Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
778. fundur
26. maí 2016
kl.
13:00
-
15:29
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Formaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Framkvæmdir og viðhald við sundlaug Dalvíkur
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, og Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, kl. 13:00.Til umræðu staða mála varðandi hönnun og undirbúning á endurbótum við sundlaugina á Dalvík.Stýrihóp vegna endurbóta á sundlaug skipa: Sviðsstjóri umhverfis- og tæknsviðs, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, formaður byggðaráðs og Þórunn Andrésdóttir, aðalmaður í íþrótta- og æskulýðsráði. Stýrihópurinn hefur komið saman í 7 skipti.Gísli Rúnar vék af fundi kl.13:40.
3.
Frá Markaðsstofu Norðurlands; Flugklasinn Air66N - áfangaskýrsla
Tekið fyrir erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, bréf dagsett þann 19. maí 2016, er varðar stöðu mála hvað varðar starf Flugklasans Air66N.
Lagt fram til kynningar.
4.
Ársreikningur 2015; Listi yfir birgja 2015
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti lista yfir helstu birgja Dalvíkurbyggðar 2015 sem fylgigagn með birtingu ársreiknings 2015, sbr. fyrri ár.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum listann eins og hann liggur fyrir til birtingar á heimasíðu Dalvíkurbyggðar með ársreikningi 2015.
5.
Fjárhagsáætlun 2017-2020; fjárhagsáætlunarvinnan - tillögur
Á 777. fundi byggðaráðs þann 19. maí 2016 var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði fylgdi drög að tímaramma vegna undirbúnings á vinnu við fjárhagsáætlun 2017-2020. Einnig rætt um fjárhagsramma og fjárhagsáætlunarferlið. Miðað við niðurstöður ársreiknings 2015 þá er lagt til að byggðaráð, fagráð, stjórnendur og starfsmenn nýti tímann frá maí - ágúst til að fara gaumgæfilega yfir starfsemi og rekstur sveitarfélagsins. Þannig verði þjónustustig sveitarfélagsins yfirfarið vs. fjölda íbúa og möguleikar á hagræðingu í rekstri kannaðir. Ofangreint yrði þá til þess að í stað þess að fjárhagsrammar yrðu staðfestir af sveitarstjórn fyrir almenn sumarleyfi þá seinkar þeim verkþætti í ferlinu, áætlað í enda ágúst. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að tímaramma eins og hann liggur fyrir."Á samráðs- og upplýsingafundi stjórnanda þann 24. maí s.l. var ofangreint til umræðu.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að boða til stjórnsýslunefndarfundar sem fyrst þar sem línurnar um hvernig farið verði í þessa vinnu verða lagðar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að útfæra tillögur inn á fund stjórnsýslunefndar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að útfæra tillögur inn á fund stjórnsýslunefndar.
6.
Frá 198. fundi félagsmálaráðs þann 12. apríl 2016; Öldungarráð
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, Kolbrún Pálsdóttir og Þorgerður Sveinbjarnardóttir, fulltrúar eldri borgara í Dalvíkurbyggð, kl. 14:53.Á 774. fundi byggðaráðs þann 28. apríl 2016 var eftirfarandi bókað:Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálsviðs, kl. 13:00. Á 198. fundi félagsmálaráðs þann 12. apríl 2016 var eftirfarandi bókað: "Umfjöllun um öldungaráð var lögð fyrir á 190 fundi félagsmálaráðs þann 10. september 2015 þar sem bókað var: "Félagsmálaráð vill standa vel að undirbúningi þessa ráðs og felur starfsmönnum félagsmálasviðs að afla frekari upplýsinga og móta tillögur samkvæmt umræðum á fundi." Starfsmenn leggja til að skipaðir verði 2 sveitarstjórnarmenn í ráðið og 3 fulltrúar frá félagi eldri borgara. Starfsmenn leggja einnig til að kynning á ráðinu verði lögð fyrir byggðarráð þar sem taka þarf ákvarðanir um stjórnskipun ráðsins. Félagsmálaráð vísar málinu til byggðarráðs og óskar eftir því að félagsmálastjóri fylgi málinu eftir. " Til umræðu ofangreint. Eyrún vék af fundi kl. 13:26. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fá fulltrúa úr hópi eldri borgara í sveitarfélaginu til að koma á fund byggðaráðs og ræða með hvaða hætti samráði við eldri borgara er best fyrir komið í stjórnsýslu sveitarfélagsins."Til umræðu ofangreint.Eyrún, Kolbrún og Þorgerður viku af fundi kl. 15:12.
Í samræmi við umræður á fundinum þá samþykkir byggðaráð samhljóða með 2 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að falla frá hugmyndum um sérstakt Öldungaráð. Þess í stað hittu fulltrúar eldri borgara (3 fulltrúar) í Dalvíkurbyggð byggðaráð á fundum, t.d. í mars og í september ár hvert. Byggðaráð felur sveitarstjóra að gera drög að samkomulagi í samræmi við ofangreint.
7.
Ásholt 4b; kauptilboð
Tekið fyrir kauptilboð í Ásholt 4b, fastanúmer 215-6671, dagsett þann 24.maí 2016, frá Páli Barna Szabo að upphæð kr. 9.500.000, en Páll er með forkaupsrétt sem leigjandi skv. reglum sveitarfélagsins þar um.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreint tilboð eins og það liggur fyrir og söluna á eigninni.