437.Í erindi Búseta er áréttaður vilji til að eiga alvarlegar viðræður við fulltrúa sveitarfélaga á NA-landi með það fyrir augum að byggja nokkurn fjölda íbúða fyrir lágtekjufólk undir lagaramma um svokallaðar "almennar íbúðir."Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
7.
Beiðni um umsögn vegna umsóknar um breytingu á tækifærisleyfi vegna Fiskidagsins mikla.
Guðmundur St. Jónsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis kl. 15:54.Tekið fyrir hjálagt erindi dags 12.júli 2016 frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra til umsagnar samkvæmt 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, umsókn Júlíusar Júlíussonar kt.020266-4819 Skógarhólum 13 Dalvík f.h. Fiskidagsins mikla kt.530605-1670 Hafnartogi Dalvík um tækifærisleyfi dagana 5.-7.ágúst 2016.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn.
8.
Erindi frá Dalvik Loger
Guðmundur St. Jónsson kom inn á fundinn að nýju kl. 14:57.Tekið fyrir erindi frá frönskum aðila, dagett þann 13. júlí 2016, sem kallar sig Dalvik Loger. Hann rekur fyrirtæki sem heitir "Dalvik Photography" og hefur hug á samstarfi við sveitarfélagið og flutningi til Dalvíkur. Hann óskar jafnframt eftir fjárhagslegum stuðningi við sína vinnu auk húsnæðis og bíls.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarfélagið getur ekki orðið við erindinu.
12.
Fjárhagsáætlun 2016; viðauki vegna launahækkana skv. nýjum kjarasamningum
Á 783. fundi byggaðráðs þann 15. júlí s.l. var eftirfarandi bókað:"Viðauki vegna launahækkana skv. nýjum kjarasamningum lagður fram til staðfestingar.Samþykkt samhljóða með tveimur atkvæðum."Í bókun láðist að tilgreina fjárhæð viðukans og hvernig sveitarstjórn ætlar að fjármagna viðaukann.Tekið fyrir minnisblað frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 7. júlí 2016, þar sem fram kemur meðal annars yfirferð launafulltrúa Dalvíkurbyggðar yfir launaskapalón 2016, í samráði við stjórnendur sveitarfélagsins, er lokið miðað við þær forsendur og kjarasamninga sem nú liggja fyrir.Eins og kunnugt er við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar 2016-2019 þá lágu nýir kjarasamningar ekki fyrir og því var gert ráð fyrir almennu launaskriði sem nemur 8,1% við gerð launaáætlana nema í áætlunum fyrir grunnskólana, þar var gert ráð fyrir 2,0%.Launaskriðið sem áætlað var fyrir vegna ársins 2016 var kr. 55.080.000, sbr. liður 1023 í áætlun og meðfylgjandi tafla (Fylgiskjal I).Samkvæmt meðfylgjandi samantekt (Fylgiskjal II) sem byggir á niðurstöðum á endurskoðun launaskapalóna þá vantar kr. 36.405.985 vegna launahækkana, þar af kr. 5.445.000 vegna afturávirka leiðréttinga vegna árins 2015.Byggðaráð hefur áður samþykkt viðauka við fjárhagsáætlun til að bregðast við nýjum kjarasamingum og/eða starfsmati. Ekki er hægt að sjá sóknarfæri sé að sinni í öðru fyrir þessari upphæð en að lækka handbært fé á móti.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum skiptingu viðauka niður á deildir í fjárhagsáætlun 2016 skv. fylgiskjali II og að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé sem og lækkun á áætlaðri rekstarniðurstöðu samstæðu um kr. 36.405.985. Rekstrarniðurstaða skv. heildarviðauka I var áætluð kr. 95.025.000 en lækkar þá um kr. 36.046.000 og er áætluð kr. 58.979.000.